Valborg fasteignasala kynnir: Mjög björt og vel skipulögð 2ja herbergja útsýnisíbúð að Kleppsvegi 32/gengið inn frá Brekkulæk. Íbúðin er endaíbúð á 3ju og efstu hæð með útsýni í vestur og suður.
Góð bílastæði við húsið. Hleðslustöðvar eru á lóð bak við blokkina sem íbúar hafa aðgang að.
Samkvæmt HMS er eignin 59 fm og er laus við kaupsamning.
Opið hús verður í eigninni sunnudaginn 25.01. kl. 14:00-14:30
Nánari upplýsingar veitir Elvar Guðjónsson, viðskfr og lögg fasteignasali, í síma 8954000, tölvupóstur elvar@valborgfs.is.
Íbúðin skiptist í stórt alrými, forstofu, stofu, borðstofu og eldhús með útgengi á vestur svalir, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.
Sameign er snyrtileg, teppi á stigagangi hafa nýlega verið endurnýjuð, stigagangur nýmálaður, nýlegt dyrasímakerfi í húsinu.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla þjónustu svo sem skóla, leikskóla, sundlaug kaffihús og verslunarkjarna.
Nánari lýsing:
Forstofa: Innbyggðir ljósir skápar.
Eldhús: Ljós innrétting með eyju og tréplötu á borðum. Innbyggður ískápur og uppþvottavél. Hvítar flísar yfir borði. Þvottavél tengd í eldhúsi.
Stofa/borðstofa: Bjart opið rými.
Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með skáp.
Baðherbergi: Flísalagt með ljósum flísum. Hvít innrétting, baðkar með sturtu.
Geynsla: 4 fm geymsla í kjallara.
Sameign:
Þvottahús
Hjólageymsla
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.100,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.