Fasteignaleitin
Skráð 25. sept. 2022

SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia Resort

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
88 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
42.600.000 kr.
Fermetraverð
484.091 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
909240926
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Svalir, þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR Á HINUM VINSÆLA STAÐ Í SANTA ROSALIA:
*FLOTTAR ÍBÚÐIR MEÐ STÆÐI Í BÍLAKJALLARA – GLÆSILEGT RESORT*

Vandaðar og fallegar íbúðir á frábærum stað Í hinu nýja og glæsilega 700.000 fm., SANTA ROSALIA LAKE AND LIFE RESORT.
Hægt er að velja um íbúðir á jarðhæð með sér garði, miðhæðir með svölum eða efstu hæð með þakverönd. Glæsilegur sundlaugargarður.

Santa Rosalia stöðuvatnið er miðpunktur svæðisins og stærsta manngerða stöðuvatn í Evrópu, 16.000 fm. Þar er frábær aðstaða, sandströnd, eyja til að vaða út í, góð aðstaða fyrir vatnaíþróttir og ýmislegt fleira. Sjón er sögu ríkari. Á svæðinu er einnig ævintýra golfvöllur, frisbígolfvöllur, göngu-, skokk og hjólaleiðir, picknick svæði, jogasvæði, leikvellir fyrir börnin og ótal margt fleira skemmtilegt. Við vatnið og golfvöllinn er nýr og glæsilegur strand- og golfklúbbur, með veitingastöðum, ýmissi þjónustu og frábæru útsýni yfir vatnið. Einnig verður matvöruverslun á staðnum, en stutt er í litla bæi í kring með góðu úrvali af verslunum og veitingastöðum. Örstutt frá ströndinni og bátahöfninni (4 km. 15 mín. á hjóli) í Los Alcazares. Mar Menor golfvöllurinn er í göngufæri, en einnig eru fjölmargir fleiri golfvellir á svæðinu. Ca. 1 klst. akstur í suður frá Alicante flugvelli, 30 mín. akstur frá Corvera, nýja alþjóðlega flugvellinum í Murcia.


ALGJÖR NÝJUNG Á FASTEIGNAMARKAÐNUM Á SPÁNI. TILVALIÐ TÆKIFÆRI FYRIR FJÁRFESTA.
Fyrstu áfangar seldust upp á nokkrum dögum. Nýr áfangi er nú kominn í sölu, en þessar íbúðir eru að fara hratt.

Allar upplýsingar veita:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. 00354 893 2495,
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is. 0034  0034 615112869
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. karl@spanareignir.is. 00354 777 4277.


Nánari lýsing: 
Komið er inn í gott opið alrými þar sem er stofa, borðstofa og eldhús í opnu alrými með útgengi út á verönd.
Tvö eða þrjú svefnherbergi með góðum fataskápum og tvö baðherbergi.
Sérstæði í bílakjallara og geymsla.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.

Hægt er að fá íbúðirnar fullbúnar húsgögnum gegn vægu aukagjaldi, þannig að ekkert er eftir nema að kaupa í matinn og flytja inn.

Örstutt göngufæri er að Santa Rosalia lóninu, með frábærri sólbaðsaðstöðu, ströndum, og möguleika á ýmsum skemmtilegum vatnaíþróttum.
Ca. 15 mín. tekur að hjóla niður á á skemmtilegu göngugötuna í Los Alcazares, sem liggur niður á fallega sandströnd. Fjöldi verslana og veitingastaða eru þar á svæðinu. Meðfram ströndinni er margra kílómetra langt “promenade” sem býður upp á skemmtilega göngutúra. Glæsileg smábáta og snekkjuhöfn og fjölbreytt mannlíf. Fjölmargir vinsælir og skemmtilegir golfvellir eru í næsta nágrenni og hinn vinsæli Mar Menor er í göngufæri frá Santa Rosalia svæðinu.

Verð (gengi 1EVRA=145ISK)
3ja herb. íbúð (Tvö svefnherbergi + tvö baðherbergi): verð frá 293.900 Evrum (42.600.000ISK) + kostn. við kaupin.
4ra herb.  íbúð á jarðhæð með sér garði eða penthouse íbúð með sér þaksvölum (þrjú svefnherbergi + tvö baðherbergi): verð frá 369.900 Evrum (53.600.000ISK) + kostn við kaupin
 
Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar 2026.

Los Alcazares, sem er í næsta nágrenni, er ekta spænskur strandbær með fjölbreyttu bæjarlífi, útimarkaði og götuhátíðum og gefst hér einstakt tækifæri til að eignast vandaðaða eign með nútímaþægindum í sjarmerandi spænsku umhverfi. Skólar og heilbrigðisþjónusta í næsta nágrenni.
Los Alcazares stendur við Mar Menor, lítið innhaf frá Miðjarðarhafinu, og er þar mikil veðursæld. Að meðaltali eru þar um 305 sólardagar, 30 skýjaðir og 30 rigningardagar á ári.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: strönd, ný eign, sér garður, verönd, golf, sundlaugargarður, 
Svæði: Costa Calida, Los Alcazares, Santa Rosalia, Mar Menor,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
909240926

Myndir (20)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Flugvellir 15
Skoða eignina Flugvellir 15
Flugvellir 15
230 Reykjanesbær
100 m2
Atvinnuhúsn.
350 þ.kr./m2
35.000.000 kr.
Skoða eignina Bogaslóð 4
Skoða eignina Bogaslóð 4
Bogaslóð 4
780 Höfn í Hornafirði
123.3 m2
Hæð
413
401 þ.kr./m2
49.500.000 kr.
Skoða eignina Kaplaskjólsvegur 89
IMG_8699.JPG
Kaplaskjólsvegur 89
107 Reykjavík
51 m2
Fjölbýlishús
211
1069 þ.kr./m2
54.500.000 kr.
Skoða eignina Búðarstígur 0
Skoða eignina Búðarstígur 0
Búðarstígur 0
820 Eyrarbakki
258.6 m2
Fjölbýlishús
635
370 þ.kr./m2
95.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin