RE/MAX / Júlían J. K. Jóhannsson Lgf. (sími 823 2641 & julian@remax.is) kynna: Fallegt 214,3 fm Sigvaldahús með aukaíbúð i Suðurhlíðum Kópavogs við Hrauntungu 59. Húsið er á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr og aukaíbúð og möguleiki á annarri aukaíbúð. Á efri hæð hússins eru þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús og stofa. Úr stofu og hjónaherbergi er gengt út á ca 50 fm verönd með saunu tunnu þaðan sem er mikið útsýni. Góð eign með mikla útleigu möguleika á góðum stað i Suðurhlíðum Kópavogs.Smelltu hér til að skoða eignina í 3D.Lýsing eignar: Neðri hæð samanstendur af
anddyri,
geymslu og teppalögðum
stiga upp á
efri hæð. Þá er búið að breyta innbyggðum
bílskúr í stórt
herbergi með
stofu. Innaf bílskúr er hægt að ganga inn í stórt
óskráð rými um 60 fm en þarfnast standsetningar. Fyrri eigandi var með salerni, sturtu og gufubað þar inni en það hefur ekki verið notað lengi og því óvíst um ástand. Ath. lægri lofthæð er í óskraðu rými, þó um 2 m.
Á
neðri hæð er einnig
aukaíbúð sem er í
útleigu. Hún er einu
svefnherbergi með
stofu,
eldhúsi og
baðherbergjum. Gengið er inn í
aukaíbúð um
sérinngang vestanmegin við húsið.
Efri hæð samanstendur af fjögurra herbergja íbúð með
eldhúsi,
stofum,
baðherbergi og
þvottahúsi.
Lóðin samanstendur af garði vestanmegin við húsið og austan megin við húsið er lítill garður auk
3-4 bílastæða.
Húsið er teiknað af Sigvalda Thordarson, byggt 1969 og er á tveimur hæðum með steyptu þaki. Keyrt er upp botnlanga meðfram húsalengjunni, sem í eru fimm hús stendur efst, út á enda.
Nánari lýsing:Aðalinngangur hússins er á
neðri hæð.
Þegar inn er komið er
stórt stúdíó herbergi á hægri hönd þar sem áður var
bílskúr.
Beint á móti
anddyri er stigi upp á
efri hæðina en við stigann er
geymsla þar sem inntak fyrir vatn og rafmagn eru m.a.
Þegar upp er komið er
svefnherbergjagangur á vinstri hönd, með
þremur svefnherbergjum,
baðherbergi og
herbergi sem áður var
þvottahús, en
stofur og
eldhús til hægri.
Efri hæð skiptist í
stofu sem er stór og rúmar vel
borðstofu og
setustofu, þar eru stórir gluggar á þrjá vegu og mikið útsýni yfir Kópavogsdalinn, Garðabæ og víðar, viðarparket á gólfum. Úr
stofum er útgengt á ca 50 fm
verönd sem snýr í suð-vestur.
Eldhús var endurnýjað á árunum 2005-6 og státar af stórri og rúmgóðri innréttingu með Corian stein á borðum og stórum opnanlegum gluggum.
Á
veröndinni, sem er um 50 fm og afgirt, er saunu tunna á sérsmíðuðum palli svo við nýtur mikils útsýnis út gufunni. Af
veröndinni er gengt út í
garðinn vestan megin við húsið.
Hjónaherbergið er rúmgott með
fataherbergi innaf því. Viðarparket á gólfum og úr hjónaherbergi er útgengt á
veröndina.
Tvö
barnaherbergi eru á hæðinni, stórir gluggar og parket á gólfum.
Baðherbergið á hæðinni var endurnýjað á árunum 2005-6 en 2024 var bætt við innangengri sturtu. Flísað í hólf og gólf.
Herbergið hliðina á baðherberginu var áður notað sem
þvottahús og er með öllum tengjum til slíks en er í dag nýtt sem
geymsla. Rúmgott með opnanlegum glugga.
Framkvæmdir síðustu ára:
2026: Þaksvalir múrviðgerðar og sett Epoxy.
2026: Nýtt teppi sett á stiga úr anddyri upp á efri hæð.
2024: Sett upp innangeng sturta á baðherbergi á efrihæð.
2024: Gluggar yfirfarnir og lagaðir, skipt um allt gler í húsinu að undanskyldnu 3 gluggum í íbúð niðri.
2023: Nýr þakpappa settur á þaki.
2024: Saunu-tunna sett á þaksvalir og pallur smíðaður undir. Mikið útsýni úr saunu.
2024: Þaksvalir endurgerðar. Svalagólf múrviðgert og sett epoxy á.
2005-6: Húsið var að miklu leyti endurnýjað á þessum árum, ný gólfefni voru sett á efrihæð og nýjar innréttingar inn á bað og eldhús.
2005-6: Austur- og suður hlið hússins filtuð.
* Fyrri eigandi hefur skipt út lögnum að mikluleyti og sett Mapress pípulagnir.
Bókið skoðun í síma 823-2641 eða á julian@remax.is - Júlían J. K. löggiltur fasteignasali
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta þína eign.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.