Jason Kristinn, sími 775 1515, og Betri Stofan kynna: Fallegt og vel staðsett 97 fm sumarhús á einstaklega grónu og friðsælu 1 hektara landi við Álftavatn 13 í Grímsnesi. Eignin er í næsta nágrenni við Álftavatn, Sogið og Öndverðarnes golfvöll og býður upp á einstaka möguleika til útivistar og afslöppunar í fallegu umhverfi. Eignin er samtals 97 fm að stærð og samanstendur af 73,8 fm aðalhúsi, byggðu árið 1997, og 23,2 fm gestahúsi sem byggt var árið 2018.
Aðalhús Komið er inn í forstofu og þaðan tekur við bjart og notalegt alrými með stofu og eldhúsi í opnu rými. Í húsinu eru tvö svefnherbergi, baðherbergi með sturtu og risloft með góðri svefnaðstöðu sem nýtist vel fyrir fjölskyldu og gesti.
Gestahús Gestahúsið var byggt árið 2018 og er vel skipulagt með alrými, svefnherbergi og baðherbergi með sturtu. Húsið býður upp á góða gistiaðstöðu fyrir gesti eða stórfjölskylduna.
Lóð og útisvæði Stór og glæsilegur pallur umlykur bæði húsin og skapar skjólsælt og aðlaðandi útivistarsvæði. Á veröndinni er heitur pottur þar sem hægt er að njóta kyrrðarinnar og fallegs umhverfis allt árið um kring. Lóðin er einstaklega falleg, gróin og vel hirt. Á henni hefur verið gróðursett töluvert í gegnum árin sem skapar skjól og notalega stemningu. Undir veröndinni eru einnig góðar geymslur fyrir garðáhöld og annan búnað. Landið er 10.327 m² og er heimild til að byggja annan bústað á landinu og er gert ráð fyrir honum neðar í landinu (með sér innkeyrslu). Landanúmer: L168320
Eigninni hefur verið vel við haldið í gegnum tíðina, þó að einhverjir þættir séu komnir á tíma og bjóði upp á möguleika til endurbóta eftir óskum nýrra eigenda.
Hér er um að ræða einstaka sumarhúsaeign á eftirsóttum stað í Grímsnesi þar sem náttúra, kyrrð og fjölbreytt útivist eru allt í senn.
Bókið skoðun og nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 löggiltur fasteignasali. jason@betristofan.is

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.