Fasteignaleitin
Skráð 28. apríl 2025

Kolagata 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
111.8 m2
3 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
119.500.000 kr.
Fermetraverð
1.068.873 kr./m2
Fasteignamat
115.750.000 kr.
Brunabótamat
84.600.000 kr.
Mynd af Snorri Björn Sturluson
Snorri Björn Sturluson
Hdl., Löggiltur fasteignasali. Eigandi.
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2363618
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Hæðir í húsi
6
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
07
Vatnslagnir
Upprunlegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Austur svalir
Lóð
0,07
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Skipti á minni eign koma til greina.

Bókið skoðun á þessari glæsilegu eign hjá Snorra Birni fasteignasala í síma 699-4407 eða á netfanginu snorribs@valholl.is

Valhöll kynnir nýlega og glæsileg 3ja herbergja íbúð á 4. hæð í Kolagötu 3 (áður Geirsgata 4) Hafnartorgi í miðbæ Reykjavíkur. Íbúðin er rúmgóð með stórum og björtum gluggum, aukinni lofthæð og vönduðum innréttingum og tækjum. Þetta er glæsileg íbúð á skemmtilegum stað sem vert er að skoða.

Um er að ræða íbúð 407. Íbúðin er skráð 111,8 fm að stærð og þar af er geymslan 6.6 fm. Möguleiki er að leigja aðgengi að bílastæði í bílakjallara Hafnartorgs sem er beint fyrir neðan húsið.

Í dag er íbúðin með einu svefnherbergi en lítið mál er að gera annað svefnherbergi á kostnað sjónvarpsstofu.


Smelltu hér til að skoða myndband af eigninni.

Eignin skiptist í: forstofu, baðherbergi, eldhús, samliggjandi stofu og borðstofu, eitt svefnherbergi, sjónvarpsstofu (sem mögulegt er að breyta í svefnherbergi), þvottaherbergi og sérgeymslu í kjallara.

Nánari upplýsingar veita:
Snorri Björn Sturluson löggiltur fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða snorribs@valholl.is


Nánari lýsing:
Forstofa: forstofan er með fataskápum með lýsingu að innan og parketi á gólfi.
Baðherbergi: baðherbergið er afar glæsilegt með skápum fyrir neðan vask og speglaskápum fyrir ofan, Meganite borðplata með innbyggðum vaski úr sama efni, upphengdu salerni, "walk in" sturtu með innbyggðum blöndunartækjum frá Vola og flísum á gólfi og veggjum með marmaramunstri.
Svefnherbergi: svefnherbergið er rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi. 
Eldhús: eldhúsið er með glæsilegri innréttingu frá Noblessa með eyju. Borðplata er úr Meganite Carrara efni og með eldhúsvask sem felldur er í borðplötuna úr sama efni. Öll eldhústæki eru af vönduðustu gerð frá Siemens. Lýsing er undir efri skápum og ljúflokun á skúffum og skápum. Innbyggður kæliskápur, uppþvottavél og vínkælir fylgir. Auk þess innfelld kaffivél og innbyggður gufugleypir í eldhúseyju.
Stofa / borðstofa: stofan og borðstofan eru samliggjandi í opnu alrými með eldhúsinu með stórum gluggum í tvær áttir, parketi á gólfi og með útgengi á svalir. 
Sjónvarpsstofa (eða svefnherbergi): sjónvarpsstofan er innaf stofunni með parketi á gólfi. Hún er með glugga og því auðvelt að breyta henni í svefnherbergi (sjá teikningar).
Þvottaherbergi: þvottaherbergið er með góðri innréttingu frá Noblessa og stæði fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaski og flísum á gólfi.
Geymsla: 6,6 fm  sérgeymsla í sameign.
Hjóla - vagnageymsla: sameiginleg hjóla - og vagnageymsla í sameign.

Einstakt hús í hjarta borgarinnar.
Hafnartorg skartar 70 hágæða íbúðum. Allar innréttingar og tæki eru sérvaldar af innanhúsarkitekt til að mynda eina stílhreina heild og eru öll tæki og tæknibúnaður fyrsta flokks. Allt ytra efnisval bygginganna er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur. Útihurðir eru raflæstar og tengdar heildstæðu aðgangsstýrikerfi. Dyrasími með myndavél frá Bticino og þráðlausu e-net ljósastýrikerfi frá GIRA. Allar íbúðir eru með loftræstikerfi þar sem upphituðu fersklofti er dælt inn í íbúðir og í votrýmum er vélrænt útsog. Undir húsunum er stærsti bílakjallari landsins með um 1160 bílastæðum sem nær allt til Hörpunnar. Íbúðirnar eru frábærlega staðsettar í nálægð við menningu, sögu, verslun og þjónustu. Lúxus fasteignir í hjarta Reykjavíkur með iðandi mannlíf allt um kring.

Byggingaraðili.
Byggingaraðili hússins er ÞG Verk. Frá árinu 1998 hefur ÞG Verk byggt fjölda heimila fyrir ánægðar fjölskyldur. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð fyrirtækisins. Meginmarkmið ÞG Verkt er að skila góðu verki og eiga traust og áreiðanleg samskipti við viðskiptavini.

Nánari upplýsingar veita:
Snorri Björn Sturluson löggiltur fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða snorribs@valholl.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
07/09/202169.600.000 kr.96.900.000 kr.111.8 m2866.726 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mosagata 15
Bílastæði
Opið hús:17. mars kl 12:15-12:45
Skoða eignina Mosagata 15
Mosagata 15
210 Garðabær
93.5 m2
Fjölbýlishús
32
887 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Mávahlíð 41
Opið hús:17. mars kl 18:00-18:30
Skoða eignina Mávahlíð 41
Mávahlíð 41
105 Reykjavík
95.5 m2
Fjölbýlishús
312
836 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Skoða eignina Drekavellir 24B
DJI_0340.JPG
Skoða eignina Drekavellir 24B
Drekavellir 24B
221 Hafnarfjörður
92.5 m2
Fjölbýlishús
312
756 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Ásholt 28
Bílastæði
Skoða eignina Ásholt 28
Ásholt 28
105 Reykjavík
124.8 m2
Raðhús
413
945 þ.kr./m2
117.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin