Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasali og Trausti fasteignasala kynna í einkasölu vel skipulagt einbýlishús á einni hæð við Nestún 2 í Stykkishólmi ásamt bílskúr. Um er að ræða frábærlega staðsett endahús með einstakt og óheft útsýni út á Breiðafjörðinn fagra og til fjalla. Stór, skjólsæll pallur sem vísar til suðurs með heitum potti og útisturtu býður upp á góða aðstöðu til útiveru. Eignin er skráð samtals 175,2 fm, þar af er íbúðarhlutinn 137,4 fm og bílskúr 37,8 fm. Íbúðarhúsið er byggt árið 1983 og bílskúr árið 2003 samkvæmt skráningu HMS. ATH! Seljandi er opinn fyrir skipti á minni eign í Stykkishólmi.
Eignin skiptist þannig: Forstofa:Góður fataskápur. Ný útidyrahurð. Flísar á gólfum og gólfhiti. Hol: Tengir saman helstu rými hússins. Parket á gólfum.. Eldhús: Nýlega uppgert með fallegri innréttingu í viðarlit. Veglegur háfur. Hiti í gólfum. Parket. Borðstofa: Björt og falleg með einstöku og óheftu útsýni. Útgengt á veglega verönd. Parket á gólfi. Hiti í gólfi. Stofa: Stórt og bjart alrými með stórum gluggum. Parket á gólfum. Svefnherbergi: Þrjú svefnherbergi. Öll björt og falleg með parketi á gólfi og góðu skápaplássi. Baðherbergi: Nýlega uppgert á vandaðan máta. Walk-in sturta me glerskilrúmi. Falleg viðar innrétting. Handklæðaofn. Flísar á gólfum. Hiti í gólfi. Þvottahús: Rúmgott þvottahús/geymsla með fínni hvítri innréttingu og góðu skápaplássi. Bílskúr: Sjálfvirkur hurðaopnari. Rúmgóður og upphitaður. Rennandi vatn. Lóð og útisvæði: Stór og skjólsæll sólpallur sunnan við húsið með góðu rými fyrir útihúsgögn og samveru. Suðurstaðan og hið óhefta útsýni setja sterkan svip á eignina og gera útisvæðið sérstaklega aðlaðandi. Heitur pottur og útisturta. Annað: Eignin hefur hlotið mjög gott almennt viðhald í gegnum tíðina og mætti segja að það hafi verið algjörlega verið tekið i gegn að innan. Ný gólfefni, nýjar innihurðir sem og útihurðir. Baðherbergi og eldhús gerð upp á vandaðan máta. Lóð er frágengin og við húsið er steypt stétt og upphitað bílastæði.
Hér er á ferðinni frábærlega staðsett, vel skipulögð fjölskyldueign á einni hæð með þremur svefnherbergjum og bílskúr. Einstakt útsýni og stór skjólsæll sólpallur sem vísar til suðurs með heitum potti og útisturtu eru meðal helstu kosta eignarinnar. Hér er sjón sannarlega sögu ríkari!

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.