Fasteignaleitin
Opið hús:13. ágúst kl 16:30-17:30
Skráð 14. sept. 2022

Digranesvegur 14

Tví/Þrí/FjórbýliHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
60.1 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
59.900.000 kr.
Fermetraverð
996.672 kr./m2
Fasteignamat
51.050.000 kr.
Brunabótamat
37.950.000 kr.
Mynd af Sigrún Gréta Helgadóttir
Sigrún Gréta Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1969
Jarðhæð af 3
Garður
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2059512
Landnúmer
114109
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Upprunalegt/Ekki vitað.
Raflagnir
Endurnýjað að hluta í íbúð og yfirfarið.
Frárennslislagnir
Skólplögn mynduð 2022 og lagað þar sem þurfti á þeim tíma. Annað ekki vitað.
Gluggar / Gler
Endurnýjað í gegnum árin. Flestir nýir í íbúð.
Þak
Þakjárn endurnýjað fyrir nokkrum árum. Þakkantur málaður 2025.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Sér viðarverönd til suðurs framan við íbúð.
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sérinngangur
Sigrún Gréta hjá RE/MAXkynnir bjarta og fallega 2ja herbergja íbúð á jarðhæð að Digranesvegi 14 í Kópavogi. Sérinngangur og sérafnotareitur til suðurs. Út frá stofu er tvöföld svalahurð út á viðarverönd. Bílastæði er inni á lóð og upphituð gangstétt að íbúð. Vel skipulögð íbúð og stór suðurgarður með góðu útsýni til fjalla. Geymsluskúr á lóð tilheyrir íbúðinni. Húsið er nýlega múrviðgert og málað og íbúðin var gerð upp fyrir nokkrum árum. Í íbúðinni er gólfhiti. Ýmis þjónusta og verslanir eru handan götunnar og stutt er í leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Einnig er sundlaug Kópavogs í göngufæri.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is 

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofurými, svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 60,1 m2.


*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA

**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!


Smelltu hér og þú færð söluyfirlit strax
Nánari lýsing:
Forstofa
 er inn af sérinngangi sunnan megin á húsinu. Snjóbræðsla undir stétt frá bílastæði og að íbúð. Innan íbúðar er forstofuhol með hvítum fataskápum og skúffum. Viðar hljóðvistarplötur á hluta veggja. Í hluta forstofu er skráð sér geymsla, en nýtist nú sem stærri forstofa.
Eldhús var endurnýjað árið 2020 og er nú í opnu rými með stofu. Hvít innrétting á tveimur veggjum. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja. Ljúflokanir á skápum og engar höldur á efri skápum. Nýlegur háfur. Grá borðplata.
Stofa/borðstofa er rúmgóð og björt. Útgengi er út í garð til suðurs. Sérafnotaréttur framan við íbúð. Parket og hvítir gólflistar á gólfi stofu og eldhúss.
Sérafnotareitur er afgirtur með hliði. Að hluta til er nýleg viðarverönd og hluti er grasflötur. Innan sérafnotareits er snyrtilegur kaldur garðskúr.
Svefnherbergi er inn af stofu. Vítt til veggja og hvítir fataskápar fylla einn vegg. Hurðin var endurnýjuð og parket á gólfi er án þröskulda.
Baðherbergi var gert upp fyrir nokkrum árum. Baðherbergið flísalagt í hólf og gólf með ljósum og ljósdrapplituðum flísum. Baðkar með sturtu, upphengt salerni og hvítur handklæðaofn. Veggfestur speglaskápur m/ljósi og hvít skúffueining undir handlaug.
Þvottahús er innan íbúðar. Hvít innrétting með skápum og skúffum. Grá borðplata og grámálað gólf. Pláss og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Stýrikerfi fyrir gólfhita íbúðar er í þvottahúsi. Veggfest stýrikerfi er svo í stofurými og svefnherbergi.
Geymsla íbúðar er hluti af forstofu. Einnig er geymsluskúr á sérafnotareit og geymslurými í sameign.
Garðskúr stendur við austurenda húss og tilheyrir umræddri íbúð. Óeinangraður.
Garður er afar stór, skjólgóður og snýr að mestu til suðurs. Fjölærar plöntur, trjágróður og grasflötur sunnanmegin. Við hús eru hellulagðar stéttar og framan við hús eru nokkur hellulögð bílastæði, grasflötur og blómabeð.
Bílastæði eru sex framan við hús Digranesmegin. 
Endurbætur: Árið 2025 var húsið múrviðgert og málað. Skipt hefur verið um glugga í húsinu jafnt og þétt eftir þörfum, nokkrir endurnýjaðir á árunum 2023-2025. Pallur á sérafnotareit byggður 2023 og geymsluskúr lagfærður að innan. Árið 2020 var skipulagi íbúðar breytt og hurðarop út í garð stækkað. Gólf flotað og lagður gólfhiti, rafmagn í íbúð endurnýjað að mestu, hurð inn í svefnherbergi endurnýjuð sem og eldhúsinnrétting og parket (Parki). Geymsla inn af forstofu var rifin og byggð upp stærri forstofa. Innrétting, vaskur og salerni endurnýjað inni á baðherbergi 2022. Skólplagnir myndaðar 2022. Tröppur hafa verið múrviðgerðar og snjóbræðsla sett undir gönguleiðir í stétt. Þakjárn var endurnýjað fyrir nokkrum árum af fyrri eiganda. 

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is 

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna
:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
04/11/202230.050.000 kr.51.500.000 kr.60.1 m2856.905 kr.
09/03/202027.150.000 kr.32.000.000 kr.60.1 m2532.445 kr.
09/12/201515.200.000 kr.22.900.000 kr.60.1 m2381.031 kr.Nei
17/08/200711.850.000 kr.17.200.000 kr.60.1 m2286.189 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Álftamýri 32
Efsta hæð
Opið hús:17. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Álftamýri 32
Álftamýri 32
108 Reykjavík
63.7 m2
Fjölbýlishús
312
987 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarhjalli 52
Heitur pottur
Opið hús:11. ágúst kl 16:00-16:30
Hlíðarhjalli 52
200 Kópavogur
66 m2
Fjölbýlishús
312
979 þ.kr./m2
64.600.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 7 Íbúð 508
Opið hús:13. ágúst kl 17:30-18:00
Baughamar 7 Íbúð 508
221 Hafnarfjörður
63.4 m2
Fjölbýlishús
211
961 þ.kr./m2
60.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 42
Bílastæði
Opið hús:11. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Naustavör 42
Naustavör 42
200 Kópavogur
110.8 m2
Fjölbýlishús
312
1001 þ.kr./m2
110.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin