Fasteignaleitin
Skráð 23. okt. 2025

Suðurhús 10

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
80 m2
3 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
68.500.000 kr.
Fermetraverð
856.250 kr./m2
Fasteignamat
67.800.000 kr.
Brunabótamat
47.450.000 kr.
Mynd af Margrét Rós Einarsdóttir
Margrét Rós Einarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Jarðhæð af 2
Garður
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2041316
Landnúmer
109903
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta (2024))
Þak
Endurnýjað að hluta (2024) Skipt um þakplötur að hluta.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Hellulögð verönd til suðurs
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Kvöð / kvaðir
hitainntakið fyir íbúðina er í bílskúr efri hæðar.
Fasteignasalan TORG og Margrét Rós lgf. kynna í sölu bjarta og rúmgóð neðri sérhæð í góðu tvíbýlishúsi á grónum og eftirsóttum stað við Suðurhús 10 í Grafarvoginum. Um er að ræða 2ja-3ja herberja íbúð með sérinngangi og verönd sem snýr til suðurs. Eignin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Eignin var áður 3ja herb og því hægt að bæta við öðru svefnherbergi á kostnað borðstofu. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós lgf. í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is  -  *** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR ***    

Frábær staðsetning innst í friðsælum botnlanga í fjölskylduvænu hverfi. Leik- og grunnskóli, sundlaug og íþróttamiðstöð í göngufæri, auk þess sem stutt er í alla verslun og þjónustu í Spönginni og Egilshöll. Góðar almenningssamgöngur eru í nálægð sem og fallegar göngu- og hjólaleiðir um hverfið, og örstutt er í góð útivistarsvæði, skíðabrekku, golfvöll og óspillta náttúruna til að njóta útiverunnar.

Birt stærð skv. fasteignaskrá HMS er 80,0 m2 og eru allir fermetrar innan íbúðar.

ERTU Í SÖLUHUGLEIÐINGUM? SMELLTU HÉR FYRIR FRÍTT VERÐMAT

Nánari lýsing:
Forstofa: komið er inn um sérinngang í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi og góðum hvítum/háglans fataskáp. Falleg breið hurð með frönsku gleri aðskilur forstofu frá íbúðarrými.
Stofa/borðstofa: bjart rými sem rúmar vel bæði borðstofu og setustofu með parket á gólfi og útgengi út á hellulagða verönd til suðurs og afgirt með timburskjólveggjum. Borðstofan var áður svefnherbergi og mögulegt að breyta því aftur í herbergi.
Eldhús: bjart og fallegt með hvítri innréttingu, gráyrjóttri borðplötu og flísum eru á milli efri og neðri skápa. Tengi er fyrir uppþvottavél í innréttingu. Stór gluggi er í eldhúsinu, rúmgóður borðkrókur og flísar á gólfi.
Baðherbergi: rúmgott með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Hvít innrétting með handlaug og skúffum, inngeng sturta með glerskilrúmi, nýlegt salerni og handklæðaofn. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara á baðherberginu.
Svefnherbergi: mjög rúmgott og bjart með flísum á gólfi og sexföldum hvítum fataskáp.
Geymsla: innaf forstofu er geymsla með hillum og í garði er lítil köld geymsla.

Virkilega falleg og björt neðri sérhæð á eftirsóttum stað í Grafarvogi sem vert er að skoða. 

Að sögn eiganda hefur eignin fengið eftirfarandi viðhald: 
  • Skipt var um krana á ofnum og gler í öllum gluggum nema á vesturhlið (2012-2013)
  • Skipt um þrýstijafnara fyrir báðar hæðir (nóv, 2024)
  • Klósett endurnýjað á baðherbergi (nóv, 2024)
  • Skipt um opnanlega fög/glugga í stofu auk þess var skipt um lista undir vestur glugga (okt/nóv, 2024)
  • Skipt um opnanlega fög/glugga og gler í eldhúsi ásamt lista undir glugga að utan (okt/nóv, 2024)
  • Þakplötur endurnýjaðar að hluta (nóv 2024)
** HVERS VIRÐI ER ÞÍN EIGN? SMELLTU HÉR **

Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 856-5858 / margret@fstorg.is
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 773-3532adalsteinn@fstorg.is

KÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉR


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
02/12/201623.950.000 kr.30.900.000 kr.80 m2386.250 kr.
08/05/201421.800.000 kr.24.000.000 kr.80 m2300.000 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (38)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hnjúkamói 9, íbúð 0204
Hnjúkamói 9, íbúð 0204
815 Þorlákshöfn
60.3 m2
Fjölbýlishús
211
837 þ.kr./m2
50.500.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 9, íbúð 0203
Hnjúkamói 9, íbúð 0203
815 Þorlákshöfn
81.9 m2
Fjölbýlishús
312
731 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 5 íb. 203
Hringhamar 5 íb. 203
221 Hafnarfjörður
80 m2
Fjölbýlishús
312
863 þ.kr./m2
69.000.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 14 íb. 102
Hnjúkamói 14 íb. 102
815 Þorlákshöfn
71.7 m2
Fjölbýlishús
32
760 þ.kr./m2
54.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin