Fasteignaleitin
Skráð 9. okt. 2026

Blikanes 9

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
421.8 m2
9 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
314.200.000 kr.
Brunabótamat
185.450.000 kr.
Mynd af Vilhelm Patrick Bernhöft
Vilhelm Patrick Bernhöft
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1970
Garður
Pallur
Heitur pottur
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2069348
Landnúmer
118096
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Sagt í lagi
Raflagnir
Sagt í lagi
Frárennslislagnir
Sagt í lagi
Gluggar / Gler
Sagt í lagi
Þak
Sagt í lagi
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Stór pallur
Lóð
100
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Margir inngangar
Vilhelm Patrick Bernhöft löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX kynnir í einkasölu: Blikanes 9, Garðabæ
Blikanes 9 er stórt og vandað fjölskylduhús með fimm svefnherbergjum, björtum stofum, góðu aukarými á neðri hæð, tvöföldum bílskúr og einstakri staðsetningu við Arnarnesvog.

Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 421,8 fm. 
Um er að ræða einbýlishús í Blikanesi 9 í Garðabæ, nánar tiltekið eign merkt 010101 með fastanúmerið 206-9348 ásamt öllu því sem eigninni fylgir og fylgja ber, þar með talið tilheyrandi lóðarréttindi.

Glæsilegt og rúmgott einbýlishús á einstakri útsýnislóð á Arnarnesi. Eignin er skráð 421,8 fermetrar, þar af er 51,3 fermetra tvöfaldur bílskúr. Íbúðarrýmið skiptist í 265,9 fermetra aðalhæð og 104,6 fermetra neðri hæð. Húsið var byggt árið 1970 og stendur á 1.246 fermetra gróinni lóð.
Lóðin liggur að stóru, opnu grænu svæði sem nær niður að Arnarnesvogi. Frá húsinu, veröndinni og garðinum er víðáttumikið útsýni yfir voginn og byggðina handan hans. Lóðin liggur að opnu útivistarsvæði án byggðar á milli.
Húsið stendur í halla og er ein hæð séð frá götu en opnast á tveimur hæðum út í garðinn. Á aðalhæð eru stórar stofur, sjónvarpsherbergi, eldhús, þrjú svefnherbergi, rúmgott fataherbergi, baðherbergi og gestasalerni. Á neðri hæð eru tvö svefnherbergi, stofa, eldhús, baðherbergi og sérinngangur. Alls eru því fimm svefnherbergi í húsinu.

Húsið var upphaflega byggt árið 1970 en var tekið algerlega í gegn árið 2000 og byggt við það. Við það tilefni voru allar lagnir endurnýjaðar og nýjar innréttingar settar í allt húsið. Árið 2016 var húsið síðan endurnýjað smekklega að innan — ný lýsing, nýir veggir, nýtt gólfefni, nýjar hurðir, baðherbergi endurnýjuð og eldhús endurnýjað.

Nánari lýsing
Komið er inn í rúmgott anddyri með flísum á gólfi, vönduðum útidyrum og góðum skápum. Gestasalerni er við anddyrið.
Stofurnar eru mjög rúmgóðar og bjartar, með stórum gluggum í átt að garðinum og Arnarnesvogi. Stofurýmið skiptist í borðstofu og tvær rúmgóðar setustofur og þar er gott pláss fyrir stórt borðstofuborð og stærri samkomur. Í miðju stofurýminu er glæsilegur, svartur arinn, opinn til beggja hliða, á steinklæddum sökkli. Gengið er beint úr stofunni út á stóra timburverönd.
Eldhúsið er rúmgott og vel skipulagt, með hvítum innréttingum, ljósum steinborðplötum og stórri eyju með helluborði. Tveir innbyggðir ofnar eru í háum skápum. Við gluggana er notalegur borðkrókur með föstum bekk. Eldhúsið tengist borðstofu og stofum vel og stórir gluggar hleypa mikilli birtu inn.
Aðalsvefnherbergið er rúmgott og inn af því er stórt fataherbergi með skápum, hillum og skúffum. Sérbaðherbergi er einnig inn af herberginu. Þar eru stórar flísar með steináferð, opin sturta, vegghengt salerni, innrétting með handlaug, stór spegill og handklæðaofn.
Á aðalhæðinni eru tvö önnur svefnherbergi auk sjónvarpsherbergis við hliðina á stofunum. Eitt svefnherbergjanna er nú nýtt sem skrifstofa og þar er löng innbyggð skrifborðsinnrétting ásamt stórum glugga og fallegu útsýni. Hitt herbergið hentar vel sem barna-, gesta- eða vinnuherbergi.
Neðri hæð
Á neðri hæð er rúmgóð stofa með gluggum út í garð. Þar er einnig aðstaða sem nú er nýtt til líkamsræktar.
Á hæðinni eru tvö svefnherbergi, eldhús með hvítum innréttingum og borðaðstöðu, baðherbergi með sturtu og góð geymsla. Sérinngangur er á hæðinni og því er auðvelt að nýta hana sér, til dæmis fyrir eldri börn, gesti eða sem vinnu- og tómstundarými. Frágangur á neðri hæð er einfaldari en á aðalhæð.
Bílskúr
Tvöfaldur 51,3 fermetra bílskúr er innangengur úr húsinu. Þar eru tvær innkeyrsluhurðir, slitsterkt gólf, góðir skápar og mikið geymslupláss. Innrétting með tengingum fyrir þvottavél og þurrkara er í bílskúrnum.
Lóð og umhverfi
Lóðin er 1.246 fermetrar, gróin og fallega hönnuð með grasflötum, trjám, runnum, steinhleðslum og upphækkuðum beðum. Við húsið eru stórar timburverandir á pöllum, þar sem gott rými er fyrir borð- og setuaðstöðu. Heitur pottur er á veröndinni.
Frá garðinum er gengið út á opið grænt svæði sem nær niður að Arnarnesvogi. Útsýnið yfir voginn og höfuðborgarsvæðið er víðáttumikið og nýtur sín vel bæði innan úr húsinu og af veröndinni.
Framan við húsið er stór hellulögð innkeyrsla með góðum bílastæðum. Húsið er steinsteypt, klætt ljósri klæðningu og viði að hluta, með flötu þaki og sérstöku yfirbragði.

Nánari upplýsingar veitir Vilhelm Patrick Bernhöft Löggiltur fasteignasali, í síma 6639000, tölvupóstur vilhelm@remax.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. REMAX bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af löggiltum fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
·      Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
·      Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
·      Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
·      Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
12/07/2012102.100.000 kr.146.500.000 kr.421.8 m2347.321 kr.Já
17/10/200653.600.000 kr.130.000.000 kr.421.8 m2308.202 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (55)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sólholt 28 Einbýlishúsalóð
Sólholt 28 Einbýlishúsalóð
210 Garðabær
609 m2
Jörð/Lóð
Tilboð
Skoða eignina Smyrlaheiði 7
Á einni hæð
Skoða eignina Smyrlaheiði 7
Smyrlaheiði 7
810 Hveragerði
96,6 m2
Raðhús
211
692 þ.kr./m2
66.800.000 kr.
Skoða eignina Skólatröð 8
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:11. okt. kl 12:30-13:00
Skoða eignina Skólatröð 8
Skólatröð 8
200 Kópavogur
84,7 m2
Fjölbýlishús
312
1179 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Skólatröð 8
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:11. okt. kl 12:30-13:00
Skoða eignina Skólatröð 8
Skólatröð 8
200 Kópavogur
92,3 m2
Fjölbýlishús
312
1158 þ.kr./m2
106.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin