Glæsileg sveitasæla í Kjós
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna glæsilega sveitasælu að Norðurnesi 76 í Kjós. Um er að ræða einstaklega fallegt hús sem eigendur byggðu sjálf af mikilli alúð og natni. Hvert mannvirki á lóðinni hefur verið hannað og byggt af eigendum af einstakri natni og handverkið ber þess skýrt merki.
Húsið er timburhús, klætt bárujárni, skráð 67,7 fm samkvæmt HMS og stendur á 4.004 m² eignarlóð í fallegu og grónu umhverfi með stórbrotinni fjallasýn, aðeins um 30 mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.
Húsið stendur á steyptum grunni með gólfhita, hitaveitu og rafmagni. Á lóðinni eru einnig fjölmörg falleg útihús sem gera eignina einstaka, þar á meðal saunahús, vinnustofa með smíðaverkstæði, skýli með hlaðnum pizzaofni og gróðurhús. Hvert hús ber sitt eigið nafn – saunahúsið Örkin og skýlið Undirhlíð, sem endurspeglar þá alúð og hlýju sem einkennir þessa einstöku sveitasælu.
- Fallegt handverk og einstaklega vönduð smíði sem setur svip sinn á alla eignina.
- 4.004 m² gróin eignarlóð með fallegri ræktun, göngustígum og miklu næði.
- Saunahús, vinnustofa, skýli með hlaðnum pizzaofni og gróðurhús.
- Steyptur grunnur, gólfhiti og hitaveita – góð aðstaða allt árið um kring.
Eignin er sýnd áhugasömum kaupendum í einkaskoðunum eftir samkomulagi. Hafðu samband við Tinnu Bryde löggiltan fasteignasala til að bóka skoðun í síma 660-5532 eða með tölvupósti á tinna@haborg.is
Húsið er skráð 67,7 fm samkvæmt HMS og stendur á 4.004 m² eignarlóð (sumarbústaðaland).
Nánari lýsing:
Komið er inn í einstaklega hlýlegt og vel skipulagt hús þar sem náttúrulegt efnisval og fallegt handverk skapa notalega stemningu. Eldhús, borðstofa og stofa mynda bjart alrými með fallegri lofthæð og stórum gluggum sem ramma inn stórbrotið útsýni til fjalla.
Eldhúsið er smekklega hannað með sérsmíðuðum viðarinnréttingum sem falla einstaklega vel að karakter hússins. Borðstofan tengist eldhúsinu og rúmar stórt borðstofuborð þar sem auðvelt er að koma saman með fjölskyldu og vinum.
Húsið skiptist í tvö rúmgóð svefnherbergi og eitt herbergi sem nýtist bæði sem vinnuherbergi og svefnherbergi. Harðparket er á gólfum en flísar á forstofu, baðherbergi og vinnuherbergi. Veggir og loft eru ljósmáluð.
Baðherbergið er smekklega hannað með rúmgóðri walk-in sturtu. Í forstofu er aðstaða fyrir þvottavél og tenging fyrir þurrkara. Húsið stendur á steyptri plötu með gólfhita og yfir hluta þess er lokað geymsluloft.
Saunahúsið Örkin er einstaklega fallegt og smíðað af eiganda af mikilli natni. Húsið stendur á steyptri plötu með gólfhita. Komið er inn í rúmgóða forstofu þar sem útbúin hefur verið sniðug gistiaðstaða sem nýtist vel fyrir gesti. Þaðan er gengið inn í fallega saunu og við húsið er kaldur pottur sem fullkomnar aðstöðuna.
Skýlið Undirhlíð er um 34 fm að stærð, er skjólgott útirými þar sem eigandi hefur hlaðið glæsilegan pizzaofn. Þar skapast einstök aðstaða til að njóta góðra stunda með fjölskyldu og vinum. Vinnustofan er inna af skýlinu og stendur á steyptri plötu með gólfhita og er nýtt í dag sem smíðaverkstæði, en býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika.
Á lóðinni eru einnig gróðurhús, lítið áhaldahús, leikkofi fyrir börn, reykkofi/taðgeymsla og hlaðið útigrill.
Lóðin hefur verið ræktuð af mikilli alúð þar sem náttúran fær að njóta sín. Fallegir malarstígar liggja um lóðina og tengja saman ræktun og útivistarsvæði. Þar má meðal annars finna kartöflugarð, grænmetisgarð, kartöflugeymslu, hengirúm og fjölbreytta aðstöðu til ræktunar. Fyrstu trén voru gróðursett árið 2012 og hefur umhverfið síðan þróast í einstaklega gróskumikinn og fallegan garð.
Bílastæði:
Bílastæði eru bæði við húsið og ofar á lóðinni og rúma auðveldlega 7–8 bíla.
Veitur:
Húsið er tengt hitaveitu og rafmagni. Köld vatnsveita er ný, í eigu sumarhúsafélagsins, og er neysluvatnið geislað.
Sumarhúsafélagið Norðurnes:
Árgjald til sumarhúsafélagsins er um 90.000 kr. á ári og er ákveðið á aðalfundi félagsins ár hvert. Félagið sér meðal annars um köldu vatnsveituna og aðgangur að svæðinu er um lokað símahlið.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða á tinna@haborg.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.