Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.is
Keilusíða 12 - Björt og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á góðum stað í Síðuhverfi - stærð 51,2 m².Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og sér geymslu í kjallara
Nánari lýsing:Forstofan er með parketi á gólfi og góðum fjórföldum fataskáp.
Stofan er björt með parketi á gólfi og góðum glugga og útsýni í vestur. Úr stofu er gengið út á mjög rúmgóðar vestur svalir.
Eldhúsið er með parketi á gólfi, hvítri U-laga innréttingu með flísum á milli skápa, stæði fyrir ísskáp og góðu skápa- og vinnuplássi.
Svefnherbergið er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergið er með dökkum flísum á gólfi og hluta veggja, baðkari með sturtutækjum, wc, handlaug, efri skápum og tengi fyrir þvottavél.
Sér geymsla er í kjallara um 5 m², einnig eru rúmgóð sameignarými í kjallara.
Annað:- Björt og vel skipulögð íbúð þar sem fermetrar nýtast afar vel
- Rúmgóðar svalir eru til vesturs með góðu útsýni
- Vel staðsett eign í Síðuhverfi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla
- Mynddyrasímakerfi var sett upp í júlí 2026
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.