Fasteignaleitin
Opið hús:13. sept. kl 13:00-13:30
Skráð 9. sept. 2026

Melás 4

HæðHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
231.3 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
153.000.000 kr.
Fermetraverð
661.479 kr./m2
Fasteignamat
133.400.000 kr.
Brunabótamat
104.500.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1978
2. hæð · efsta
Garður
Svalir
Pallur
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2071851
Landnúmer
119289
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Endurnýjað 2024
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Endurnýjað 2025
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Nýtt í sölu! Melás 4 Garðabæ - Glæsileg, vel skipulögð og mikið endurnýjuð efri sérhæð með fjórum svefnherbergjum, stórri þak-viðarverönd og bílskúr.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar fallega og vel staðsetta 5-6 herbergja efri sérhæð með sérinngangi í grónu fjölskylduhverfi við Melás 4 í Garðabæ. Heildareignin er alls 231,3 fermetrar að stærð og þar af 45,5 fermetra bílskúr og geymsla. Stór glæsilegt afgirt þak-viðarverönd ofan á bílskúr sem er nýlega byggð (2020). 

Hæðin er vel skipulögð með stórum alrýmum og fjórum svefnherbergjum. Stofa er stór, með stórum gluggum til suðurs og rúmar vel setustofu og borðstofu. Lakkað eikarparket er á gólfum. Útgengi á rúmgóðar svalir til suðurs frá stofu. Einnig er rúmgott sjónvarpshol sem er staðsett í miðri eigninni. Baðherbergi var endurnýjað á afar glæsilegan máta árið 2026. Lagnir fyrir gestasnyrtingu við forstofu og stórt þvottaherbergi.

Húsið lítur vel út að utan og ber þess merki að hafi fengið gott viðhald á undanförnum árum. M.a. var þakið endurnýjað árið 2025 (járn, pappi og rennur), allir gluggar á austurhlið voru endurnýjaðir árið 2024 og nokkrum árum áður var skipt um glugga á suðurhlið og svalahurð. Skólplagnir fóðraðar frá húsi og út í brunn fyrir u.þ.b. tveimur árum síðan. Lóðin er 806,0 fermetrar að stærð, snyrtileg og sameiginleg með íbúð á neðri hæð (utan sérafnotaflata). Tyrfður garður til suðurs með fallegum trjágróðri. Stór hellulögð stétt og bílaplan að húsi með snjóbræðslu að hluta. 


Nánari lýsing:
Forstofa: Er stórt, með flísum á gólfi og góðum fataskápum.
Geymsla (gestasnyrting): Er staðsett við forstofu. Allar lagnir til staðar til þess að breyta aftur í gestasnyrtingu.
Gengið er upp á efri hæð um fallegan og bjartan parketlagðan stiga. Gluggar til norðurs og suðurs með nýlegu glæsilegu handriði.
Sjónvarpshol: Er rúmgott með parketi á gólfi.
Stofa: Er stór og skiptist í setustofu og borðstofu. Parket á gólfi, stórum gluggum til suðurs og glugga til austurs. Útgengi frá stofu á svalir.
Svalir: Stórar svalir til suðurs sem snúa inn í fallega gróinn garð hússins. 
Eldhús: Með fallegri ljósri eldhúsinnréttingu með góðu skápaplássi. Eldhús er bjart með gluggum til vesturs og góðum borðkróki. Stál bakaraofn, uppþvottavél, helluborð, vifta og lýsing undir efri skápum.
Svefnherbergi I: Með parketi á gólfi og glugga til austurs.
Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi og glugga til vesturs.
Svefnherbergi III: Með parketi á gólfi og glugga til vesturs. Er í dag nýtt sem fataherbergi með miklu skápaplássi.
Svefnherbergi IV (hjónaherbergi): Er rúmgott, með parketi á gólfi, góðum skápum og glugga til vesturs.
Baðherbergi: Var endurnýjað á árinu (2026) á glæsilegan máta. Flísar á gólfi og veggjum, flísalögð sturta með gleriþili og vönduðum innbyggðum sturtutækjum. Falleg innrétting með tveimur vöskum og fallegum spegli með baklýsingu. Upphengt salerni, handklæðaofn og gluggi til norðurs.
Þvottaherbergi: Er rúmgott með gluggum til norðurs og austurs. Tenglar fyrir þvottavél og þurrkara og gott vinnuborð.
Þak-viðarverönd: Er stór og virkilega glæsileg. Afgirt og er byggð ofan á bílskúr hússins. Falleg kvöldlýsing í grindverki verandar.

Bílskúr: Er stór, eða 45,5 fermetrar að stærð. Bílskúr er upphitaður með rafmagni og heitu/köldu vatni.
Geymsla: Er stór og er staðsett inn af bílskúr. Upphituð og með gluggum.

Um er að ræða frábæra fjölskyldueign í þessu vinsæla hverfi í Ásunum Garðabæ. Stutt er í alla verslun og þjónustu, leikskóla, grunnskóla og fjölbrautaskóla. Íþróttasvæði og sundlaug í næsta nágrenni. Göngubrú er yfir Hafnarfjarðarveg skammt frá húsinu.

Nánari upplýsingar:
Heimir Hallgrímsson, lögg. fasteignasali / heimir@fastlind.is / 849-0672
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
10/04/201966.300.000 kr.66.300.000 kr.231.3 m2286.640 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1978
45.5 m2
Fasteignanúmer
2071851
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
14.450.000 kr.

Myndir (46)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Álfahvarf 2
Bílskúr
Heitur pottur
Opið hús:14. sept. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Álfahvarf 2
Álfahvarf 2
203 Kópavogur
235.9 m2
Raðhús
624
783 þ.kr./m2
184.700.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 37
1.jpg
Skoða eignina Vorbraut 37
Vorbraut 37
210 Garðabær
252.3 m2
Raðhús
634
852 þ.kr./m2
215.000.000 kr.
Skoða eignina Hrísmóar 4
Skoða eignina Hrísmóar 4
Hrísmóar 4
210 Garðabær
75.8 m2
Fjölbýlishús
212
825 þ.kr./m2
62.500.000 kr.
Skoða eignina Maltakur 3b
Opið hús:12. sept. kl 13:00-13:30
Skoða eignina Maltakur 3b
Maltakur 3b
210 Garðabær
123.3 m2
Fjölbýlishús
322
948 þ.kr./m2
116.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin