Fasteignaleitin
Skráð 20. júní 2026

Pálmholt 6

RaðhúsNorðurland/Þórshöfn-680
84.8 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
24.400.000 kr.
Fermetraverð
287.736 kr./m2
Brunabótamat
50.700.000 kr.
Byggt 1983
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
21679201
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Fasteignasala Þórshafnar kynnir:


 

Pálmholt 6
er 84,8 fm, þriggja herbergja endaíbúð í steyptu raðhúsi, byggðu 1983.
Íbúðin hefur verið talsvert endurnýjuð síðustu ár og er nánari útlistun á framkvæmdum í söluyfirliti.
Eignin skiptist í:  
Forstofa, fatahengi með skóhillum, nýlegar flísar á gólfi. Til vinstri úr forstofu er gengið í þvottahús/geymslu, flísar á gólfi, nýlegur veggskápur, hillur og vinnuborð. Inn af forstofu er parketlagt hol, til hægri úr því er gengið í eldhús, þar er parket á gólfi, nýleg Ikea innrétting, bekkjarplötur frá Fanntófell og 80 cm breitt spanhelluborð. Í eldhúsi er lúga uppá loft, með útdraganlegum stiga og þar er geymslupláss undir risi. 
Inn af holi er rúmgóð stofa með parketi á gólfi, úr stofu eru dyr til suðurs að sólpalli sem nær meðfram allri íbúðinni.
Til vinstri úr holi er komið inn á lítinn gang, við hann eru dyr að tveimur svefnherbergjum og baði. Minna svefnherbergið er 7 fm, parket á gólfi og lítill fataskápur, stærra herbergið er 11,9 fm, parket á gólfi, gluggar á tveimur hliðum til austurs og suðurs og tveir fataskápar.
Baðherbergið er með vegghengdu salerni og baðkari, flísar á gólfi og þremur veggjum, veggjaþiljur ofan baðkars. Lítil innrétting undir og ofan vasks.
Einangraður geymsluskúr úr timbri var byggður við íbúðina framan við þvottahús, þar er c.a. 9 fm geymslupláss í upphituðu rými.
Tvær aðrar breytingar eru frá meðfylgjandi grunnmynd af íbúðinni, veggur milli búrs og eldhúss var fjarlægður og eldhúsið stækkað sem því nemur, einnig var bætt við glugga á austurhlið stærra svefnherbergis.
Gólfhiti er í forstofu, þvottahúsi og eldhúsi, önnur rými hituð með þilofnum.
 

Nánari upplýsingar veitir Sigurður í síma 8592925 eða tölvupósti srk66@simnet.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Þórshafnar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasala Þórshafnar slf.
fasteignir.is

Myndir (21)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sóleyjarimi 7
Skoða eignina Sóleyjarimi 7
Sóleyjarimi 7
112 Reykjavík
61 m2
Fjölbýlishús
211
982 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Tjarnabraut 16
Skoða eignina Tjarnabraut 16
Tjarnabraut 16
260 Reykjanesbær
100.5 m2
Fjölbýlishús
413
596 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Iðufell 4
Efsta hæð
Opið hús:23. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Iðufell 4
Iðufell 4
111 Reykjavík
83 m2
Fjölbýlishús
312
625 þ.kr./m2
51.900.000 kr.
Skoða eignina Krummahólar 8 (410)
IMG_6740.JPG
Krummahólar 8 (410)
111 Reykjavík
105.7 m2
Fjölbýlishús
312
567 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin