Fasteignaleitin
Skráð 7. okt. 2026

Háaleitisbraut 117

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
82.1 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
64.900.000 kr.
Fermetraverð
790.499 kr./m2
Brunabótamat
40.440.000 kr.
Byggt 1965
Jarðhæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2015376
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Berg fasteignasala kynnir:   Háaleitisbraut 117,  57,7 fm. íbúð á 1. hæð í enda,  auk 24,4 fm. bílskúrs.  Samtals 82,1 fm.   Íbúðin er laus við kaupsamning. 

Nánari lýsing:  Komið er í anddyri með parketi á gólfi og góðum skápum.   Til vinstri er rúmgott svefnherbergi, með skápum og parketi.  Baðherbergið er með nýlegri innréttingu,flísalögnum, snyrtitækjum og  góðum sturtuklefa  og glugga. Lagt fyrir þvottavél. Þvottavél fylgir.   Stofan er björt og rúmgóð. Útgengt á svalir sem snúa í suður. Eldhúsið er með nýlegri innréttingu og eldhústækjum.  Uppþvottavél og ísskápur fylgja. Parket á gólfi. Í sameign er sér geymsla. Íbúðinni fylgir  24,4 fm. bílskúr í enda á bílskúrslengju. Nýlegt þak á bílskúrslengju. Góða aðkoma. Góð lofthæð.  Í sameign er sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi. Hjólageymsla. Búið er að skipta um gler og glugga  í íbúðinni.  Húsið er í ágætu viðhaldi. Búið að klæða stafninn og fl. á húsinu, þak hefur fengið viðhald.  Næg bílastæði og góð aðkoma að fjölbýlishúsinu.  Falleg lóð, gróður,tré og runnar.  Íbúðin er mjög miðsvæðis  í vinsælu hverfi. 

Nánari upplýsingar veitir:
Pétur Pétursson lfs 
sími 897-0047
petur@berg.is


Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Berg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
12/08/202239.200.000 kr.56.000.000 kr.82.1 m2682.095 kr.Já
05/11/201317.800.000 kr.22.350.000 kr.82.1 m2272.228 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Berg

Myndir (23)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Listabraut 5 Háaleiti
Kjallaraíbúð
Listabraut 5 Háaleiti
103 Reykjavík
81 m2
Fjölbýlishús
312
740 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Listabraut 5 Háaleiti
Kjallaraíbúð
Listabraut 5 Háaleiti
103 Reykjavík
81 m2
Fjölbýlishús
312
740 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Borgartún 24 - íbúð 601
Bílastæði
Borgartún 24 - íbúð 601
105 Reykjavík
81,5 m2
Fjölbýlishús
312
1164 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 12E
Bílastæði
Skoða eignina Hafnarbraut 12E
Hafnarbraut 12E
200 Kópavogur
95,3 m2
Fjölbýlishús
312
844 þ.kr./m2
80.400.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin