Fasteignaleitin
Skráð 20. ágúst 2026

Akrakór 10

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-203
311.9 m2
8 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
220.000.000 kr.
Fermetraverð
705.354 kr./m2
Brunabótamat
153.700.000 kr.
Byggt 2008
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
23078332
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Borg fasteignasala kynnir glæsilegt einbýlishús að Akrakór 10, Kópavogi.  Um er að ræða vel hannað hús á tveimur hæðum. Arkitekt hússins er Helgi Hjálmarsson.  Eignin er skráð 311.9 fm. að stærð.  Húsið er fallegt og sérlega vel skipulagt með mikilli lofthæð í flestum rýmum og gólfhita. Sérsmíðaðar innréttingar eru í öllu húsinu og innfelld lýsing víða í loftum. Öll rými eru rúmgóð og frá borðstofu er útgengt á stóran afgirtan pall.   Svefnherbergin (5-6) eru rúmgóð og er fataherbergi staðsett inn af hjónaherbergi. Eignin skiptist í efri hæð.  Forstofa, gestasnyrting, svefnherbergi/skrifstofa  stór stofa og stórt eldhús. 
Neðri hæð.  Sjónvarpsrými/stofa. Hjónaherbergi, 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi og þvottaherbergi.  Rúmgóður, 40 fermetra bílskúr. 


Lóðin er 894,0 fermetrar að stærð. Heimreiðin er rúmgóð fyrir framan hús og rúmar margar bifreiðar. Það á eftir að helluleggja eða steypa heimreið.  Útgengi úr borðstofu á stóra viðarverönd sem er afgirt. 

Nánari lýsing:
Gengið er inn á efri hæð. 
Efri hæð
Forstofa: Flísar á gólfi, skápar, aukin lofthæð og innfelld lýsing.
Skrifstofa/svefnherbergi. Rúmgott 16,9  fm herbergi. Parket á gólfi. 
Gestasnyrting: Með flísum á gólfi og veggjum. Salerni, vaskur. 
Stofa/ Borðstofa: Er rúmgóð með flísum á gólfi og mikilli lofthæð. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Innfelld lýsing í loftum.  Útgengi á verönd frá borðstofu.
Verönd / pallur: Útgengt er út á glæsilegan 100 fm pall með pergúlu, kofa og smíðuðum hornbekk.  
Eldhús: Með flísum á gólfi og afar fallegri sérsmíðaðri eldhúsinnréttingu með stórri eyju og tækjaskáp. Stál bakaraofn, háfur, stórt helluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Aukin lofthæð, innfelld lýsing í loftum. Eldhús er opið við alrými (stofur).
Neðri hæð.
Sjónvarpsherbergi/stofa. Flísar á gólfum. Mjög rúmgott opið rými. 
Tvö baðherbergi: Annað inn af hjónaherbergi.  Það er ekki fullbúið en búið er að flísaleggja. Hitt er með með flísum á gólfi og veggjum. Sérsmíðaðar innréttingar og  innfelld lýsing. Baðkar með sturtutækjum og rúmgóð flísalögð sturta. 
Hjónaherbergi: Með parketi á gólfi og innfelldri lýsingu í loftum. 
Fataherbergi: Er staðsett inn af hjónaherbergi.
Svefnherbergi 1: Er Rúmgott með parketi á gólfi, skáp. 
Svefnherbergi 2: Er rúmgott, með parketi á gólfi og góðu skápaplássi.
Svefnherbergi 3 og 4.  Eru hvort um sig í kringum 8 fm. Liggja samsíða og auðvelt að sameina þau í eitt stórt. Parket á gólfum. 
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi og góðri innréttingu (hækkun undir þvottavél og þurrkara). Flísalögð sturta, vaskur og útloftun.
Bílskúr: Er 40 fermetrar að stærð. Inngengt frá forstofu.  Innrétting, vaskur (heitt/kalt vatn).

Nánari upplýsingar veita : 
Úlfar Þór Davíðsson, í síma 788-9030, tölvupóstur ulfar@fastborg.is
Börkur Hrafnsson , í síma 8924944, tölvupóstur borkur@fastborg.is.

Með undirritun sinni á þetta söluyfirlit staðfestir seljandi/seljendur að efni þess sé rétt samkvæmt hans/þeirra bestu vitund. Kaupandi/kaupendur staðfestir/staðfesta með áritun sinni á þetta söluyfirlit að hann/þeir/þau hafi kynnt sér efni þess.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Melás 7
Bílskúr
Skoða eignina Melás 7
Melás 7
260 Reykjanesbær
305.8 m2
Einbýlishús
7
360 þ.kr./m2
110.000.000 kr.
Skoða eignina Skrúðás 8
Heitur pottur
Opið hús:26. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Skrúðás 8
Skrúðás 8
210 Garðabær
258 m2
Einbýlishús
625
814 þ.kr./m2
210.000.000 kr.
Skoða eignina Hulduholt 5
Heitur pottur
Opið hús:22. ágúst kl 12:00-14:00
Skoða eignina Hulduholt 5
Hulduholt 5
603 Akureyri
150.7 m2
Raðhús
523
762 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Hulduholt 7
Bílskúr
Heitur pottur
Opið hús:22. ágúst kl 12:00-14:00
Skoða eignina Hulduholt 7
Hulduholt 7
603 Akureyri
180.4 m2
Raðhús
523
720 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin