Fasteignaleitin
Skráð 2. okt. 2026

Melgerði 31 - 2 íbúðir

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
143.1 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
117.900.000 kr.
Fermetraverð
823.899 kr./m2
Brunabótamat
32.950.000 kr.
Byggt 1963
Svalir
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
20347291
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Tveir inngangar

Aldir Fasteignir og Freyja Rúnarsdóttir Löggiltur fasteignasali (s: 694 4122 / freyja@aldirfasteignir.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: 

Virkilega falleg og mikið endurnýjuð íbúð á tveimur hæðum við Melgerði 31, 108 Reykjavík. Um er að ræða íbúð á miðhæð og í kjallara sem er hægt er nýta sem eina eign eða tvær aðskildar íbúðir. Að sögn eiganda hafa eftirfarandi framkvæmdir verið gerðar sumarið 2025: Nýtt járn á þaki, pappi og flasningar ásamt gluggum. Húsið hefur verið múrviðgert, pússað og málað að utan. Útitröppur múraðar og málaðar. Bílastæði og göngustígar steyptir. Nýjar þökur lagðar á hluta garðsins og við bílastæði. Nýtt handrið ásamt nýju gleri í útidyrahurðum og einnig hefur rafmagnstaflan verið endurnýjuð. Eignirnar hafa verið endurnýjaðar að innan t.a.m innréttingar, gólfefni, baðherbergi o.fl. Eign sem býður upp á mikla möguleika t.d leigja út aðra eignina og létta þannig á greiðslubyrðinni. Ekkert formlegt húsfélag er starfrækt í húsinu. Seljandi skoðar skipti.

Skv. skráningu HMS er eignin skráð 118,1 fm og skiptist þannig að miðhæðin er 68,5 fm og kjallaraíbúðina 49,6 fm en skv nýjum eignaskiptayfirlýsingu sem er ekki búið að þinglýsa mun birt stærð verða 143,1 fm sem skiptist þannig að miðhæðin verður 75,2 fm og kjallarinn 67,9 fm. Þannig að í raun er eignin 143,1 fm. Væntanlegur kaupandi mun klára skráningu og þinglýsingu á eignaskiptayfirlýsingunni.  

Nánari lýsing miðhæðar: Komið er inn í sameiginlegt flísalagt anddyri með risi. Frá forstofu tekur við hol með parketi á gólfi, fataskápur. Eldhús með nýlegri, fallegri innréttingu. Björt og rúmgóð stofa með stórum glugga sem snýr til suðurs. Opið er á milli stofu og eldhúss. Tvö svefnherbergi og er annað herbergið með góðum fataskáp. Flíslagt baðherbergi, stór Walk-in sturta, handklæðaofn, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, gluggi á baðherbergi. Á gólfum er reykt eikarplankaparket og flísar á baðherbergi. 

Nánari lýsing kjallara: Frá holi er unnt að ganga niður í kjallarann / steyptur stigi milli hæða. Sérinngangur. Köld útigeymsla við inngang. Komið er inn í hol með parketi á gólfi. Tvö stór herbergi, parket á tveimur en teppi á einu. Þvottahús með glugga. Parketlögð stofa. Rúmgott eldhús með fallegri innréttingu / neðri skápar, gluggi. Baðherbergi með sturtu, flísar á gólfi, gluggi. ATH. Ekki er full lofthæð  kjallaranum. 

VIRKILEGA GÓÐ STAÐSETNING ÞAR SEM STUTT ER Í ALLA HELSTU ÞJÓNUSTU.

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Freyja Rúnarsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 694 4112 eða freyja@aldirfasteignir.is
 


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (50)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Barmahlíð 6
Skoða eignina Barmahlíð 6
Barmahlíð 6
105 Reykjavík
72.5 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
826 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Kópavogsbrún 1
Skoða eignina Kópavogsbrún 1
Kópavogsbrún 1
200 Kópavogur
130.1 m2
Fjölbýlishús
413
922 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 96
Efsta hæð
Hleðslustöð
Skoða eignina Laugavegur 96
Laugavegur 96
101 Reykjavík
145.9 m2
Fjölbýlishús
312
685 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Núpahraun 6, Afhendist fullbúið
Bílskúr
Á einni hæð
Núpahraun 6, Afhendist fullbúið
815 Þorlákshöfn
139 m2
Raðhús
413
575 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin