
Glæsileg 4-5 herb íbúð á efri hæð í litlu fjölbýli á frábærum stað í Smáíbúðahverfinu. Nýtt eldhús, nýtt baðh. Svalir. Ný studio íbúð í bílskúr. Útleiguherbergi í kjallara með sameiginlegu baði.
Sérlega falleg og björt eign, þ.e. 4-5 herbergja íbúð á 2. hæð, efstu hæð í litlu fjölbýli, (4 íbúðir í stigahúsi) auk bílskúrs (nýlega breytt í studio íbúð) og auka herbergi (íbúðaraðstaða) með aðgangi að baðherbergi í kjallara. Samtals birt stærð 163,9 fm.
Mjög góð staðsetning í vinsælu hverfi. Til viðbótar við íbúðina eru tvær útleigueiningar - íbúðarherbergi í kjallara og studioíbúð í bílskúr. Báðar í útleigu. Góðar leigutekjur.
Eignin skiptist þannig: 4 íbúðir í rúmgóðu stigahúsi, tvær á hvorri hæð. Mög falleg 4-5 herbergja íbúð 114,7 fm, hol, fallegt eldhús með nýlegum innréttingum og tækjum, falleg borðstofa við eldhús með stórum glugga, tvær bjartar stofur þ.e. stofa og borðstofa, útgengt á v-svalir.
Svefngangur: rúmgott hjónaherbergi með skáp og stórt barnaherbergi (eru tvö herbergi á teikningu en hafa verið sameinuð í 1 stórt) - auðvelt að breyta aftur í 2 barnaherbergi. Nýlegt baðherbergi, baðkar með sturtuaðstöðu, falleg innrétting, gluggi. Rúmgóður skápur á gangi, einnig annar skápur þar sem þvottavél/þurrkari er í.
Í sameign er góð sérgeymsla, og rúmgott sameignlegt þvottaherbergi og baðherbergi með sturtuaðstöðu. Parket og flísar á gólfi.
Bílskúr/studio íbúð 24,6 fm: nýlega innréttuð studio íbúð með baðherbergi. Gönguhurð/sérinngangur. Íbúðin er í útleigu.
Kjallari: Rúmgott íbúðarherbergi 23,9 fm með eldhúskrók í opnu rými. Sameignlegt baðherbergi á gangi. Herbergið er í útleigu.
Bæði íbúð og sameign hafa verið mikið endurnýjuð á síðustu árum.
Góðar leigutekjur af fasteigninni (3 leigueiningar). Kaupandi getur tekið yfir alla eða suma leigusamninga.
Fasteignamat 2026: ISK 95.600.000.
Fjármögnun: IMIROX lán til lögaðila í boði á þessa eign. Frekari upplýsingar um fasteignalán IMIROX á www.imirox.is.
Vinsamlegast sendið fyrirspurnir varðandi eignina á info@imirox.com eða hringið í síma 777-2500.
Finndu frekari upplýsingar um eignina á www.e-fasteignir.is| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
210 | 110,5 | 109,9 | ||
112 | 48,3 | 43,4 | ||
112 | 61,1 | 55,6 | ||
210 | 73,2 | 79,9 | ||
210 | 94,1 | 111,9 | ||
101 | 171,8 | 152,4 |