Fasteignaleitin
Opið hús:14. júlí kl 17:15-17:45
Skráð 9. júlí 2026

Hellisgata 16 - íbúð 201

HæðHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
198.1 m2
6 Herb.
5 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
99.850.000 kr.
Fermetraverð
504.038 kr./m2
Brunabótamat
97.950.000 kr.
Mynd af Heiðrekur Þór Guðmundsson
Heiðrekur Þór Guðmundsson
Löggiltur fasteignasali
viltu.isEignalisti
Sérinng.
Fasteignanúmer
2075310
Húsgerð
Hæð
Inngangur
Sérinngangur

Viltu fasteignir kynna 5-6 herbergja hæð og ris við Hellisgötu 16, 220 Hafnarfjörður.

Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit ásamt öðrum sölugögnum eignarinnar.
Einni er hægt að vakta eignina og gera tilboð í hana

Eigandi skoðar að taka ódýrari eign uppí.
Eignin er í úleigu og góðir leigjendur geta fylgt með ef það er vilji fyrir því.

Hellisgata 16 er vel skipulögð 5-6 herbergja hæð og ris með sérinngangi í hjarta Hafnarfjarðar. Eignin hefur verið töluvert mikið endurnýjuð að innan á síðustu árum. Í heildina er um að ræða 198,1 m2. Næg bílastæði við húsið.
Eignin samanstendur af 155 fm íbúð á einni hæð sem skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu, baðherbergi, 4 svefnherbergi, geymslu og þvottahúsi, gólfhiti er á allri hæðinni. Frá aðalhæðinni er gengið er upp steyptan stiga upp í risið sem er skráð 36,5 m2 en nýtanlegur gólfflötur í risi er umtalsvert stærri, eða um 100m2.

Eldhús endurnýjað 2021/2022
Baðherbergi endurnýjað 2023

Nánari lýsing:
Gengið er upp tröppur, þaðan inn um sérinngang.
Forstofa: Flísar á gólfi.
Eldhús: Er samliggjandi við borðstofu/stofu. Falleg nýleg innrétting, ljós borðplata með plastþynnu, innbyggð uppþvottavél og tveir bakaofnar í vinnuhæð (efri er einnig örbylgjuofn). Innbyggður ísskápur. Nýjar lagnir og nýtt rafmagn. Flísar á gólfi.
Borðstofa/Stofa: Eru samliggjandi og mjög rúmgóð. Mikið og fallegt útsýni til austurs og vesturs yfir Hafnarfjörðinn, út á sjó og til Helgafells. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með mjög góðum nýlegum fataskáp. Flísar á gólfi. 13,6 fm.
Svefnherbergi I: Bjart herbergi sem nýtist vel. Flísar á gólfi. 10,6 fm.
Svefnherbergi II: Bjart herbergi sem nýtist vel. Flísar á gólfi. 12,4 fm.
Svefnherbergi III: Bjart herbergi sem nýtist vel. Flísar á gólfi. 12,0 fm.
Baðherbergi: Allt endurnýjað. mikið skápapláss, Innbyggð sturta. Upphengt klósett, steinefnaspartl á veggjum. Flísar á gólfi.
Þvottahús: Mjög rúmgott, vaskur, gluggi. Flísar á gólfi.
Geymsla: Er undir útitröppum.
Ris: Risið sjálft er skráð 36,5 fm. en hefur sömuleiðis mikla möguleika enda mun nýtt deiliskipulag Hafnarfjarðarbæjar heimila hækkun þessarar hæðar, þar eru lagnir til staðar s.s. skólp, heitt og kalt vatn. í risi er stórt herbergi með gluggum. Flísar á gólfi í herbergi og ofn á vegg. Hluti af risi er óeinangrað.

Frábært tækifæri til að eignast mikið endurnýjaða stóra sérhæð á frábærum stað í Hafnarfirði. Göngufæri í miðbæ Hafnarfjarðar og fallegar gönguleiðir. Stutt er í skóla, leikskóla og útivistarsvæði

Nánari upplýsingar veitir Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 eða heidrekur@viltu.is

Viltu fasteignir bjóða fasta söluþóknun 995.000 kr.
Allt innifalið. - Ekkert vesen
Kynntu þér málið á Viltu.is

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
20/01/202163.700.000 kr.64.900.000 kr.198.1 m2327.612 kr.
23/06/201640.700.000 kr.32.900.000 kr.184.7 m2178.126 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (37)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hellisgata 16
Opið hús:14. júlí kl 17:15-17:45
Skoða eignina Hellisgata 16
Hellisgata 16
220 Hafnarfjörður
198.1 m2
Hæð
615
504 þ.kr./m2
99.850.000 kr.
Skoða eignina Þrastarás 18
Opið hús:09. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Þrastarás 18
Þrastarás 18
221 Hafnarfjörður
67.2 m2
Fjölbýlishús
211
891 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Bollagarðar 51
3D Sýn
Opið hús:13. júlí kl 16:30-17:00
Eldhúsið
Skoða eignina Bollagarðar 51
Bollagarðar 51
170 Seltjarnarnes
212 m2
Raðhús
624
815 þ.kr./m2
172.700.000 kr.
Skoða eignina Álfholt 56A
Opið hús:14. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Álfholt 56A
Álfholt 56A
220 Hafnarfjörður
69.6 m2
Fjölbýlishús
211
861 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin