Falleg og vel skipulögð 4–5 herbergja íbúð við Háholt 14 í HafnarfirðiFalleg og vel skipulögð íbúð á góðum stað á Holtinu í Hafnarfirði.
Eignin er
109,7 m² að stærð, þar af er sérgeymsla í sameign
4,6 m². Íbúðin býður upp á fjögur svefnherbergi, rúmgóða stofu, eldhús og sér þvottahús.
Stutt er í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.
Nánari lýsing:- Forstofa: Með parketi á gólfi.
- Eldhús: Með ljósri innréttingu. Ofn og örbylgjuofn eru innbyggð í vinnuhæð. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp.
- Stofa: Rúmgóð stofa með útgengi á suðvestursvalir þar sem njóta má góðrar birtu.
- Svefnherbergi: Herbergin eru fjögur. Fataskápar eru í hjónaherbergi og öðru barnaherberginu..
- Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, með sturtubaðkari, fallegri dökkri innréttingu og opnanlegum glugga.
- Þvottahús: Sérstakt þvottahús með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, bekk með vaski, þvottasnúrum og opnanlegum glugga.
- Geymsla: Sérgeymsla í sameign, 4,6 m².
- Sameign: Snyrtileg sameign og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Íbúðin var upphaflega fjögurra herbergja en hefur verið breytt í fimm herbergja með því að bæta við herbergi inn af stofu og minnka eldhúsið.
Eignin hentar því vel stórum fjölskyldum eða þeim sem þurfa auka herbergi fyrir vinnu eða annað.
Staðsetningin er afar góð, í grónu og fjölskylduvænu hverfi á Holtinu í Hafnarfirði, þar sem skólar, leikskólar og helsta þjónusta eru í þægilegri nálægð.
Hér er um að ræða rúmgóða og hagnýta eign með góðu herbergjaskipulagi og suðvestursvölum á eftirsóttum stað í Hafnarfirði.
Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is