Fasteignaleitin
Skráð 20. maí 2026

Starrahólar 5

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-111
262.8 m2
11 Herb.
7 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
169.900.000 kr.
Fermetraverð
646.499 kr./m2
Fasteignamat
135.400.000 kr.
Brunabótamat
124.050.000 kr.
Mynd af Elín Viðarsdóttir
Elín Viðarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2049765
Landnúmer
111985
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
upprunanlegt
Raflagnir
upprunanlegt
Frárennslislagnir
upprunanlegt
Gluggar / Gler
Þarfnast endurnýjunar að hluta
Þak
Járn á þaki, þakkantur og skyggni voru endurnýjuð 2004. 
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
útfrá stofu
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Samkvæmt seljanda þá hafa eftirtaldar framkvæmdir átt sér stað nýlega:
2025 - Ný sturta með öllu; Blöndunartæki, Flísar og sturtuklefi.
2023 - 7 Tré fjarlægð framanvert við húsið 
2020 - Öryggisgler sett í stofu við stiga
2020-2025: Rafmagn yfirfarið að hluta og viðbætt: Ný rafmagnstafla með þriggja fasa.
Bílskúr - Nýjar raflagnir, sér lekaliði, loftræstinga kerfi og rafmagnstafla. Þar að auki ljósleiðari lagður.
Eldhús - Nýjar raflagnir og sér grein eða öryggi fyrir eldavél og spanhellu.
Skv. fyrri eiganda úr söluyfirlit þá var:  Skipt var um allt gler í húsinu og í bílskúr árið 2008 og þá pósta sem þurfti.Húsið var sléttað að utan og nýjar svalir byggðar 2008. Járn á þaki, þakkantur og skyggni voru endurnýjuð 2004. 


 
Gallar
Borðplata í eldhúsi er gölluð og verið er að kanna möguleika varðandi að skipta henni út.
Gluggar í stofu þarfnast endurnýjunar og verið er að fá tilboð í þann kostnað.
Saunaof 
Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905 og Valhöll fasteignasala kynna í einkasölu Starrahóla 5 í  Reykjavík.
Um er að ræða sérlega glæsilegt einbýlishús á þremur pöllum, með tvöföldum bílskúr á vinsælum stað í botnlangagötu í  jaðarhverfi 109 Reykjavík með óhindruðu útsýni yfir borgina.

 
Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni og er mjög vel skipulagt. Fjögur rúmgóð svefnherbergi (möguleiki á átta herbergjum), stór og björt stofa, glæsilegt útsýni yfir borgina. Vandaður Carrara marmari á gólfum.

Eignin er skráð 262,8 fm á stærð sem skiptast í 218 fm hús og 44,8 fm bílskúr sem hefur verið innréttaður sem studíó. Þá er einnig búið að útbúa líkamsræktaraðstöðu með saunaklefa, heitum potti, sturtu og góðu rými fyrir líkamsræktaraðstöðu í óskráðu ca 60 fm rými á millihæð.
Heildareignin er því í raun ca. 322 fm á stærð.

Einbýlishúsið er byggt í hlíð og er á 3 pöllum; Efri-, milli- og neðri hæð: Gengið er inná efri hæð hússins af stórri hellulagðri suðurverönd.

Efri hæð skiptist í : Forstofu, stofur, eldhús/borðstofu, 2 svefnherbergi og gestasalerni.
Forstofa: Marmari á gólfum, fataskápur á heilum vegg. 
Stofa: Tvöföld rúmgóð og björt stofa með uppteknu lofti og bitum. Marmari á gólfi. Útgengi á svalir sem snúa til norðurs með stórglæsilegu óhindruðu útsýni svo langt sem augað eygir.  
Eldhús/borðstofa: Marmari á gólfum. Mjög rúmgott eldhús með U-laga dökkri nýlegri innréttingu. Borðstofan er samliggjandi eldhúsinu og gluggar eftir rýminu endilöngu gefa fallega birtu inn í eldhúsið.
2 svefnherbergi: Annað með marmara á gólfi hitt parketlagt. Vísa út á suðurverönd.
Gestasalerni: Með orginal flísum og vaskinnréttingu. Opnanlegur gluggi.
 
Gengið er niður einkar glæsilegan, marmaralagðan stiga niður á millihæð hússins. Gluggi er á rýminu og gefur góða birtu inn í húsið auk þess sem lofthæðin er góð.

Millihæð: Hjónaherbergi, sjónvarpsrými, baðherbergi, þvottahús og óskráð 60 fm rými með saunaklefa, heitum potti, sturtu og góðu rými fyrir líkamsræktaraðstöðu auk geymslu.
Hjónaherbergi: Parketlagt með skápum og fallegri horngluggasetningu.
Sjónvarpsrými: Marmari á gólfi. Gluggar á heilum vegg. Rýmið er skráð sem vinnuherbergi og er lofthæð ca 220 cm. Fyrir utan herbergið er hellulögð verönd.
Baðherbergi: Flísalagt með upprunalegum flísum og innréttingu, baðkari og salerni. Opnanlegir tveir gluggar.
Þvottahús: Flísar á gólfi, borðplata með vaski. tveir opnanlegir gluggar. Hitagrind og rafmagnstafla eru í þvottahúsi ásamt mótor fyrir rafmagnspott.
Óskráð rými: Gluggalaust, loftræst rými með flísum á gólfi, innbyggður, heitur pottur, saunaklefi (þarf að skipta um ofn). Sérrými með nýlegri „walk in“sturtu , handlaug og hillum. Rúmgóð geymsla er fyrir innan sem hýsir loftræstikerfið fyrir óskráða rýmið.
 
Neðri hæð: Svefnherbergisgangur, 3 barnaherbergi skv. teikningu.
Svefnherbergisgangur: Með marmara á gólfi, tveir útgangar út á hellulagða stétt sem liggur umhverfis húsið og í garðinn að neðanverðu þess.
Barnaherbergi I: Parketlagt með skáp.
Barnaherbergi II og III: Hafa verið sameinuð og eru nú í einu mjög góðu rými. Parketlagt með skáp.

Bílskúr: Tvöfaldur, sérstæður bílskúr.
Hiti, vatn og rafmagn er í bílskúr sem hefur verið að hluta útbúin sem stúdíó. Nýjar raflagnir, sér lekaliði, loftræstinga kerfi og rafmagnstafla. Þar að auki ljósleiðari lagður.
Hiti er í bílaplani auk þess sem hiti er í brekku sem liggur niður í götuna.

Lóðin: Er skráð 885 fm og er að mestu hellulögð að framan og til hliðar við húsið. Töluverður gróður er í baklóðinni og möguleiki til ræktunar.
Hægt er að ganga út í lóðina á amk 4 stöðum úr húsinu og því frábærir nýtingarmöguleikar á henni.
Hitalögn er í bílaplani að framanverðu við húsið. Að aftanverðu er lóðin tyrfð.
 
Samantekt: Hér er um að ræða einstaklega glæsilegt, rúmgott og vel skipulagt einbýlishús á vinsælum útsýnisstað í jaðri borgarinnar, með útleigumöguleikum og/eða frábært stórfjölskylduhús með stórum garði og óhindruðu útsýni.

Allar nánari upplýsingar veitir  Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905


2025 Húsið var málað og sprunguviðgert að utan. Gluggar voru einnig málaðir.
2024 Skipt var um eldhúsinnréttingu



 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
05/12/201974.850.000 kr.89.500.000 kr.262.8 m2340.563 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1978
44.8 m2
Fasteignanúmer
2049765
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
15.150.000 kr.

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sunnubraut 8
Bílskúr
Skoða eignina Sunnubraut 8
Sunnubraut 8
300 Akranes
235.3 m2
Einbýlishús
514
402 þ.kr./m2
94.500.000 kr.
Skoða eignina Vesturberg 69
Bílskúr
Skoða eignina Vesturberg 69
Vesturberg 69
111 Reykjavík
226.5 m2
Fjölbýlishús
716
Fasteignamat 117.950.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Brattakinn 23
Skoða eignina Brattakinn 23
Brattakinn 23
220 Hafnarfjörður
210.3 m2
Einbýlishús
533
584 þ.kr./m2
122.900.000 kr.
Skoða eignina Réttarholt 6
Bílskúr
Skoða eignina Réttarholt 6
Réttarholt 6
310 Borgarnes
204.8 m2
Einbýlishús
614
427 þ.kr./m2
87.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin