Fasteignaleitin
Opið hús:10. sept. kl 17:00-17:30
Skráð 8. sept. 2026

Álftamýri 56

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
132.7 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
92.900.000 kr.
Fermetraverð
700.075 kr./m2
Fasteignamat
83.400.000 kr.
Brunabótamat
62.310.000 kr.
IF
Irpa Fönn Hlynsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Húsið er eftir

Íslenskur módernismi og funkis.

Kemur fram í lýsingu eignarinnar.
Byggt 1963
3. hæð
Garður
Svalir
Bílskúr
Fasteignanúmer
2014325
Landnúmer
103697
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Endurnýjaðir
Þak
endurnýjað að hluta, 2013
Svalir
Byggingarstig
B4 - Fullgerð bygging
Gallar
Geislahitun

KAUPSTAÐUR fasteignasala kynnir í einkasölu ÁLFTAMÝRI 56 ÍBÚÐ 303, 108 Reykjavík.

Fimm herbergja íbúð á þriðju hæð ásamt bílskúr.

Vinsæl staðsetning miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu, húsið er hannað af Sigvalda Thordarsyni arkitekt.

Stutt í skóla, leikskóla, almenna þjónustu og ýmiss konar afþreyingu.

Birt stærð eignar er 132.7m² þar af íbúð 109.6 m² og bílskúr 23.1 m² samkvæmt fasteignayfirliti HMS.

SMELLTU HÉR FYRIR SÖLUYFIRLIT, ÖNNUR SKJÖL OG TILBOÐISGERÐ.

Skipulag íbúðar: Anddyri/hol, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, fjögur herbergi og baðherbergi með þvottahúsi inn af, geymsla.

Í sameign: Sér geymsla, anddyri, stigahús, sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi, hjóla- og vagnageymsla.

ÍBÚÐ:

Anddyri/hol, fataskápur yfir heilan vegg, flísar á gólfi.

Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, harðparket á gólfi í stofu, flísar í eldhúsi, útgengt er úr stofu út á suðursvalir.

Eldhús, innrétting með eyju, helluborð og ofn, innbyggður ísskápur og uppþvottavél í innréttingu (fylgir).

Herbergi I, hjónaherbergi, fjórfaldur fataskápur, harðparket á gólfi.

Herbergi II, harðparket á gólfi.

Herbergi III, harðparket á gólfi.

Herbergi IV (við anddyri), harðparket á gólfi (herbergið var áður eldhús íbúðar).

Baðherbergi, vaskinnrétting, upphengt salerni og "walk in sturta, þvottahús er inn af baðherbergi.

Þvottahús, pláss fyrir tvær vélar, flísar á gólfi.

Geymsla er inn af anddyri, þar er greinatafla íbúðar.

2019 var allar innihurðar endurnýjaðar og skipt um gólfefni, ný eldhúsinnrétting og tæki. 2021 var baðherbergi tekið í gegn. Flísalagt í holi og eldhúsi 2024.

Sér geymsla íbúðar 10.7 m² að stærð er í sameign.

Bílskúr, 23.1 m² í bílskúrslengju, steypt gólf, heitt og kalt vatn, rafmagn, gryfja er í bílskúr.

ÁLFTAMÝRI 54-58 er steypt fjöleignarhús á fjórum hæðum. Húsið er málað að utan, járn á þaki. Timburgluggar og hurðar.Malbikað bílaplan er við húsið, bílastæði eru í sameign. Lóð er sameiginleg gróin/frágengin, steypt stétt með hitalögn og tröppur liggja að anddyri hússins.

Álftamýri 54–58 í Reykjavík er þekkt fjölbýlishús, húsið þykir gott dæmi um íslenskan módernisma og ber húsið mörg af hans helstu einkennum. Stórir gluggar, björt rými og einkennandi litasamsetningu að utan (svokölluðum Sigvaldalitum). Húsið stendur á frábærum og grónum stað í Háaleitis- og Múlahverfinu (108 Reykjavík), rétt við hliðina á Álftamýrarskóla og íþróttavæði Víkings, Kringlan er í göngufæri.

Húsfélag er starfrækt í húsinu. Skipulagi íbúðar hefur verið breytt frá upprunalegu skipulagi.

Á undanförnum árum hefur ýmislegt verið endurnýjað að utanverðu. Þak var endurnýjað að hluta árið 2013. Árið 2014-2015 var farið í viðgerðir og málun á ytra byrði hússins. skipt hefur verið um alla glugga íbúðar.

Lóð er 4.304 m² eignarlóð, landeignanúmer 111528, lóðarleigusamningur til 75 ára frá 3. mars 1961.

Samkvæmt eignarskiptasamning Safamýri 54-58. Álftamýri 56. Eignin er íbúð á þriðju hæð merkt 0304, eigninni fylgir geymsla í kjallara merkt-136. Eigninni fylgitr bílskúr í matshluta 02 merktur 0105. Hlutfallstölur eru: 1. Í sameign allra í matshluta 01 3,25%. 2. Í samign allra í lóð 3,44%. 3. Í hitakostnaði 3,04%. 4. Í bílskúrslengju 5,53%. 5. Í hitakostnaði bílskúrs 5,50%.

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður

Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Svarað er í síma milli kl. 09:00-16:00.

Nánari upplýsingar í síma 454-0000 eða kaupstadur@kaupstadur.is

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
16/11/201873.200.000 kr.44.500.000 kr.132.7 m2335.342 kr.
28/01/200921.120.000 kr.1.500.000 kr.210.4 m27.129 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1968
23.1 m2
Fasteignanúmer
2014325
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Byggingarstig
B4 - Fullgerð bygging
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.360.000 kr.

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Galtalind 16
Bílskúr
Efsta hæð
Hleðslustöð
Skoða eignina Galtalind 16
Galtalind 16
201 Kópavogur
141.6 m2
Fjölbýlishús
413
Fasteignamat 97.050.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Haustakur 2
Hleðslustöð
Opið hús:15. sept. kl 17:00-17:30
móa_vefur (15).png
Skoða eignina Haustakur 2
Haustakur 2
210 Garðabær
146.2 m2
Fjölbýlishús
413
834 þ.kr./m2
121.900.000 kr.
Skoða eignina Kleppsvegur 46
3D Sýn
Opið hús:14. sept. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Kleppsvegur 46
Kleppsvegur 46
105 Reykjavík
100.9 m2
Fjölbýlishús
512
792 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Gnoðarvogur 38
3D Sýn
Skoða eignina Gnoðarvogur 38
Gnoðarvogur 38
104 Reykjavík
63.7 m2
Fjölbýlishús
211
934 þ.kr./m2
59.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin