Fasteignaleitin
Skráð 4. júlí 2025
Deila eign
Deila

Álfhólsvegur 119

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
178.2 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
115.000.000 kr.
Fermetraverð
645.342 kr./m2
Fasteignamat
95.250.000 kr.
Brunabótamat
93.520.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1969
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2058341
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjaðir að hluta
Þak
Endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Nýtt á skrá! Álfhólsvegur 119 Kópavogi - Bókið skoðun.

--- Mikið endurnýjuð sérhæð með bílskúr með glæsilegu útsýni ---


Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir glæsilega, mikið endurnýjaða og vel skipulagða 5-6 herbergja (4-5 svefnherbergi) 178,2 fermetra efri sérhæð með sérinngangi, þar af 22,5 fermetra bílskúr, á þessum frábæra útsýnisstað við Álfhólsveg í Kópavogi. Glæsilegt útsýni til vesturs og norðurs út á sundin, að Öskjuhlíðinni, Nauthólsvíkinni, Esjunni og víðar. Góðar skjólgóðar svalir til suðurs.

Húsið er klætt á austur og suðurhlið og nýlega (2022) var húsið múrviðgert og málað. Þak var endurnýjað árið 2023 (dúklagt með PVC dúk) og þakkantur kláraður á norður- og vesturhlið hússins. Þá er nýlega búið að skipta um þá glugga og gler sem var komið á tíma. Auk þess var skipt var um bílskúrshurð árið 2022 (Vagnar og þjónusta) og rafmagnshurðaopnari settur upp.

Íbúðin hefur sömuleiðis verið endurnýjuð mikið á undanförnum árum. Nýlegir ofnar eru í allri hæðinni og búið er að endurnýja nánast allt rafmagn innan íbúðar ásamt rafmagnstöflu. Baðherbergi var endurnýjað að öllu leyti á afar smekklegan máta árið 2020. Þá er búið að endurnýja gólfefni (Egill Árnason) á hæðinni og þvottaherbergi endurnýjað að öllu leyti sömuleiðis. Auk þess er búið að endurnýja loft á svefngangi og svefnherbergjum, endurnýja innihurðir og sólbekki. Nánari viðhaldssaga fylgir söluyfirliti.

Eignin skiptist í forstofu, svefngang, fjögur svefnherbergi (voru fimm og væri hægt að breyta til baka), baðherbergi, eldhús, þvottaherbergi (og geymsla), sjónvarpsrými og stóra stofu, sem rúmar vel stofu og borðstofu. Suðursvalir eru út frá stofu. Mjög gott skipulag, stórir gluggar sem hleypa inn góðri birtu og glæsilegt útsýni. Góður 22,5 fermetra bílskúr.

Lýsing eignar:

Stigahol: Gengið inn um sérinngang í rúmgott stigahol. Flísalagður stigapallur með skápum. 
Sjónvarpsrými: Með nýlegu harðparketi og glugga til vesturs.
Stofa: Með nýlegu harðparketi. Stofa er opin við sjónvarpsrými og borðstofu. Gluggar til suðurs, vesturs og norðurs með afar fallegu útsýni út á sundin, að Öskjuhlíðinni/Nauthólsvíkinni, Esjunni og víðar. Útgengi á svalir úr stofu.
Svalir: Snúa til suðurs og er útgengi frá stofu. 
Borðstofa: Með nýlegu harðparketi á gólfi og gluggum til norðurs.
Eldhús: Með nýlegu harðparketi á gólfi og sprautulökkuðum eldhúsinnréttingum með góðu skápaplássi. Tengi fyrir uppþvottavél, stál Siemens bakaraofn og nýlegt Siemens spansuðuhelluborð. Borðkrókur og gluggi til norðurs.
Þvottaherbergi/geymsla: Er nýlega endurnýjað (klárað í mars 2025). Stórt og gott vinnupláss. Flísar á gólfum og innrétting í kringum þvottavél og þurrkara frá Axis. Rafmagn dregið fyrir þvottavél og þurrkara árið 2024.
Svefngangur: Með harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi I: Með harðparketi og glugga til austurs.
Svefnherbergi II: Með harðparketi og glugga til vesturs.
Svefnherbergi III: Með harðparketi og glugga til suðurs.
Hjónaherbergi: Er stórt og með harðparketi á gólfi. Góðir skápar og gluggar til vesturs. Hjónaherbergi var stækkað á kostnað svefnherbergis.
Baðherbergi: Var endurnýjað á afar smekklegan máta árið 2020. Skipt um allar lagnir í veggjum og flísar frá Parka. Flísalögð sturta með glerþili og Innb. Grohe blöndunartækjum. Sérsmíðuð innrétting á baðherbergi frá Við & Við. Handklæðaofn og gluggi til austurs.

Bílskúr: Er 22,5 fermetrar, með köldu vatni, rafmagni og glugga til vesturs. Nýleg bílskúrshurð frá Vögnum og þjónustu og ný rafmagnsopnari á bílskúrshurð. Hitakompa hússins er staðsett undir bílskúr með sérinngang frá lóð.

Hús að utan: Virðist vera í ágætis ásigkomulagi. Steniklætt á austur og suðurhlið. Húsið múrviðgert og málað sumarið 2022. Vísast nánar til lýsingar hér að ofan.
Lóð: Er tyrfð og með hellulagðri stétt að húsi. Malarbílaplan fyrir framan bílskúra. 
Staðsetning: Er afar góð miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu þar sem stutt er í alla verslun og þjónustu.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
15/10/202595.250.000 kr.115.000.000 kr.178.2 m2645.342 kr.
29/04/202062.450.000 kr.57.500.000 kr.178.2 m2322.671 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 1969
22.5 m2
Fasteignanúmer
2058341
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
05
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
8.470.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Naustavör 44
Bílastæði
Skoða eignina Naustavör 44
Naustavör 44
200 Kópavogur
125.5 m2
Fjölbýlishús
322
955 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Skólagerði 20
Bílskúr
Skoða eignina Skólagerði 20
Skólagerði 20
200 Kópavogur
190.3 m2
Hæð
414
654 þ.kr./m2
124.500.000 kr.
Skoða eignina Borgarholtsbraut 29
3D Sýn
Bílskúr
Borgarholtsbraut 29
200 Kópavogur
136.6 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
413
768 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Kópavogsbraut 75
3D Sýn
Kópavogsbraut 75
200 Kópavogur
133.5 m2
Fjölbýlishús
412
823 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin