Hrönn Ingólfsdóttir lfs og Prima Fasteignasala kynna: Glæsilega og vel skipulagða tveggja herbergja ibúð á fyrstu hæð/jarðhæð við Hafnarbraut 11 í Kópavogi með sér stæði í bílakjallara. Stór pallur, 36fm til suðvesturs. Eignin er skráð alls 70,7 fm og þar af er geymslan 8 fm. Eignin skiptist þannig: Forstofa, baðherbergi, þvottahús, eldhús, svefnherbergi, stofa og borðstofa. Aukin lofthæð er í allri íbúðinni sem gerir hana mjög sjarmerandi.
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Hrönn Ingólfsdóttir í síma 692 3344 eða hronn@primafasteignir.is.Nánari lýsing:Anddyri: Gengið er inn af rúmgóðum stigagangi inn í anddyri með góðum skáp. Parket á gólfi.
Eldhús: Opið inn í stofuna. Vandaðar innréttingar frá HTH, innbyggð uppþottavél og ísskápur. Parket á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð með útgengi á góðan pall til suðvesturs. Parket á gólfum.
Svefnherbergi: Mjög rúmgott herbergi með góðum fataskápum. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Góð innrétting, labb-inn sturta og upphengt salerni. Flísar í hólf og gólf.
Þvottahús: Innaf baðherbergi er gott og vel skipulagt þvottahús. Nett innrétting, gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Pallur: Mjög rúmgóður sérafnotareitur er beint út frá stofu. Frá honum er hægt að ganga út í afgirtan sameignilegan garð með leiktækjum.
Bílskýli: Sérmerkt stæði fylgir íbúðinni.
Geymsla : 8 fm sér geymsla í sameign í kjallara hússins.
Sameign: Stigahús er snyrtilegt, lyfta milli hæða og rúmgóð sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.
Íbúðin er staðsett í vinsælu hverfi vestast á Kársnesinu þar sem mikil uppbygging hefur átt sér stað á undanförnum árum. Góðar almennings-samgöngur í nágrenni og stutt í alla helstu þjónustu og verslanir.
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Hrönn Ingólfsdóttir í síma 692 3344 eða hronn@primafasteignir.is.“Texti frá fyrri eigendum:Hér hefur okkur liðið svo ótrúlega vel síðustu ár en með stækkandi fjölskyldu erum við að færa okkur í stærri eign þó við værum til í að vera hér í mörg ár í viðbót. Fullkomin fyrsta eign með sér palli með fallegu útsýni yfir sjóinn.”
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki með berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.