Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.isMelasíða 1 íbúð 202 - Rúmgóð og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýli í Síðuhverfi - stærð 82,2 m²Eignin skiptist í forstofu, stofu og eldhús í opnu rými, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og sér geymslu í sameign.
Nánari lýsing:Forstofan er með flísum á gólfi og fataskáp.
Stofan og eldhúsið eru í björtu opnu rými með ljósu parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á steyptar vestursvalir.
Eldhúsið er með ljósri innréttingu, flísum á milli skápa og stæði fyrir uppþvottavél.
Svefnherbergin eru tvö bæði með ljósu parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergið var endurnýjað árið 2021 og er með ljósri innréttingu, baðkari með sturtutækjum og glervæng, upphengdu wc og flísum á gólfi og veggjum.
Þvottahúsið er með máluðu gólfi og stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla er í kjallara.
Annað:- Baðherbergi var endurnýjað árið 2021.
- Stutt í verslanir við Norðurtorg.
- Stutt í líkamsræktina Bjarg.
- Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
- Góð staðsetning í göngufæri við leik- og grunnskóla.
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.