Sunna fasteignasala og Marta Jónsdóttir, lögfr. og lögg. fasteignasali, kynna skrifstofuhúsnæði á Ásbrú í Reykjanesbæ.
**Seljandalán er í boði.**
Um er að ræða 1.815 m2 skrifstofuhúsnæði sem hefur verið vel við haldið að sögn eiganda. Meðal annars er nýlega búið að skipta um alla glugga á suðurhlið hússins og skipt var um járn á þaki fyrir um 12 árum síðan. Lóðin er 9.635 m2 og leyfilegt nýtingarhlutfall lóðar er 2.891 m2 í heild. Af því leiðir að byggja má um 1.075 m2 til viðbótar á lóðinni. Brunabótamat eignarinnar er kr. 964.500.000 og fasteignamat er kr. 212.950.000.
Alls er um að ræða 28 skrifstofur/herbergi af mismunandi stærðum að viðbættum þremur vinnusölum fyrir 6-10 vinnustöðvar hver, auk þess er garðskáli með kaffiaðstöðu. Fjögur salerni eru á hvorri hæð, og sérstakt móttökurými á jarðhæð. Húsið er laust við kaupsamning.
Húsið er alls 1.815 m2 á tveimur hæðum, neðri hæðin er um 954m2 og efri hæðin er um 862,2m2. Samtals 1.815,5m2. Húsið er steinsteypt og því fylgir lóð sem er 9.635 m2. Stórt malbikað bílastæði er fyrir framan húsið og mjög stór garður er fyrir aftan húsið en leyfilegt nýtingarhlutfall lóðarinnar er 2.890,5 m2 samkvæmt gildandi deiliskipulagi, eða 0,3. Lóðarleigusamningur gildir til 50 ára frá árinu 2015 að telja, eða til ársins 2065.
Byggingarár fasteignarinnar er 1990 og hefur henni verið viðhaldið alla tíð og vel sinnt.
Góð aðkoma, stórt malbikað bílastæði og stór lóð.
Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs. í síma 8633445 og netfanginu marta@sunnafast.is.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.