Hlíðarás 47 – Glæsilegt einbýlishús með einstöku útsýni í Áslandi 3, HafnarfirðiUm er að ræða glæsilegt og vel skipulagt einbýlishús á frábærum útsýnisstað í Áslandi 3 í Hafnarfirði. Eignin er skráð samtals 251,2 fm samkvæmt Fasteignaskrá Íslands, þar af er íbúðarhlutinn 206,4 fm og bílskúr 44,8 fm.
- Vandaðar innréttingar frá HTH í eldhúsi, þvottahúsi og svefnherbergjum
- Gegnheilt hnotuparket á gólfum
- Fallegar hnotuinnréttingar sem skapa hlýlegt og glæsilegt yfirbragðStaðsetningin er afar góð, í rólegu og fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í fallegar gönguleiðir og náttúru. Leikskóli og grunnskóli eru í göngufæri.Nánari lýsingNeðri hæð:Komið er inn í rúmgott og bjart anddyri með flísum á gólfi og góðum forstofuskápum. Þaðan er gengið inn á gang/hol, þar sem einnig er innan gengt í bílskúr eignarinnar.
Á hæðinni er rúmgott þvottaherbergi með góðri vinnuaðstöðu, plássi fyrir þvottavél og þurrkara, skolskál og góðum hirslum, auk sturtuaðstöðu.
Svefnherbergin á hæðinni eru þrjú:
- Tvö rúmgóð barnaherbergi með skápum
- Rúmgott hjónaherbergi með góðu fataherbergi
Frá gangi er útgengt út í garð eignarinnar. Einnig er snyrtilegt, flísalagt baðherbergi með innfelldum blöndunartækjum, tveimur vöskum og góðri innréttingu.
Efri hæð: Fallegur stigi tengir hæðirnar saman. Á efri hæðinni er glæsilegt og bjart alrými sem samanstendur af stofu (arinn), borðstofu og opnu eldhúsi, alls tæplega 65 fm samkvæmt teikningum.
Eldhúsið er rúmgott og vel útbúið með góðu skápaplássi og vinnuaðstöðu, stórri eyju með sæti fyrir allt að sex. Þar er einnig tvöfaldur ísskápur, bakarofn, innbyggð kaffivél og innbyggð uppþvottavél, öll tækin í eldhúsinu eru frá Miele.
Á hæðinni er einnig:
- Svefnherbergi
- Flísalagt baðherbergi með góðri sturtuaðstöðu
Útgengt er frá baðherberginu út í garð þar sem er verönd með heitum potti.
Bílskúr: Rúmgóður bílskúr með heitu og köldu vatni.
Lóð og garður: Lóðin er snyrtilega skipulögð með rúmgóðu bílaplani, stéttum og góðum sólpöllum sem snúa vel við sólu, heitur pottur er á sólpallinum.
Nánari upplýsingar veitir:
Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða stefan@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is