Fasteignaleitin
Skráð 5. júlí 2026

Hlíðargata 6

EinbýlishúsAusturland/Neskaupstaður-740
186.8 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
67.900.000 kr.
Fermetraverð
363.490 kr./m2
Fasteignamat
48.650.000 kr.
Brunabótamat
86.700.000 kr.
Mynd af Heimir Arnfinnsson
Heimir Arnfinnsson
Löggiltur fasteignasali
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2169169
Landnúmer
155485
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Vatnslagnir innanhúss endurnýjaðar 2021
Frárennslislagnir
skólp innanhúss endurnýjað og alla leið út í götu 2021
Gluggar / Gler
Nýjir gluggar 2018
Þak
Þak endurnýjað 2026
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Rafmagnskynding
Inngangur
Margir inngangar
Hlíðargata 6, Fjarðabyggð: Um er að ræða fallegt og mikið endurnýjað einbýlishús á tveimur hæðum með fallegu útsýni yfir fjörðinn.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.is

Eignin skiptist upp í forstofu, lítið þvottahús, gang/hol, eldhús, stofu og borðstofu í opnu rými, þrjú svefnherbergi og baðherbergi á efri hæð. Úr borðstofu er útgengt á stóran viðarpall þar sem finna má uppblásinn MSpa heitan pott. Á neðri hæð (kjallara), má finna tvö herbergi sem nýtt eru sem skrifstofa og geymsla (með salerni og sturtuklefa). Útgengt er í garð af neðri hæð. Eignin hefur fengið afar gott viðhald á síðustu árum, þar á meðal var farið í stóra og mikla framkvæmd á þaki, skipt um lagnir, glugga og gólfefni.

Möguleiki að útbúa íbúð á neðri hæð ef væntanlegir eigendur vilja fá inn leigutekjur.

- Mikið og vel endurnýjuð eign
- Nýlegt þak, gluggar og útihurðir
- Gólfhiti í forstofu, baðherbergi og eldhúsi
- Nýjar vatns- og skólplagnir
- Stór sólpallur með heitum potti og fallegu útsýni yfir fjörðinn

SKIPULAG EIGNAR:

- EFRI HÆÐ:
Forstofa: Bjart rými með ljósu parketi og gólfhita. Stór og nýlegur fataskápur með speglahurðum auk hagnýts skóskáps.
Þvottahús: Lítið rými á hægri hönd úr forstofu með ómeðhöndluðu steypugólfi. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara, hillur og lítill gluggi.
Hol og gangur: Ljóst parket á gólfi. Rýmið tengir saman helstu vistarverur hússins og er opið inn í borðstofu sem gefur gott flæði.
Eldhús: Gráar flísar á gólfi með gólfhita. Innréttingin er frá 2016, hvít með brúnni borðplötu og stílhreinum höldum. Nýjir AEG bakaraofnar og uppþvottavél. Hluti eldhússins bíður lokafrágangs þar sem sést í stoðgrind og ómálaðan vegg, en gengið var frá þannig að auðvelt er að halda áfram með flotun og parketlagningu (parket er til staðar).
Stofa (sjónvarpsstofa): Er í opnu rými með ljósu parketi á gólfi og stórum glugga sem hleypir inn góðu ljósi.
Borðstofa: Bjart alrými með ljósu parketi inn af holi. Stór gluggi sem veitir fallegt útsýni yfir fjörðinn og fjöllin. Útgengt er út á sólpall um svalahurð.
Hjónaherbergi: Einkar rúmgott með ljósu parketi á gólfi, hlýlegir tónar á veggjum og nýlegir fataskápar. Stór gluggi vísar út í gróðursælan garð.
Barnaherbergi 1: Rúmgott með ljósu parketi, mildum grágrænum veggjum og glæsilegu útsýni yfir fjörðinn.
Barnaherbergi 2: Bjart herbergi með ljósu parketi og ljósum grænleitum tónum. Nýtist jafnt sem svefnherbergi eða skrifstofa.
Baðherbergi: Nýlega endurnýjað. Dökkar mósaíkflísar á gólfi með gólfhita, ljósar veggplötur með marmaramynstri. Rúmgóð sturta með glerþili, upphengt salerni, svört vaskinnrétting og speglaskápur. Gluggi er í sturturýminu.

- NEÐRI HÆÐ (KJALLARI):
Athygli er vakin á því að lág lofthæð er á neðri hæðinni.
Svefnherbergi/Skrifstofa (herbergi 1): Rými sem nýtt er sem skrifstofa í dag með dökku viðarparketi, hvítmáluðum veggjum og aflöngum glugga.
Geymsla (herbergi 2): Rúmgott og frekar hrátt rými með steyptu gólfi, vel nýtt undir hillur og geymslu. Lítill gluggi ofarlega á vegg. Einnig má þar finna salerni og sturtuklefa.
Vinnuaðstaða og stigi: Steypt gólf þar sem komið hefur verið upp vinnuaðstöðu og verkfærageymslu. Þaðan liggur málaður tréstigi upp á efri hæð.
Gangur: Ókláraður með steyptu gólfi og sýnilegum lögnum í lofti. Hvít útihurð með gleri þaðan sem útgengt er í garð.

- LÓÐ, UTANHÚSS OG FRAMKVÆMDIR:
Sólpallur og garður: Stór og myndarlegur viðarpallur er við húsið með skjólveggjum og uppblásnum MSpa rafmagnspotti. Lóðin er gróðursæl og útsýnið yfir fjörðinn afar fagurt.
Geymsluskúr: Rúmgóður timburskúr er í garðinum með innlögðu rafmagni, ljósum og tenglum.
Þak og ytra byrði: Þakið var endurnýjað í stórri og mikilli framkvæmd árið 2026. Skipt var um hluta af timbri, lektað, öndunardúkur settur, alúsínk á þak og kantar klæddir með áli. Nýjar þakrennur, nýtt dyraskýli og snjógildrur settar ofan við gönguleið og sólpall. Afgangs járn af þaki fylgir og dugar líklega á geymsluskúrinn.
Aðrar framkvæmdir og viðhald: Drenað var ofan við hús og mokað fyrir nýju bílastæði neðan við húsið (ca. 2021). Skipt var um alla glugga og útihurðir úr PVC (ca. 2018). Vatnslagnir innanhúss og skólp var endurnýjað alla leið út í götu, og ljósleiðari tekinn inn á sama tíma (ca. 2021). Á efri hæð var fræst fyrir nýjum raflögnum í flestum rýmum, bætt við um 40 dósum ásamt nýjum rofum og tenglum, þó eru rafmagnstöflur eldri. Efri hæðin var flotuð og Quick Step harðparket lagt í einum fleka yfir öll rými sem við átti, ásamt því að allar innihurðir voru endurnýjaðar með felliþröskuldum.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband:
Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.is

Skráning eignarinnar skv. HMS:
Fasteignanúmer: F2169169
Stærð: Einbýlishús, 186,8 m² (Íbúð á hæð 135,9 m², íbúðarherbergi í kjallara 50,9 m²)
Byggingarár: 1950
Byggingarefni: Steypa
Gildandi fasteignamat: 48.650.000 kr.
Brunabótamat: 86.700.000 kr.
Lóð: Íbúðarhúsalóð í eigu Fjarðabyggðar, stærð lóðar er 918,0 m²

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1
. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaupendur) 0,8% (einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.

Skoðunarskylda kaupenda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fasteignasala Austurlands skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Fasteignasala Austurlands // Austurvegi 21, 730 Reyðarfirði
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
08/05/202444.300.000 kr.49.500.000 kr.186.8 m2264.989 kr.
10/05/200613.310.000 kr.16.400.000 kr.186.8 m287.794 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mýrarland 14
Bílskúr
Skoða eignina Mýrarland 14
Mýrarland 14
800 Selfoss
176.7 m2
Einbýlishús
524
634 þ.kr./m2
112.000.000 kr.
Skoða eignina Heiðarbraut 5d
Skoða eignina Heiðarbraut 5d
Heiðarbraut 5d
230 Reykjanesbær
175.2 m2
Raðhús
715
502 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Urðarbraut 10
Bílskúr
Skoða eignina Urðarbraut 10
Urðarbraut 10
250 Garður
191.5 m2
Einbýlishús
514
433 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Víðimýri 16
Skoða eignina Víðimýri 16
Víðimýri 16
740 Neskaupstaður
134.1 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
423
335 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin