Miklaborg kynnir: 173 fm endaraðhús við Viðarrima 19 í Grafarvogi. Fallegt hús á góðum stað með einstöku útsýni til vesturs. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, skrifstofu, þvottahús og bílskúr. Seljandi getur hugsað sér 3-4 herbergja íbúð í rimahverfi uppí þessa eign.
Nánari upplýsignar veitir Óskar Sæmann í síma 6912312 eða osa@miklaborg.is
Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og góðum fataskáp. Eldhús með dökkri innréttingu, ljósri granít borðplötu helluborði, ofni, viftu og plássi fyrir uppþvottavél og ísskáp, búið er að bæta við eyju í eldhúsið sem er úr dökkum við með ljósri borðplötu. Stofa, Borstofa og eldhús eru í opnu rými með flísum á gólfi og útgengi út á steyptan af lokaðan sólpall með heitum pott og geymsluskúr. Tvö barnaherbergi með dúk á gólfi og fataskáp. Hjónaherbergi með dúk á gólfi og fataskáp. Á herbergjagangi er búið að stúka af með léttum veggjum skrifstofu. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, walk-in sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni, hvítri innréttingu með vask, gólfhiti er á baðherbergi. Þvottahús með flísum á gólfi. Bílskúr með millilofti og útgengt á sólpallinn. Hiti er í plani fyrir utan bílskúr, gönguleið upp að húsinu og að hluta til í pallinum.
Viðhald síðustu ára
2020 Skipt um flasninagar á austurhlið hússins og þakið málað.
2021 Húsið málað að utan
2022 Skipt um glugga á austurhlið hússins ásamt svalahurð og útidyrahurð
Raflangir eru að hluta til endurnýjaðar og skipt hefur verið um rafmagnstöflur.
Nánari upplýsingar veitir
Óskar Sæmann Axelson í síma 691-2312 eða osa@miklaborg.is
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
112 | 187,5 | 149,9 | ||
203 | 165,2 | 125,5 | ||
203 | 180,4 | 118,9 | ||
340 | 158,3 | 64,9 | ||
210 | 167,5 | 219,9 | ||
104 | 161,1 | 94,9 |