Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu:
Vel skipulögð 100,4 fm. þriggja herbergja íbúð við Háteigsveg 12, 105 Reykjavík með sérinngangi á jarðhæð og með útgengi út á hellulagða verönd í suður. Íbúðin er í fjórbýlishúsi sem hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina.
Arkitekt hússins er Kjartan Sveinsson og byggingarár hússins er árið 1959.
Endurnýjun og viðhald hússins síðustu ára: - 2004 Múrviðgerð og húsið endursteinað, hiti lagður í stétt framan við hús.
- 2004 Eignaskiptayfirlýsing gerð
- 2012 Frárennslislagnir endurnýjaðar
- 2015 Endurnýjun á stofnlögn kalds vatns í götu (Reykjavíkurborg)
- 2015 Útihurðir hreinsaðar og olíubornar
- 2022 Endurnýjun neysluvatns á jarðhæð
- 2022 Húsið sílanborið
- 2025 Nýir gluggar og svalahurðir (nema í risíbúð)
- 2026 Þakjárn og þakpappi endurnýjaður og skorsteinn fjarlægður
Smelltu á hlekkinn til að skoða íbúðina í þrívíddBókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 / gulli@remax.isNánari lýsing:Íbúðin er á jarðhæð en skráð sem kjallari með sér inngangi á vesturhlið hússins. Forstofa er með flísum á gólfi og fatahengi, hurð lokar af forstofu frá alrými.
Gangur með tengist alrými með vinyl parket á gólfi. Alrýmið er með rúmgóða stofu og borðstofu, útgengi er frá borðstofu út á hellulagaða verönd sem snýr í suður og sameiginlegan garð hússins.
Svefnherbergin er tvö, þau eru bæði mjög rúmgóð með opnum fataskápum og harðparket á gólfi. Eldhúsið er með ljósar kork flísar á gólfi og hvíta U- laga upprunalega innréttingu með harðplast borðplötu, vask og gott vinnupláss. Ljósar flísar eru á milli neðri og efri skápa. Gott skápapláss. Eldavél með helluborði og kolasíu viftu þar fyrir ofan, tengi og aðstaða fyrir tvöfaldan ísskáp og lítil borðkrókur. Baðherbergið var endurnýjað árið 2010, flísar á gólfi og á veggjum og í kringum baðkarið. Sturtuaðastaða í baðkari með sturtuþili. Innrétting með handlaug og tveimur skúffum og speglaskáp þar fyrir ofan með lýsingu í. Upphengt salerni þar við hlið og upphengdur baðskápur. Handklæðaofn er þar á móti. Frá ganginum er svo innangengt inn í sameign, þar er sameiginlegt þvottahús og sér geymsla íbúðar.
Nánari upplýsingar veitir: Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 661- 6056 / gulli@remax.is
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.