Fasteignaleitin
Opið hús:15. júní kl 17:30-18:00
Skráð 10. júní 2026

Álfaskeið 55

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
114.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
785.839 kr./m2
Fasteignamat
84.000.000 kr.
Brunabótamat
54.300.000 kr.
Mynd af Halldór Freyr Sveinbjörnsson
Halldór Freyr Sveinbjörnsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2072817_1
Landnúmer
119874
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Endurnýjað að hluta
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir
Upphitun
HItaveita
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Loftadós í neðri hæð (áður stigaop skv. upprunalegum teiknigum) er stífluð og hefur verið þannig frá upphafi. 
Vorum að fá í sölu virkilega fallega sérhæð í tvíbýli sem er 114,4 fm að stærð. Fallegt útsýni yfir gamla bæinn og glæsileg lóð sem mætir Arnahrauninu.   Þetta fallega hús hefur verið mikið endurnýjað á síðustu árum og bíður upp á mikla möguleika.

Efri hæð: Virkilega falleg og björt 4ra til 5 herbergja 114.4 fm íbúð með glæsilegu útsýni yfir miðbæ Hafnafjarðar. 

Anddyri: Rúmgott anddyri með innbyggðum fataskáp. 
Þvottahús: Endurnýjað 2023. inn af anddyri er þvottahús með fallegum hvítum innréttingum, góðum borðplássi tengi fyrir lítinn ísskáp, þvottavél og þurrkari í vinnuhæð. Góður gluggi með opnanlegu fagi.
Baðherbergi: Vikilega fallegt baðherbergi sem er nýlega búið að endurnýja(2023). Baðherbergið er hannað af Elínu Thor. Innréttingar frá Formus og falleg borðplata með innfeldri handlaug frá Steinlausnum ehf. Flísar frá Harðviðarval og blöndunartæki frá Epson. Walk in sturta með innbyggðum blöndunartækjum, glerskilrúmi og fallegri lýsingu. 
Hjónaherbergi: Fallegt hjónaherbergi með góðum fataskápum sem ná upp í loft Útveggur fyrir aftan hjónaherbergi var þykktur og lagt nýtt raflagnaefni ásamt því að gera ráð fyrir innfeldum rúmgafli. 
Svefnherbergi II: Gott barnaherbergi með fataskáp. Parket á gólfi. Þar sem herbergið er staðsett var upprunalega gert ráð fyrir stigaopi niður á 1.hæð. 
Svefnherbergi II: Gott barnaherbergi með fataskáp. Parket á gólfi.
Stofa:  Björt og stór stofa með glæsilegu útsýni yfir Miðbæ Hafnafjarðar og víðar. Borðstofa og góð setustofa. Á teikningu er gert ráð fyrir svefnherbergi þar sem setustofan/sjónvarpshol er staðsett í dag. 
Svalir:  Búið er að yfirbyggja yfir eldri svalirnar og opna inn í það rými svo það sé góður gangur milli borðstofu og eldhús. Góðar svalir sem voru bætt við eftir á til suðurs þar sem hægt er að njóta útsýnisins. 
Eldhús: Stórt og rúmgott eldhús með fallegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, háfur, nýlegur bakarofn (2025), tengi fyrir tvöfaldan ísskáp, tækjaskápur og borðkrókur.
Geymsluskúr: Góður geymsluskúr fylgir íbúðinni ca 10. fm á baklóð.

Sameign: Undir stiga er mjög góð sameiginleg geymsla þar sem hitagrindin er staðsett. Hitaveitugrindur endurnýjaðar 2024 og kaldavatnsheimtaug lögð ný inn í sept. 2025.

Garðurinn: 
Á lóðinni (631 fm) eru bílastæði fyrir framan hús með hleðslustöð fyrir rafbíla og einnig eru stæði með fram húsinu austan megin en þar á baklóð er möguleiki samkvæmt skipulagi að byggja bílskúr á lóð. Þessir möguleiki er háður leyfi skipulagsyfirvalda. Fyrir framan er mjög sólríkur sólpallur með fallegum gróðri og lítilli tjörn. 
Á baklóð er fallegur garður ásamt ca 10 fm geymsluskúr, búið er að leggja rafmagn að honum og er olíuofn notaður sem kynding. Falleg timburverönd, hellulögð stétt og gras að hluta en svo gengur hraunið inn í lóð að hluta en þar er landið ósnert og engin byggð. 

Húsið hefur verið töluvert endurnýjað á undanförnum árum og liggur nákvæm lýsing á þeim verkum fyrir hjá fasteignasölu.
En þess má geta að frárennslislagnir frá húsi fóðraðar og settur niður brunnur í september 2025. Klóaklagnir í plötu myndaðar 2024. Hitaveitugrind endurnýjuð 2024 og kaldavatnsheimtaug lögð ný inn í sept. 2025. Eignaskiptasamningur er fyrir húsið sem var endurnýjaður 2006.

Þetta er frábært tækifæri til að eignast fallega hæð á grónum og vinsælum stað í Hafnarfirði. 

Einnig er möguleiki að kaupa heildareignina ef það er vilji. 
Staðsetning er frábær þar sem eignin er í göngufæri við miðbæ Hafnafjarðar, leikskóla, skóla og framhaldskóla. 

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (54)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þórsstígur 5
Skoða eignina Þórsstígur 5
Þórsstígur 5
805 Selfoss
92.1 m2
Sumarhús
423
846 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Hrólfsskálamelur 18
Bílastæði
Hrólfsskálamelur 18
170 Seltjarnarnes
100.4 m2
Fjölbýlishús
211
994 þ.kr./m2
99.800.000 kr.
Skoða eignina Lynggata 2
Bílastæði
Skoða eignina Lynggata 2
Lynggata 2
210 Garðabær
99.6 m2
Fjölbýlishús
312
850 þ.kr./m2
84.700.000 kr.
Skoða eignina Hjarðarhagi 48
Bílskúr
Skoða eignina Hjarðarhagi 48
Hjarðarhagi 48
107 Reykjavík
118.4 m2
Fjölbýlishús
413
759 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin