BYR fasteignasala kynnir í einkasölu HLÉSKÓGAR 10 EFRI HÆÐ, 700 Egilsstaðir. Sex herbergja efri hæð í tvíbýlishúsi, sér inngangur. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar. Gott útsýni, stutt frá leikskóla.
Húsið stendur við lítinn botnlanga, stutt í alla almenna þjónustu s.s. skóla og leikskóla.
Smellið hér fyrir staðsetningu.Húsið er steypt, byggt árið 1979. Eignin er íbúð 160.0 m² bílskúr 64,4 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, baðherbergi, fimm svefnherbergi, sjónvarpshol, stofa, borðstofa, eldhús og þvottahús. Tveir bílskúrar, gróðurhús og garðhús.
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |Nánari lýsing: Anddyri flísar á gólfi, fataskápur og skóskápur, frá anddyri er gengið inn í forstofuherbergi, þvottahús og gang sem liggur að öðrum rýmum.
Forstofuherbergi, plastparket á gólfi, tvöfaldur fataskápur.
Baðherbergi, flísar á gólfi, vaskinnrétting, salerni, baðkar og flísalögð sturta.
Herbergi I, tvöfaldur fataskápur, dúkur á gólfi,
Herbergi II, hjónaherbergi, fataskápur vegg í vegg, með snyrtiborði fyrir miðju, dúkur á gólfi.
Herbergi III, tvöfaldur fataskápur, parket á gólfi, vegghengt vinnuborð, föst hillusamstæða, notað sem vinnuherbergi í dag.
Herbergi IV, parket á gólfi, hilluskápur.
Sjónvarpshol afstúkað með viðarhillueiningu. Dagstofa með arinstæði. Útgengt á suður svalir úr dagstofu. Salir eru með glervegg á austurhlið.
Borðstofa er inn af dagstofu. Þaðan er gengið inn í eldhús.
Eldhús, sérsmíðuð innrétting, spanhelluborð og vifta, ofn í vinnuhæð, pláss fyrir uppþvottavél, ísskáp og örbylgjuofn/auka ofn í innréttingu, borðkrókur.
Í alrými, gangi og stofum er viðarparket. Í eldhúsi er harðpaket á gólfi.
Frá eldhúsi er gengið inn í þvottahús.
Þvottahús, sérsmíðuð innrétting með efri skápum. Gott vinnuborð og stálvaskur. Pláss fyrir tvær vélar. Handklæðaofn, hillur og skápur. Frá þvottahúsi er gengið inn í anddyri hússins.
Bílskúr, steypt gólf, rafmagnstafla hússins.
Nánari upplýsingar í söluyfirliti.
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |Hléskógar 10 er tvíbýlishús á tveimur hæðum. Húsið er steypt, litað járn á þaki, timburgluggar og hurðar.
Nánari upplýsingar í söluyfirliti.
Hellulögð stétt með hita, liggur framan við hús að stiga og bílskúr.
Lóð er gróin. Timburverönd er aftan við húsið til suðurs (sérnotaflötur neðri íbúðar).
Lóð er í óskiptri sameign beggja íbúða,
gróðurhús og garðhús á lóð tilheyrir íbúð á efri hæð.Lóðin er 1390.0 m² leigulóð í eigu Múlaþings, lóðarleigusamningur til 50 ára frá 9.3.2026, skjal nr. 446-E-000196/2026.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 217-5714. Hléskógar 10, Múlaþing.Stærð: Íbúð 160 m². Bílskúr 64,4 m².
Brunabótamat: 106.350.000kr.
Fasteignamat: 73.300.000 kr.
Byggingarár: 1979.
Byggingarefni: Steypa.
Eignarhald:
01-0201- Séreign. Rými 01.0101, Íbúð 160 m². Brúttó m².Landeignanúmer: 157761. Notkun Íbúðarhúsalóð 1.390,0 m².