Fallegt og mjög vel skipulagt enda raðhús á tveimur hæðum með bílskúr og palli í lokuðum botnlanga í Garðabæ.
* Bílskúr
* Gróin og fallegur garður
* Mjög fjölskylduvænt hverfi
Allar nánari upplýsingar um eigna veitir Inga Reynis löggiltur fasteignasali í síma 820-1903 eða á netfanginu inga@palssonfasteignasala.is
ww.eignavakt.is
www.verdmat.is
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur
Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 190 fm af því er bílskúrinn 67 fm.Forstofu, hol/gang, gestabaðherbergi, 2 stofur/borðstofu, eldhús, 4 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/búr og bílskúr.
Aðalhæð:
Forstofa er rúmgóð með flísum á gólfi.
Gestasalerni í forstofu.
Eldhús er með góðri innréttingu, fallegu útsýni yfir á Esjuna.
Þvottahús & búr eru inn af eldhúsi - rúmgóð og flísalagt gólf
Stofa og borðstofa björt og falleg með parket á gólfiSjónvarpshol með útgengni út á pall og fallegum steinveggjum. Flísar á gólfi.
3 svefnherbergi eru á hæðinni, 2 með góðum skápum. Öll með parket á gólfi
Baðherbergi upprunalegt með baðkari og sturtu , flísalagt í hólf og gólf.
Úr stofunni er gengið niður fallegan stiga tröppur í kjallara, þar er innangengt á milli tveggja rúmgóðra herbergja og útgengni út í garð.
Bílskúrinn er rúmgóður áfastur við húsið, hann er með rafmagni, heitu og köldu vatni.Fjórir leikskólar og tveir grunnskólar, gagnfræðaskóli og framhaldsskóli í göngufæri auk þess sem Garðatorg er í nokkurra mínútna
göngufjarlægð þar sem m.a. má finna verslanir, veitingastaði og læknisþjónustu á einum stað.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.