BYR fasteignasala kynnir í einkasölu HAFNARGATA 18C, 710 Seyðisfjörður.
Einbýlishús á einni hæð, húsið stendur innst við lítin botnlanga. Opið svæði og Búðareyrarfoss nánast í bakgarðinum.
Smellið hér fyrir staðsetningu. Húsið er timburhús, byggt árið 1967, samtals 92.6 m² að stærð samkvæmt fasteignayfirliti HMS.
Skipulag: Forstofa, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, hol, tvö herbergi, baðherbergi og þvottahús.
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |Einbýlishús á einni hæð við smábátahöfnina . Komið er í forstofu með flísum , fatahengi. Þvottahús með flísum , innrétting með þvottavél og þurrkara , gluggi . Tvö svefnherbergi með parketi og fataskápum . Opið eldhús með eldunareyju , helluborð og vifta , ágæt innrétting , uppþvottavél , vaskur við útsýnis glugga . Stofa og borðstofa með parketi , gengt er út á skjólgóðan sólpall .
Nánari lýsing: Forstofa, flísar á gólfi, tvöfaldur fataskápur, rafmagnstafla, þaðan er lúga upp á loft með fellistiga.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, parket á gólfi í stofu og borðstofu, þaðan er
útgengt út á timburverönd.
Eldhús, flísar á gólfi, innrétting með eyju, helluborð í eyju, háfur yfir eyju. Ofn í vinnuhæð, gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu (getur mögulega fylgt).
Herbergi I,
hjónaherbergi, parket á gólfi, fataskápur.
Herbergi II, parket á gólfi, fataskápur.
Hol er innan við forstofu, flísar á gólfi.
Baðherbergi, flísar á gólfi og upp á hálfan vegg að hluta, handlaug á borði, upphengt salerni, hornbaðkar og sturtuklefi, skápur, handklæðaofn og gluggi.
Þvottahús, flísar á gólfi, innrétting fyrir tvær vélar, vaskur og gluggi.
Hafnargata 18C er timburhús á einni hæð, húsið er klætt að utan með flísum. Bárujárn á þaki, plastgluggar og hurðar, útidyrahurð úr timbri.
Möl er i bílastæði, steypt stétt og tröppur að inngangi, Timburverönd er til hliðar og aftan við húsið. Lóð rennur saman við óbyggt svæði aftan við húsið, náttúrulegur gróður.
Lóð er 427.0 m² að stærð, leigulóð í eigu Múlaþings, lóðarleigusamningur er ótímabundinn, skjal nr. 426-F-000254/ZII.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer F2168555 Hafnargata 18C, Múlaþing.Stærð: Íbúð 92.6 m².
Brunabótamat: 45.800.000 kr.
Fasteignamat: 26.850.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2027: 26.100.000 kr.
Byggingarár: 1967.
Byggingarefni: Timbur.
Eignarhald:
01.2- Séreign. Rými 01.0101 Íbúð á hæð 92.6 Brúttó m².
Landeignanúmer: L155097. Notkun Íbúðarhúsalóð. Stærð 427.0 m²