Fasteignaleitin
Skráð 26. feb. 2026

Skipholt 1 (503)

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
82.7 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
102.900.000 kr.
Fermetraverð
1.244.256 kr./m2
Kjartan Ísak Guðmundsson
Löggiltur fasteignasali
https://miklaborg.isEignalisti
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2522307
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Miklaborg kynnir í einkasölu: Íbúð 503, rúmgóða 3ja herbergja íbúð í fallegu enduruppgerðu lyftuhúsi í útjaðri miðborgarinnar. Inngangur frá svalagangi. Forstofa með góðum skápum, Tvö svefnherbergi 15,8 fm og 8,1 fm. Stórt bjart alrými með útgengi á 12,8 fm suðursvalir. Baðherbergi með sturtu og þvottaaðstöðu. Harðparket á gólfum og innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Sjálf íbúðin er 73 fm og geymsla í kjallara 9,7 fm. Einstakar sameiginlegar þaksvalir á 5. hæð. Örstutt eða í göngufæri við matvöruverslun og niður á Hlemm sem er að umbreytast í grænt og vænt almenningsrými.

Allar nánari upplýsingar veitir Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is

Skipholt 1 er glæsileg endurbygging á frábærum stað í hjarta Reykjavíkur á horni Stórholts og Skipholts mót hásuðri. Í reisulegu húsi þar sem Listaháskóli Íslands var starfræktur í áratugi hafa nú verið innréttaðar 34 heillandi íbúðir og tvö atvinnurými. Einstakar sameiginlegar þaksvalir á 5.hæð hússins auka lífsgæði allra íbúa, en þar er sólríkt og magnað útsýni til sjávar og fjalla.

HAF studio kom að hönnun og efnisvali í íbúðirnar. Allar íbúðir afhentast fullbúnar með 8mm harðparketi frá Agli Árnasyni , og innbyggðum ísskáp og uppþvottavél frá AEG.

Innréttingar koma frá GKS, flísar frá Harðviðarvali, hurðar frá Agli Árnasyni, blöndunartæki í eldhúsi og baðherbergi eru frá Grohe, sturtutæki eru einnig frá Grohe, salerni eru með hæglokandi setum, heimilistæki eru frá AEG (ofn, helluborð, innbyggður ísskápur, vifta með kolafilter og uppþvottavél) Hefðbundið ofnakerfi er á íbúðum með hitastýribúnaði frá Danfoss.

Á bak við húsið er heillandi og skjólgóður inngarður hannaður af Hermanni Ólafssyni landslagsarkitekt.

Þar kallast fjölbreyttur gróður á við hellur og útskorið malbik sem myndar göngustíg sem liðast eins og lækur eftir garðinum. Pollaljós og garðljós gefa fallega birtu. Innst til hægri er upplyft hellulagt dvalarsvæði.

Hér er allt sem þarf fyrir nútímalegan miðborgarlífsstíl. Fjöldi veitingastaða og fjölbreytt þjónusta í stuttu göngufæri að ógleymdri útivistarperlunni Klambratúni.

Íbúar í Skipholti eiga rétt á íbúakorti og mega þá leggja í gjaldskyldum stæðum á svæði H á myndinni (sjá mynd í myndasafni) auk þess sem fullt er af ógjaldskyldum stæðum td í Skipholtinu. Íbúakortið kostar kr. 1.400- á mánuði fyrir rafmagns og vetnis bifreiðar, en kr. 2.800 fyrir aðrar tegundir bifreiða.

Sjá upplýsingar á heimasíðu verkefnisins https://skipholt1.is/ . Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á.


Allar nánari upplýsingar veitir Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (14)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Garðatorg 4
Bílastæði
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
Skoða eignina Garðatorg 4
Garðatorg 4
210 Garðabær
101 m2
Fjölbýlishús
312
890 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Eskivellir 9B
Skoða eignina Eskivellir 9B
Eskivellir 9B
221 Hafnarfjörður
84.8 m2
Fjölbýlishús
312
765 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10b
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
garden.jpg
Skoða eignina Hafnarbraut 10b
Hafnarbraut 10b
200 Kópavogur
62.4 m2
Fjölbýlishús
211
1074 þ.kr./m2
66.990.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10b
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
garden.jpg
Skoða eignina Hafnarbraut 10b
Hafnarbraut 10b
200 Kópavogur
127.1 m2
Fjölbýlishús
423
936 þ.kr./m2
118.990.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin