** Opið hús mánudaginn 2. mars frá kl. 16:30 til 17:00 - Gerplustræti 19 íbúð 301 - Eignin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 ** Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög falleg og vel skipulögð 115,3 m2, 4ra herbergja endaíbúð með glæsilegu útsýni á 3. hæð, ásamt bílastæði í bílageymslu í lyftuhúsi við Gerplustræti 19 í Mosfellsbæ. Frábær staðsetning rétt við Helgafellsskóla. Stutt í fallegar gönguleiðir.
Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, eldhús, stofu og borðstofu. Sérgeymsla er í kjallara og bílastæði í bílageymslu. Rúmgóðar svalir með epoxy á gólfi og svalalokun. Fallegar innréttingar og gólfefni. Gott skipulag.
Eignin er skráð 115,3 m2, þar af íbúð 103,6 m2 og geymsla 11,7 m2. Bílastæði í bílageymslu merkt B14 fylgir eigninni. Búið er að leggja rafmagn í öll stæði í bílakjallara með álagsstýringu til að hlaða bíla í bílageymslunni. Eignin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sentNánari lýsing:Forstofa er með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og góðum fataskápum.
Svefnherbergi nr. 2 er með fataskápum og parketi á gólfi
Svefnherbergi nr. 3 er með fataskápum og parketi á gólfi
Baðherbergi er flísalagt með sturtuklefa, handklæðaofni, vönduð innrétting og innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús er mjög rúmgott með vandaðri innréttingu sem nær til lofts og stórum glugga. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, innbyggður ísskápur, ofn, helluborð og háfur. Opið er á milli eldhúss og stofu.
Stofa og borðstofa eru inn af eldhúsi með gluggum á tveimur hliðum með glæsilegu útsýni sem gerir rýmið mjög bjart og skemmtilegt. Úr stofu er gengið út á rúmgóðar svalir til suðursmeð epoxy á gólfi og svalalokun. Glæsilegt útsýni.
Sérgeymsla er rúmgóð með hvítri innréttingu í kjallara hússins.
Bílastæði í bílageymslu með aðgengi frá lyftu - stigahúsi. Sérmerkt stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni.
Stigahúsið er snyrtilegt og vandað með góðum flísum í anddyri og kjallara en teppi á stigahúsi.
Utanhúss er fasteignin álklædd vandaðri klæðningu og því viðhaldslítil. Snjóbræðsla er undir gönguleiðum.
Verð kr. 92.900.000,-