RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega glæsileg 4-5 herbergja 180,0 fm. eign með bílskúr og stæði í lokaðri bílgeymslu í nýlegu lyftuhúsi við Álfhólsveg 22A, Kópavogi. Íbúðin er skráð 125,8 fm. á 1. hæð og skiptist í forstofu, eldhús opið til borðstofu og stofu, þrjú rúmgóð svefnherbergi (einfalt að bæta því fjórða við), baðherbergi og þvottahús er innan íbúðar. Úr stofu er jafnframt útgengt út á 15,0 fm. yfirbyggðar svalir. Sérgeymsla 20,8 fm. er staðsett í sameign. Bílskúr er skráður 33,4 fm. og vel staðsett bílastæði í bílgeymslu merkt 01-B09.
* Fallegt útsýni úr íbúð til norðurs m.a. yfir borgina og til Esju.
* Vandaðar innréttingar og gólfefni.
* Aukin lofthæð, stórir og bjartir gluggar.
* Myndavéladyrasími.
Björt og falleg eign á eftirsóttum stað í Kópavoginum þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir. Einnig eru fallegar göngu og hjólaleiðir í næsta nágrenni. Eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar og óskir um skoðun veitir Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, gudrunlilja@remax.is
KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð, björt og með góðum fataskápum. Fallegar ljósar flísar á gólfum. Sérinngangur inn í íbúð er af svalargangi.
Eldhús er með fallegum viðar innréttingum og svörtum steini á borðum, gott skápapláss og ljósar flísar á vegg að hluta. Helluborð, stálháfur og bökunarofn í vinnuhæð. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Stór og bjartur opnanlegur gluggi með fallegu útsýni.
Borðstofa og stofa er í björtu og opnu rými við eldhús, parket á gólfum. Útgengt er út á 15,0 fm.
svalir með svalalokun.
Svefnherbergin eru þrjú öll mjög rúmgóð og björt, parket á gólfum. Einfalt er að stúka af fjórða svefnherbergið í stofu, auka hurð til sem getur fylgt. Góðir fataskápar eru í hjónaherbergi og öðru svefnherberginu en fataskápar eru til og geta fylgt fyrir þriðja og fjórða svefnherbergið.
Baðherbergi er fallegt og stílhreint með ljósum flísum á gólfi og vegg að hluta. Vönduð innrétting með svörtum stein á borðum. Handklæðaofn, upphengt salerni og sturta með glerþili.
Þvottahús er innan íbúðar, mjög rúmgott og með góðu hilluplássi.
Bílskúr er 33,4 fm. að stærð með rafdrifnum hurðaopnara.
Bílastæði er vel staðsett í lokuðum bílakjallara með grunnstöð fyrir rafmagnsbíla og sameiginlegri
þvottaaðstöðu.Sérgeymsla 20,8 fm. er staðsett í sameign ásamt sameiginlegri
hjóla og vagnageymslu.Aðkoman að húsinu og sameign er mjög snyrtileg, hiti í stéttum og lyfta í húsinu. Álfhólsvegur 22a og 22b skiptist í tvö hús með sameiginlegu útisvæði á milli. Samtals 16 íbúðir á lóðinni.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.