Fasteignaleitin
Skráð 6. nóv. 2026

Timberhouse

EinbýlishúsNorðurland/Sauðárkrókur-550
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
Tilboð
Pallur
Fasteignanúmer
5505501
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Lóðarréttindi
Leigulóð
Timberhouse – nútímaleg timburhús, 48 m² – persónuleg hönnun og fjölbreyttir möguleikar -

www.timberhouse.is 


Domus Fasteignasala kynnir í samstarfi við Timberhouse spennandi hús þar sem stílhrein hönnun, hlýlegt yfirbragð og hagnýt rými fara saman. Í boði eru 48 m² timburhús, með tveimur svefnherbergjum, ásamt möguleikum á sérsniðnum lausnum út frá þörfum og óskum kaupanda.

Húsin eru hönnuð og framleidd í Póllandi með afhendingu til Íslands. Hugmyndafræði Timberhouse byggir á því að húsið taki mið af lóðinni, fyrirhugaðri notkun og lífsstíl þeirra sem þar ætla að dvelja. Hvort sem hugmyndin er að nýju heimili eða notalegum stað til að njóta frítímans er fyrsta skrefið að skoða möguleikana saman.

SMALL CABIN – um 48 m² með tveimur svefnherbergjum

Small Cabin er nett og hlýleg húsagerð þar sem góð nýting rýmis og einföld, nútímaleg hönnun eru í fyrirrúmi. Samkvæmt kynningarbæklingi skiptist húsið í tvö svefnherbergi, eitt baðherbergi og opið rými með stofu og eldhúsi.

Húsagerðin er kynnt sem valkostur bæði fyrir frístundanotkun og heilsársbúsetu. Fyrirhuguð notkun og staðsetning þurfa að samræmast skipulagi og tilskildum leyfum viðkomandi lóðar.

Í kynningargögnum er meðal annars lögð áhersla á hitaeinangrun, þrefalt einangrunargler og sveigjanlega innanhússhönnun. Gólfhiti er í boði sem hluti af viðeigandi útfærslu.

Afhending og val á frágangi

Fyrir Small Cabin er í boði grunnpakki sem inniheldur meðal annars forsmíðaða timburgrind, þakvirki, einangrun, vegguppbyggingu, glugga og útihurðir. Þá eru tilgreind efni fyrir raf-, vatns- og frárennslislagnir, loftræstibúnaður og nauðsynlegur festibúnaður samkvæmt efnislýsingu.

Grunnpakkinn er án fullnaðarfrágangs innanhúss. Grunnplata, jarðvinna, flutningur, samsetning á byggingarstað, innanhússfrágangur og verönd eða pallur eru sérliðir sem eru útfærðir og verðlagðir eftir verkefni.

Nákvæmt innihald tilboðs og afhendingarstig er skilgreint sérstaklega fyrir hvora húsagerð.

Þín hugmynd getur verið upphafið

Húsagerðirnar sýna dæmi um það sem Timberhouse býður upp á. Einnig er hægt að ræða sérsniðna hönnun með tilliti til lóðar, rýmisþarfa og persónulegra óska. Þannig má vinna áfram með fyrirliggjandi hugmynd eða móta nýja lausn í samráði við teymi Timberhouse.

Verð og nánari upplýsingar
Hafðu samband til að fá sundurliðað tilboð í þá húsagerð og það afhendingarstig sem hentar þínu verkefni.

Vefverð Timberhouse miðast við gengi pólska zlotysins, PLN, og geta breyst með gengisþróun. Þau eru án flutningskostnaðar, innflutningsgjalda, virðisaukaskatts og annarra staðbundinna skatta eða gjalda. Endanlegt verð, umfang afhendingar og afhendingartími eru staðfest í tilboði og samningi.

Nánari upplýsingar veita:

Domus Fasteignasala

Friðrik Halldór Brynjólfsson
Löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur
Sími: 662 8034 · Netfang: fridrik@domus.is

Stefán Ólafsson
Löggiltur fasteignasali, hrl.
Sími: 891 9425 · Netfang: sol@domus.is

Sigurður Pétur Stefánsson
Viðskiptafræðingur og nemi til löggildingar fasteignasala
Sími: 698 6971 · Netfang: siggi@domus.is

Timberhouse

Paweł Jakubowski
Sölustjóri og meðeigandi
Sími: +354 849 5329 · Netfang: pawel@timberhouse.is

Norbert Nowocin
Tæknistjóri og meðeigandi
Sími: +48 690 48 3003 · Netfang: norbert@timberhouse.is

Almennt netfang á Íslandi: iceland@timberhouse.is
Skoðaðu húsagerðirnar og frekari upplýsingar á timberhouse.is.

Húsamyndir eru hugmyndamyndir og geta sýnt útfærslur, innréttingar, palla og umhverfi sem eru ekki innifalin í tilboði. Endanlegt útlit, búnaður, stærðir og afhendingarstig ráðast af samþykktum teikningum, afhendingarlýsingu og samningi.

Hlutverk Domus og ábyrgð seljanda

Domus fasteignasala ehf. hefur milligöngu um kynningu og sölu þeirra húsa og húseininga sem þessi sölulýsing tekur til. Seljandi er Ideenfabrik ehf. sem selur undir heitinu Timberhouse, 580525-1280 til heimilis að Laugatúni 13 Sauðárkróki, hér eftir nefndur „seljandi“. Kaup- og afhendingarsamningur er gerður milli kaupanda og seljanda.

Kaupanda er sérstaklega bent á að Domus kemur eingöngu fram sem milliliður og er ekki samábyrgur seljanda vegna skyldna hans samkvæmt kaupsamningi, að því marki sem lög heimila. Domus er ekki seljandi, framleiðandi eða innflytjandi húsanna og tekur ekki að sér hönnun, byggingarframkvæmdir, uppsetningu eða tæknilegt byggingareftirlit.

Seljandi ber ábyrgð gagnvart kaupanda á efndum sinna samningsskyldna, þar á meðal að afhent hús, húseiningar, efni og búnaður samræmist umsömdum eiginleikum, gæðum, afhendingarlýsingu og þeim lagakröfum sem um afhendinguna gilda. Ábyrgð vegna galla, afhendingardráttar, ábyrgðaryfirlýsinga og annarra vanefnda seljanda hvílir á seljanda samkvæmt viðeigandi lögum og samningi. Hið sama á við um flutning, uppsetningu og aðra þjónustu að því marki sem seljandi hefur tekið hana að sér.

Í samningsgögnum skal skýrt tilgreina hvað fylgir kaupunum, afhendingarástand, afhendingartíma og verkaskiptingu vegna flutnings, undirstaðna, uppsetningar, tenginga og frágangs. Þar skal jafnframt afmarka hver annast nauðsynleg hönnunargögn, staðfestingar og leyfisumsóknir vegna fyrirhugaðrar staðsetningar og notkunar.

Domus veitir ekki sjálfstæða ábyrgð á efndum seljanda. Aðstoð Domus við samskipti eða miðlun erinda vegna afhendingar eða galla felur ekki ein og sér í sér að Domus taki yfir skyldur seljanda.

Framangreind afmörkun skerðir hvorki ófrávíkjanleg réttindi kaupanda né þá ábyrgð sem kann samkvæmt lögum að hvíla á Domus, löggiltum fasteignasölum þess eða öðrum starfsmönnum vegna eigin athafna, mistaka eða vanrækslu.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (7)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vaðstígur 3
Skoða eignina Vaðstígur 3
Vaðstígur 3
805 Selfoss
40 m2
Einbýlishús
32
875 þ.kr./m2
35.000.000 kr.
Skoða eignina Barmahlíð 6
Opið hús:08. nóv. kl 13:00-13:30
Skoða eignina Barmahlíð 6
Barmahlíð 6
105 Reykjavík
72,5 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
799 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Skoða eignina Spónsgerði 3
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Spónsgerði 3
Spónsgerði 3
600 Akureyri
173,2 m2
Einbýlishús
524
721 þ.kr./m2
124.900.000 kr.
Skoða eignina Furugrund 37
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Furugrund 37
Furugrund 37
300 Akranes
176,5 m2
Einbýlishús
614
538 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin