Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir efri hæð í tvíbýli að Vogalandi 16 í Fossvoginum í Reykjavík. Sér afgirtur afnotareitur er til suðurs frá stofu. Húsið er innst í botnlanga og út frá stofu og svölum er útsýni upp að Úlfarsfelli og til Bláfjalla. Göngufæri er í leik- og grunnskóla. Einnig íþróttasvæði Víkings og útivistarsvæði Elliðaárdals og Fossvogs. Frábærir hjóla- og göngustígar aftan við hús og undirgöng í allar áttir.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is
Eignin skiptist í forstofu, gestasalerni, borðstofu, hol/skála, stofu, eldhús, þrjú herbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 192,3 m2. **HÉR GETUR ÞÚ SKOÐAÐ 3D AF EIGNINNI. KÍKTU Í HEIMSÓKN MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR!*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SKOÐUN FIMMTUDAGINN 12. FEBRÚAR Söluyfirlit má nálgast hérNánari lýsing:
Forstofa er inn af hellulagðri stétt með snjóbræðslu. Rúmgóð forstofa með hengi fyrir yfirhafnir. Ljósar gólfflísar.
Gestasnyrting er inn af forstofu. Salerni og handlaug. Vegg- og gólfflísar.
Borðstofa og hol/skáli eru saman í opnu rými. Útgengi er út á svalir til suðurs frá borðstofu. Léttur veggur er milli eldhúss og borðstofu. Inn af borðstofu er stofurými. Parket á gólfi.
Stofa er nýtt í dag sem stórt svefnrými og vinnuaðstaða. Hurð er milli borðstofu og stofu, en hægt er að opna á ný, bæði úr holi og borðstofu. Parket á gólfi.
Eldhús er með innréttingu á þremur veggjum og hægt að sitja við langt borð undir glugga á langhlið. Milli efri og neðri skápa eru hvítar flísar. Stæði er fyrir uppþvottavél og tvöfaldan ísskáp í innréttingu. Gashelluborð og háfur fyrir ofan. Parket á gólfi.
Herbergi I og II eru jafnstór og hlið við hlið á svefnherbergisgangi. Annað með léttum fataskáp. Parket á gólfum.
Herbergi III er innst á svefnherbergisgangi og er með útgengi út á svalir til austurs. Gluggar eru á tvo vegu. Hvítur fataskápur með rennihurðum.
Baðherbergi er rúmgott. Baðkar, upphengt salerni, sturtuklefi, innrétting undir handlaug og veggfestur skápur.
Þvottahús er handan við bílskúr og hefur áður verið hurð á milli. Þvottahús er rúmgott. Gluggi með opnanlegu fagi. Gólf- og veggflísar.
Geymsla er í kjallara. Þar er einnig inntak inn í húsið. Steypt gólf.
Bílskúr er með nýlegri bílskúrshurð, en inni er uppsett salerni, sturta og lítil eldhúsinnrétting. Býður upp á möguleika. Gluggar eru á tvo vegu. Parket og flísar á gólfi.
Bílastæði eru hellulögð og með snjóbræðslu.
Geymsluskúr er úti á lóð.
-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-