Fasteignaleitin
Skráð 17. jan. 2025
Deila eign
Deila

Valshlíð 3

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
113.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
121.900.000 kr.
Fermetraverð
1.073.063 kr./m2
Fasteignamat
10.200.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Elísabet Kvaran
Elísabet Kvaran
Löggiltur fasteignasali
Lyfta
Garður
Útsýni
Aðgengi fatl.
Fasteignanúmer
2532645
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Byggingarstig
B1 - Byggingarleyfi
Matsstig
U - Leyfi útrunnið

Hlíðarhorn.is kynnir fjölbýlishús í 102, Reykjavíkurborg

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Fasteignasalan Hlíðarhorn kynnir: Valshlíð 3 - Íbúð 307.

Stórglæsileg og vönduð 4ja herbergja endaíbúð á 3. hæð. Birt stærð er 113,6 fm þar af 11,4 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús með eyju og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, 3 svefnherbergi, þar af eitt með útgengi á svalir, baðherbergi og þvottaherbergi. Íbúðin afhendist með hágæða sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens og Witt í hæsta gæðaflokki, vönduðum ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Hlíð 2.

Nánari lýsing: Í anddyri er góður fataskápur. Gengið er úr anddyri beint inn í rúmgott og bjart alrými, eldhús með eyju og stofu/borðstofu með útgengi á rúmgóðar vestursvalir með óhindruðu útsýni yfir vatnsmýrina. Svarbrún eldhúsinnrétting með viðaráferð, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og hágæða ítölsk blöndunartæki úr byssubláu stáli. Öll eldhúsraftæki af hæsta gæðaflokki. Innbyggður ísskápur. Rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum og útgengi á svalir sem snúa inn í innri garð. Tvö svefnherbergi með góðum skápum. Baðherbergi með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, svarbrún innrétting með viðaráferð og speglaskápur með lýsingu. Innbyggð blöndunartæki á baði úr byssubláu stáli. Innaf baðherbergi er þvottaherbergi með ljósri innréttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð í innréttingu. Sérgeymsla íbúðar í kjallara merkt er 0038, Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.

Afhending íbúðar: Gert er ráð fyrir fyrstu afhendingu íbúða í Valshlíð 3 í lok mars 2025.

Heimasíða verkefnis: www.hlidarhorn.is

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins.

Athygli kaupenda er vakin á því að fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu S8 ehf. sem er jafnframt aðalverktaki og eigandi fasteignarinnar.

Kaupendur greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt þ.e 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Önnur gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa:

  1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
  3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
  4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fálkahlíð 5, (511)
Bílastæði
Opið hús:20. feb. kl 17:00-17:30
Fálkahlíð 5, (511)
102 Reykjavík
107.5 m2
Fjölbýlishús
312
1022 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Fálkahlíð 5 (326)
Bílastæði
Opið hús:20. feb. kl 17:00-17:30
Fálkahlíð 5 (326)
102 Reykjavík
128.4 m2
Fjölbýlishús
413
949 þ.kr./m2
121.900.000 kr.
Skoða eignina Fálkahlíð 5 (226)
Bílastæði
Opið hús:20. feb. kl 17:00-17:30
Fálkahlíð 5 (226)
102 Reykjavík
120.2 m2
Fjölbýlishús
413
998 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Fálkahlíð 3
Bílskúr
Bílastæði
Skoða eignina Fálkahlíð 3
Fálkahlíð 3
102 Reykjavík
144.2 m2
Fjölbýlishús
413
831 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin