Fasteignaleitin
Skráð 28. feb. 2026

Gnoðarvogur 48 með aukaíbúð

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
161.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
119.900.000 kr.
Fermetraverð
741.038 kr./m2
Fasteignamat
107.800.000 kr.
Brunabótamat
81.750.000 kr.
Mynd af Elka Guðmundsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Fasteignasali
Byggt 1960
2. hæð af 4
Garður
Svalir
Bílskúr
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2022907
Landnúmer
105529
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjaðar að hluta
Frárennslislagnir
Ekki vitað um vandamál
Gluggar / Gler
Allir gluggar endurnýjaðar utan stóra stofuglugga
Þak
Ekki vitað um vandamál
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðvestur svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Elka Guðmundsdóttir, lgf. s. 863-8813 hjá Fasteignasölunni TORG, kynnir bjarta og mikið endurnýjaða 129,6 m² sérhæð á annarri hæð við Gnoðarvog 48.
Eigninni fylgir 32,2 m² bílskúr sem hefur verið innréttaður sem íbúð með baðherbergi. Skráð heildarstærð er 161,8 m².
Íbúðin er með þremur rúmgóðum svefnherbergjum, bjartri stofu og suðvestursvölum. Á síðustu árum hefur meðal annars verið farið í endurnýjun eldhúss, baðherbergis, raflagna, lagna og flestra glugga.
Nánari upplýsingar veitir Elka í síma 863-8813 eða á elka@fstorg.is

Nánari lýsing
Gengið er inn um snyrtilegan inngang sem er sameiginlegur með risíbúðinni og upp teppalagðan stiga á aðra hæð. Inn af íbúðardyrum er gangur með góðu skápaplássi.
Eldhús er með góðum borðkrók og innréttingu sem var endurnýjuð árið 2021. Þá var einnig skipt um eldavél, helluborð, háf, uppþvottavél, vask og blöndunartæki og flísar lagðar á milli skápa. Inn af eldhúsinu er búr og þvottaaðstaða, aðskilin með rennihurð.
Stofa og borðstofa eru rúmgóðar og bjartar, með parketi á gólfi. Opnað hefur verið á milli eldhúss og stofu.
Svefnherbergin eru þrjú, öll rúmgóð og björt. Útgengi er úr tveimur þeirra á suðvestursvalir.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað og er með gólfhita, sturtu, innréttingu og handklæðaofni. Flísar eru á gólfi.
Í kjallara er sameiginlegt þvottahús með þurrkaðstöðu og sérgeymsla sem er ekki innifalin í skráðri stærð eignarinnar.
Bílskúrinn er 32,2 m² og hefur verið innréttaður sem íbúð/gestarými með baðherbergi og sturtu. Þar hefur einnig verið lagt nýtt parket, innréttingar endurnýjaðar og hleðslustöð sett upp.

Helstu framkvæmdir 2021–2025
• Eldhús endurnýjað árið 2021.
• Baðherbergi endurnýjað og gólfhiti lagður.
• Nýjar neysluvatnslagnir og ofnalagnir lagðar í gólf og skipt um alla ofna.
• Rafmagn endurnýjað í íbúðinni og ný rafmagnstafla sett upp.
• Gólf flotað og nýtt parket lagt á alla íbúðina árið 2021.
• Nýjar innihurðir og fataskápar settir upp, ásamt rennihurðum á forstofuskáp.
• Skipt um flesta glugga og svalahurðir á árunum 2021 og 2024.
• Netsnúrur lagðar í tvö herbergi, stofu og bílskúr.
• Bílskúr endurnýjaður að innan, hleðslustöð sett upp árið 2025 og þakpappi á bílskúr endurnýjaður árið 2022.

Eignin er í Vogahverfi, beint á móti Menntaskólanum við Sund. Stutt er í skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu, útivist og aðra þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
28/04/202163.050.000 kr.68.500.000 kr.161.8 m2423.362 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1965
32.2 m2
Fasteignanúmer
2022907
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
12.600.000 kr.

Myndir (44)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skeggjagata 16
Skoða eignina Skeggjagata 16
Skeggjagata 16
105 Reykjavík
92.4 m2
Fjölbýlishús
312
832 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Síðumúli 39
Skoða eignina Síðumúli 39
Síðumúli 39
108 Reykjavík
73.5 m2
Fjölbýlishús
211
932 þ.kr./m2
68.500.000 kr.
Skoða eignina Stórholt 17
Skoða eignina Stórholt 17
Stórholt 17
105 Reykjavík
121 m2
Fjölbýlishús
523
899 þ.kr./m2
108.800.000 kr.
Skoða eignina Suðurgata 96
Opið hús:24. sept. kl 17:00-18:00
Skoða eignina Suðurgata 96
Suðurgata 96
220 Hafnarfjörður
148.5 m2
Fjölbýlishús
413
605 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin