Gimli fasteignasala og Ólafur B Blöndal löggiltur fasteignasali kynna:
NJÖRVASUND 22 - STÓRGLÆSILEG EFRI HÆÐ Í FALLEGU ÞRÍBÝLI ÁSAMT BÍLSKÚR
Um er að ræða íbúð sem árið 2022 var öll tekin í gegn og endurnýjuð og má þar nefna:
Öll gólfefni, raflagnir, skápar, hurðir, allt nýtt á baði, allt nýtt í eldhúsi, allir fataskápar, sólbekkir og fl. og er allt gert á vandaðan hátt hvað varðar frágang og elfnisval ásamt því að allt var unnið af iðnaðarmönnum.
Þakið var endurnýjað fyrir ca. 2 árum. Allir gluggar og gler eru síðan 2016. Skólplagnir í góðu standi, rör úr pottjárni. Dren endurnýjað í lok 2021.
Húsið er allt nýmúrviðgert að utan og málað, Stigagangur nýmálaður og nýleg teppi
NÁNARI LÝSING:
Íbúðin er skráð 98,1 fm og er þar af geymsla í kjallara 6,2 fm og bílskúrinn er 28 fm. hægra megin við innkeyrsluna.
Sameiginlegur innagngur. Mjög fallegur og bjartur bogadreginn steyptur stigi með fallegu handriði upp á stigapall.
Íbúðin: Stórt og bjart miðjuhol með parketi og skápum og er þaðan gengið í allar vistarverur íbúðarinnar.
Stofan er mjög rúmgóð og björt með parketi og fallegum útskotsglugga og nýtist hún sem setu- og borðstofa.
Eldhúsið er mjög glæsilegt, hvítlökkuð innrétting, vönduð tæki, ljósar granítborðplötur og eyja með skápaplássi.
Útgengt á suðursvalir úr eldhúsi/stofu.
Baðherbergið er allt mjög glæsilegt og var það stækkað við standsetningu. Flísalagt í hólf og gólf, innrétting með speglaskápum, vegghengt salerni, "walk in " sturta, tengt fyrir þvottavél og þurrkara, gluggi.
Hjónaherbergið er rúmgott með parketi og fataskápum.
Barnaherbergin eru tvö og er annað mjög rúmgott og hitt minna en nýtist vel, bæði með parketi.
Mjög fallegt útsýni er víða úr íbúðinni til fjalla í austri.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Björn Blöndal Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali, í síma 6900811, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til olafur@gimli.is
Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnaði því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.