Fasteignaleitin
Opið hús:15. mars kl 14:00-14:30
Skráð 15. nóv. 2022

Sjávargrund 15A

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
167 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
112.900.000 kr.
Fermetraverð
676.048 kr./m2
Fasteignamat
102.450.000 kr.
Brunabótamat
80.780.000 kr.
Mynd af Dórothea E. Jóhannsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2072115
Landnúmer
119414
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
16
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Ofn í eldhúsi virkar bara með undir og yfirhita og grill stillingum.
OPIÐ HÚS sunnudag 15.mars kl. 14:00-14:30. Verið velkomin!
Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsilega og mikið endurnýjaða 4ra-5 herbergja íbúð með sérinngangi og stæði í bílakjallara. Rut Káradóttur innanhússarkitekt hannaði hluta af breytingum. Þrjú svefnherbergi, tvö með útgengi út á verönd og stórt gluggalaust sjónvarpsrými í kjallara með salerni/þvottarými innaf. Allar upplýsingar gefur Dórothea fasteignasali, s:898-3326, 
dorothea@fstorg.is

Eignin er skráð skv. FMR samtals 167,0 fm. Íbúð er skráð 146,5 fm og bílastæði í bílageymslu skráð 20,5 fm .  Endurnýjað 2022 í íbúð: Baðherbergi-sérsmíðaðar innréttingar, gólfefni, sérsmíðaðir fataskápar og sérsmíðaðar innihurðir. Fjölbýlið var tekið í gegn að utan 2020-2022. Yfirfarin og máluð þakklæðning, múrviðgerð og málun, málun á tréverki og endurnýjaðir gluggar þar sem þurfti. Stór hliðargluggi í stofu í íbúðinni var endurnýjaður.
Nánari lýsing:
Við sér inngang: Fallegur hlaðin steinveggur úr grágrýti sem og verönd til suðvestur. Hitalögn er í verönd. Möguleiki á lýsingu í steinvegg.
Forstofa: Komið er inn í  forstofu með stórum sérsmíðuðum innbyggðum skáp með innbyggðri lýsingu og svörtum rennihurðum. Fallegt niðurlímt eikarparket flæðir inn íbúðina. Einstaklega falleg handgerð eikarklæðning úr gegnheilum við á vegg í forstofu sem liggur inn í stofu á sjónvarpsvegg.
Eldhús: Er í rúmgóðu alrými stofu og borðstofu. Falleg svört innrétting í L með stein á borði. Stálofn í vinnuhæð, stálvifta, spanhelluborð, innbyggð 45 cm uppþvottavél og innbyggður ísskápur með frysti. Eyja fyrr miðju með stein á borði.
Borðstofa: Opin við eldhús og stofu.
Stofa: Rúmgóð björt stofa með einstaklega fallegri handgerðri eikarklæðningu fyrir sjónvarpsvegg. 75 tommu  FINLUX sjónvarp á hreyfanlegum armi fylgir ásamt JBL bassaboxi. Góðir gluggar í stofu með útsýni til suðvesturs.
Hjónaherbergi:  Með svörtum sérsmíðuðum fataskáp með skúffueiningum í neðri hluta. Útgengi út á hellulagða verönd við sameiginlegan lokaðan garð.
Svefnherbergi I: Útgengi út á hellulagða verönd við sameiginlegan lokaðan garð.
Svefnherbergi II: Með sérsmíðaðri innréttingu með skúffum í opnum fataskáp ásamt sérsmíðuðum spegli með innbyggðri lýsingu.
Baðherbergi: Flísalagt gólf og veggir að hluta. Stór flísalagður sturtuklefi með innbyggðri lýsingu. Svört tæki og litað glerskilrúm. Svartur handklæðaofn við enda sturtuklefa. Rúmgóðir sérsmíðaðir efri speglaskápar eftir heilum vegg við vaskaborð með svörtum tækjum og sérsmíðaður skápur niður í gólf með skúffueiningum.
Neðri hæð: Gengið er niður steyptan stiga með fallegu teppi í stórt gluggalaust sjónvarpsrými. Niðurlímt eikarparket á gólfi og góður fataskápur með rennihurðum. Auðvelt að nýta sem fjórða svefnherbergið. Innaf rýminu er baðherbergi með upphengdu salerni og vaski, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.  Innaf sjónvarpsrýminu í kjallara er einnig geymsla.
Frá sjónvarpsrými í kjallara er gengið inn í sameiginlega bílakjallara og beint í sérstæði eignarinnar. Rafmagnshleðsla getur fylgt frá ON gegn áskrift. Sameiginlegur fallegur lokaður garður er í miðju fjölbýlisins og sameiginleg stæði utandyra.
Hér er um að ræða frábæra staðsetningu í Garðabæ. Stutt er í leik-og grunnskóla og göngufæri út í fallega náttúru í nærumhverfinu. Göngufæri er í Hagkaup, Garðatorg-miðbæ Garðabæjar með flesta þjónustu sem og sundlaug Garðabæjar. Allar upplýsingar veitir Dórothea E. Jóhannsdóttir fasteignasali GSM: 898-3326, dorothea@fstorg.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.


 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/12/202266.400.000 kr.93.500.000 kr.167 m2559.880 kr.
09/05/201948.950.000 kr.57.500.000 kr.167 m2344.311 kr.
14/07/201532.150.000 kr.40.800.000 kr.167 m2244.311 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1992
20.5 m2
Fasteignanúmer
2072115
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Númer eignar
58
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.280.000 kr.

Myndir (46)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mosagata 15
Bílastæði
Opið hús:17. mars kl 12:15-12:45
Skoða eignina Mosagata 15
Mosagata 15
210 Garðabær
93.5 m2
Fjölbýlishús
32
887 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Mávahlíð 41
Opið hús:17. mars kl 18:00-18:30
Skoða eignina Mávahlíð 41
Mávahlíð 41
105 Reykjavík
95.5 m2
Fjölbýlishús
312
836 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Skoða eignina Drekavellir 24B
DJI_0340.JPG
Skoða eignina Drekavellir 24B
Drekavellir 24B
221 Hafnarfjörður
92.5 m2
Fjölbýlishús
312
756 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Ásholt 28
Bílastæði
Skoða eignina Ásholt 28
Ásholt 28
105 Reykjavík
124.8 m2
Raðhús
413
945 þ.kr./m2
117.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin