Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is - kynnir til sölu - Aðalstræti 24 Ísafirði - **Glæný þriggja herbergja 140 m² íbúð á 2.hæð í lyftuhúsi í miðbænum!*** Íbúðin skilast fullbúin með öllum innréttingum og gólfefnum í síðasta lagi þann 1. september 2026.
Í íbúðinni eru tvö rúmgóð herbergi, opið eldhús, stofa og borðstofa með útsýni út á Silfurtorg, baðherbergi, þvottaherbergi og forstofugangur. Sér 16 m² geymsla í kjallara. Parket og flísar á gólfum, hiti í gólfum. Allar lagnir nýjar. Nýtt gler í gluggum. Nýjar svalir settar upp austanmegin um 4 m² að stærð. Eitt bílastæði fylgir á lóð fyrir aftan hús.
Skilalýsing:
Frágangur innanhúss:
1.1. Gólfefni - Parket á gólfum í öllum rýmum, nema baðherbergi og þvottahúsi. Baðherbergi og þvottahús eru með flísar á gólfi. 1.2. Veggir - Veggir eru múraðir, gipsklæddir og málaðir. 1.3. Loft - Loftaþyljur eru í öllum loftum. 1.4. Gler og gluggar - Nýtt gler í öllum gluggum. Hluti glugga endurnýjaður. 1.5. Sólbekkir - Sólbekkir eru í öllum gluggum. 1.6. Hurðir - Innihurðar eru sprautulakkaðar/spónlagðar, með gereftum. 1.7. Fataskápar - Allir skápar eru af vandaðri gerð. 1.8. Eldhús - Eldhúsinnrétting og tæki eru af vandaðri gerð.
1.9. Baðherbergi - Veggir verða flísalagðir. Innréttingar og tæki. 1.10. Þvottaaðstaða - Sér þvottaherbergi er fyrir þvottavél og þurrkara er í íbúðinni. 1.11. Sérgeymsla - 16m2 sérgeymsla er í kjallara hússins. 1.12. Hitakerfi - Flooré gólfhitakerfi er í öllum gólfum. 1.14. Raflagnir, og lýsing - Allar raflagnir í íbúð eru nýjar. L.
2. Frágangur sameignar - sameign er fullbúin.
2.1. Anddyri og stigahús með flísum2.2. Hurðir - Eldvarnar hurð er á íbúð s.k.v. stöðlum. 2.3. Lyfta - Fólkslyfta er í húsinu. 2.5. Hjóla- og vagnageymsla - Sameiginlega hjóla- og vagnageymsla er í húsinu. 2.6. Sorp og sorpgeymslur - Sameiginlegt sorpskýli er á lóð. 3. Frágangur utanhúss - Húsið er almennt í góðu ástandi utanhúss. 3.3. Svalir - Svalir snúa í austur. 3.5. Bílastæði - Eitt bílastæði fylgir íbúðinni - eignarlóð Aðalstræti 24A. 5. Byggingaraðili - Tangi ehf. er byggingaraðili.
6. Afhendingartími - eigi síðar en 01.09.2026