Fasteignaleitin
Skráð 21. okt. 2026

Eyrarholt 12

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
75.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
63.900.000 kr.
Fermetraverð
845.238 kr./m2
Fasteignamat
57.050.000 kr.
Brunabótamat
45.400.000 kr.
Byggt 1991
3. hæð · efsta
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2223638
Landnúmer
120326
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Gallar
Gat á baðherb hurð. Skápur fjarlægður inn í svefnherbergi - gólfefni vantaði undir skáp. Móða í gleri í sameign. 
*** Eyrarholt 12, Hafnarfjörður 220 ***

PRIMA Fasteignsala og Oliver Bergmann lögg.fasteignasali kynna: 
fallega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 3. hæð með góðri lofthæð í snyrtilegu fjölbýli. Eignin skiptist í alrými með opnu eldhúsi, borðstofu/stofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi, þvottarými og geymsla (er á hæð sem er ekki inn í fermetratölu). Sameign er vel um gengin og snyrtileg. Þrjár íbúðir eru í stigagangi, íbúðin er skráð skv. fmr 75,6 fm. 

SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA SKOÐUN / FÁ SENT SÖLUYFIRLIT

Nánari lýsing: 
Forstofa er með parketi og fatahengi.
Herbergi I parketi á gólfi. 
Herbergi II er rúmgott og bjart með góðum fataskáp, parket á gólfi. 
Baðherbergi er flísalagt að hluta með sturtu og hvítri innréttingu með góðum hirslum. 
Stofa og borðstofa er parketlögð með útgengi út á norður svalir og er einstaklega fallegt útsýni til sjávar. 
Eldhús er opið með góðri innréttingu, span helluborði og eyju. Uppþvottavél fylgir með. Parket á gólfi
Þvottaherbergi/ geymsla er á stigapalli við hliðina á inngangi íbúðar.
Einnig er sér geymsla í kjallara.

Upplýsingar um viðhald á eigninni:
-          Múrviðgerðir á svölum 2026.
-          Þakjárn málað 2023.
-          Múrviðgerðir á heilareigninni þar sem þurfti. (2020)
-          Húseignin var máluð 2020 og þar með talið stein, tréverk og þak. Hluti þaks var endurneglt.
-          Skipt var um gler í sameign og á fyrstu hæð sumarið 2020.
-          Skipt var um gler og opnanleg fög á austurhlið íbúðar ca. 2016
-          Sameign var máluð fyrir ca 10 árum síðan.

Mjög falleg og rúmgóð eign þar sem hátt er til lofts. Eign í góðu hverfi sem vert er að skoða, stutt er í grunn- og leiksskóla og miðbær Hafnarfjarðar er í göngufæri. 


Nánari upplýsingar veitir:
Oliver Bergmann löggiltur fasteignasali / s. 787 3505 / oliver@primafasteignir.is


__________________________________________________________________________________________


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
11/12/202034.200.000 kr.38.000.000 kr.75.6 m2502.645 kr.Já
12/09/201518.800.000 kr.24.500.000 kr.75.6 m2324.074 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringhamar 6
uti1.jpeg
Skoða eignina Hringhamar 6
Hringhamar 6
221 Hafnarfjörður
88,9 m2
Fjölbýlishús
312
764 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 56 (106)
412_02_MasterBedroom.jpg
Áshamar 56 (106)
221 Hafnarfjörður
92,1 m2
Fjölbýlishús
413
798 þ.kr./m2
73.500.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 6
uti1.jpeg
Skoða eignina Hringhamar 6
Hringhamar 6
221 Hafnarfjörður
75,6 m2
Fjölbýlishús
312
832 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 6
Hringhamar 5 Hluteildarlán.jpg
Skoða eignina Hringhamar 6
Hringhamar 6
221 Hafnarfjörður
82,3 m2
Fjölbýlishús
312
789 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin