Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Glæsilegt einbýlishús með bílskúr og stórum garði á besta stað í Þingholtunum í Reykjavík. Húsið hefur verið í eigu aðeins tveggja aðila frá því það var byggt árið 1931. Árið 1984 létu núverandi eigendur byggja við húsið sem reiknast núna ca. 370 m2. Viðbyggingin er vel heppnuð og rímar fullkomlega við útliti hússins.
Eigninni er vel við haldið í gegnum árin, að innan sem utan. Lóðin og garðurinn eru sérstök, með fjölbreytilegum tegundum trjáa og plantna ásamt veröndum sem bjóða upp á að elta sólarsvæðin á fallegum sumardögum. Lóðin er í raun eins og sannkölluð ævintýraveröld. Fallegur sólskáli er skemmtilegur griðastaður sumar og vetur.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Berglind Hólm löggildur fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is
Nánari lýsing eignar:Húsið er þrjár hæðir, jarðhæð, efri hæð og kjallari. Á jarðhæðinni eru þrjú skemmtileg stofurými, eldhús, gestasalerni og forstofa. Á efri hæðinni eru þrjú rúmgóð svefnherbergi, fallegt baðherbergi og vinnurými. Frá vinnurýminu er opið yfir eina af stofum jarðhæðarinnar, einskonar svalir innanhúss. Í kjallaranum eru tvö mjög stór svefnherbergi ásamt rúmgóðu þvottaherbergi sem er með auka sturtuaðstöðu. Bílskúrinn er sérstæður og nýttur í dag sem vinnustofa. Fyrir framan bílskúrinn er einkastæði á lóð.
Nánari lýsing innan húss:
Jarðhæð:Forstofa: Komið er inn í góða forstofu með Ítölskum travertinemarmaraflísum á gólfi og fallegum fataskápum.
Gestasalerni: Inn af forstofu er fallegt endurnýjað gestasalerni með upphengdu salerni, einingu með ofaná liggjandi vaski og opnanlegum glugga.
Móttökustofa og sólstofa: Þegar komið er inn úr forstofunni er komið inn í mjög rúmgott tvískipt stofurými. Fyrst er komið inn í einskonar móttökustofu með góðum glugga sem snýr í átt að Smáragötunni. Þaðan er svo gengið niður nokkur þrep niður í mjög rúmgóða sólstofu með mikilli lofthæð, sem nær alveg upp í þak hússins, rúma 5 metra. Stórir gluggar og rennihurð vísa að garðinum og út á veröndina, sem snýr í suðurátt. Travertineflísar eru á gólfum.
Setustofa: Þegar komið er innar í móttökustofuna tekur við tvískipt rými, sem rúmar setustofu og borðstofu. Setustofan er inn af borðstofunni með fallegum gluggum og teppi á gólfi.
Borðstofa: Borðstofan er milli setustofunnar og eldhússins. Borðstofan er einkar rúmgóð með marmaraflísum á gólfi og fallegum hlöðnum arni. Gluggar eru í tvær áttir. Á milli eldhúss og borðstofu er tvöföld frönsk vængjahurð.
Eldhús: Eldhúsið er rúmgott með miklu skápaplássi. Innrétting er sérsmíðuð og liggur að fjórum veggjum. Setukrókur er við hluta af innréttingunni, bakaraofn er í vinnuhæð og gluggar eru á tvo vegu.
Geymsla: Á hæðinni er lítil geymsla við stigann upp á efri hæðina, en einnig er gott geymslurými og hillur í rýminu þar sem gengið er niður í kjallarann.
Efri hæð:Gengið er upp á efri hæð hússins um reisulegan stiga með teppi á þrepum sem liggur í fallegan boga á milli hæða. Við stigann eru 2 stórir steindir gluggar eftir listamanninn Leif Breiðfjörð.
Þegar komið er upp, er komið að holi sem leiðir að öllum rýmum hæðarinnar. Teppi er á holinu.
Baðherbergi: Baðherbergið er glæsilegt og nýlega endurnýjað með opnanlegum glugga. Fallegar ljósar flísar eru á gólfi og á hluta af veggjum. Salernisaðstaðan er stúkuð af í sérrými og hinum megin við þilið er stór sturta beint á gólf með glerskilrúmi og innbyggðum blöndunartækjum. Vaskaborð er hvítt með tveimur ofaná liggjandi vöskum, hillu undir og stórum spegil á vegg fyrir ofan vaskana. Á móti salerninu er stór og góður skápur með góðu hillu plássi.
Vinnustofa / sjónvarpsherbergi: Skemmtilegt og bjart vinnuherbergi er inn af holinu á efri hæðinni. Glersvalahandrið er í rýminu sem liggur yfir að sólstofunni, einskonar svalir yfir stofuna.
2 x svefnherbergi: Tvö stór svefnherbergi eru á hæðinni bæði með fallegum gluggum og parketi á gólfi. Í öðru herberginu eru mjög góðir fataskápar veggja á milli. Í hinu herberginu er gengið út á litlar svalir sem snúa að garðinum.
Fataherbergi: Mjög stórt og glæsilega innréttað fataherbergi er á hæðinni. Hér áður var það nýtt sem svefnherbergi og auðvelt er að breyta því til baka ef þörf er á fleiri svefnherbergjum.
Kjallari: Frá jarðhæðinni er gengið niður í kjallarann.
2 x svefnherbergi: Tvö stór svefnherbergi eru á neðri hæð hússins. Frá öðru svefnherberginu eru dyr sem leiða út í garðinn.
Þvottaherbergi + baðaðstaða: Stórt rými er á hæðinni sem rúmar rúmgott þvottaherbergi með góðri innréttingu og góðu skápaplássi. Inn af þvottaherberginu er baðaðstaða með sturturými og opnanlegum glugga.
Bílskúr: Bílskúrinn er sérstæður við hlið hússins. Fyrir framan skúrinn er einkabílastæði. Hægt er að fara inn í skúrinn bæði inn um bílskúrshurð á framhlið hans og einnig er inngönguhurð á hliðinni sem liggur að garðinum. Skúrinn er í dag nýttur sem vinnustúdíó.
Nytsamlegir punktar um hús, lóð og nágrenni við Smáragötu 4, 101 Reykjavík:Gunnlaugur Halldórsson arkitekt teiknaði húsið, sem byggt var 1931. Núverandi eigendur létu stækka og breyta húsinu 1984 . Árið 2018 voru vatnslagnir og baðherbergi endurnýjuð ásamt fleiru.
- Arkitekt viðbyggingar Ingimundur Sveinsson.
- Innanhússarkitekt Finnur P. Fróðason.
- Landslagsarkitekt Auður Sveinsdottir.
- Húsið er rétt um 370 fm, á 3 hæðum, 4 svefnherbergi, eitt fataherbergi (var áður svefnherbergi, auðvelt að breyta til baka), 1 baðherbergi, 1 gestasalerni, auka sturtuaðstaða inn af þvottaherbergi, 3 stórar stofur og rými, lofthæð 260 og mest 540 cm, listar í loftum, hurðir, gerefti, hurðahúnar og gólflistar upprunalegt frá 1931.
- Lóðin er ca 670 m2 og þar eru himinhá tré, sum voru gróðursett þegar húsið var byggt.
- Tehús, notað fyrir geymslu garðhúsgagna og verkfæra. 15 fm glerhús/studio síðan 2023. Bílskúr útbúinn sem málarastúdíó, með stórum glugga sem vísar að garðinum.-- Mikið fuglalíf og fjölbreyttur gróður einkenna umhverfið sem er afar skjólsælt.
- Þrestir, svartþrestir og aðrir smáfuglar verpa og halda til í garðinum þar sem vel hefur verið um þá hugsað.
- Smáragata er fáfarin einstefnugata, eignir þar skipta sjaldan um eigendur, aðeins 2 fjölskyldur hafa búið í Smáragötu 4 í yfir 96 ára sögu hússins.
- Staðsetningin er einstök.:Við enda götunnar í 5 mínútna fjarlægð eru Landsspítalinn, Flugrútan og Strætó (10 vagnar í allar áttir). Við hinn endann er Hljómskálagarðurinn og tjörnin, stutt í MR og Kvennaskólann.
- Að ganga í Hörpu, Mokkakaffi, Sundhöllina, Þjóðleikhúsið, BíóParadís og marga fleiri áhugaverða staði tekur 12 til 20 mínútur.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Berglind Hólm löggildur fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is