Fasteignaleitin
Skráð 6. okt. 2026

Skildinganes 33

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
219.4 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
210.000.000 kr.
Fermetraverð
957.156 kr./m2
Brunabótamat
129.700.000 kr.
Byggt 1975
Pallur
Hleðslustöð
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
20295901
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

ALDIR fasteignir og Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 / sveinn@aldirfasteignir.is kynna:
Um er að ræða vandað og vel skipulagt fimm herbergja 219.4 fm einbýlishús á einni hæð á þessum vinsæla stað í Skildinganesi í Skerjafirðinum.
Húsið er verulega bjart með gólfsíðum gluggum, mikilli lofthæð, fallegur og gróin garður með skemmtilegu útisvæði.
Verulega hefur verið vandað til við alla hönnun að innan og utan þegar að eignin var byggð, veglegar innréttingar og þá hefur eignin fengið gott viðhald í gegnum tíðina.
Rafhleðslustöð er við innkeyrslu. Eignin stendur ofan götu á fallegri 655 fm eignarlóð.
Örstutt í gönguleiðir meðfram ströndinni og í útivistarsvæði.


Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands: Eignin er 219.4 fm merkt 01-01-01 og er sambyggður bílskúr inní þeirri fermetratölu. 

Nánari upplýsingar um eign:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@aldirfasteignir.is

Eignin skiptist í:
Anddyri, forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, hjónaherbergi með fataherbergi og baðherbergi innaf, tvö góð svefnherbergi sem að tengjast á fataherbergi, aðal baðherbergi, þvottaherbergi, geymslu og bílskúr.

Nánari lýsing á eign:
Komið er inn í anddyri sem er mjög rúmgott með góðum innbyggðum fataskápum.
Komið er úr anddyri í hol þaðan sem að gengið er í önnur rými eignar, útgengt úr holi á skjólgóða vestur-verönd.
Stofa er mjög rúmgóð og björt, gólfsíðir gluggar sem að gefur mikla birtu í rýmið, arinn er í stofu, veglegar innbyggðar innréttingar í stofu með góðum hirslum, útgengt úr stofu til suðurs út í garð.
Borðstofa er innaf stofurými og er hún nokkuð rúmgóð.
Eldhús er rúmgott og snyrtilegt með ágætis eldhúsinnréttingu með efri og neðri skápum, steinn er á borðplötum í eldhúsi og á vegg á milli skápa, innbyggð uppþvottavél og gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu, borðrókur er í eldhúsi.
Af herbergjagangi er rúmgott hjónaherbergi með fataherbergi og baðherbergi innaf, baðherbergi er með flísum á gólfum og hluta á veggjum, upphengt salerni, ágætis innrétting er í kringum vask með skápum og skúffum, steinn í borðplötu, sturtuklefi á baðherbergi.
Tvö góð svefnherbergi eru innaf gangi og tengjast herbergi með fataherbergi sem að nýtt er sem skrifstofa í dag.
Rúmgott aðalbaðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, stór og mikil baðinnrétting er í kringum vask með skúffum og skápum, upphengt salerni og hlaðinn sturtuklefi með glerhurð.
Þvottaherbergi er innaf herbergjagangi, flísar á gólfi og veggjum, ágætis innrétting með efri og neðri skápum og er skolvaskur í borðplötu.
Bílskúr er við hlið hús og er hann rúmgóður með mikilli lofthæð, geymsla er innaf bílskúr.
Mjög gott útisvæði er fyrir framan bílskúr á milli bílskúrs og húseignar, gróin og falleg lóð.
Gólfefni: Parket og flísar er á gólfum eignar.

-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@aldirfasteignir.is

 


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (37)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hörpugata 12 3 íbúðir
Heitur pottur
Opið hús:28. okt. kl 17:00-17:30
Hörpugata 12 3 íbúðir
102 Reykjavík
198,1 m2
Einbýlishús
734
856 þ.kr./m2
169.500.000 kr.
Skoða eignina Elsugata 10
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Elsugata 10
Elsugata 10
815 Þorlákshöfn
231,9 m2
Raðhús
312
253 þ.kr./m2
58.600.000 kr.
Skoða eignina Spóahöfði 23
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Spóahöfði 23
Spóahöfði 23
270 Mosfellsbær
228,3 m2
Einbýlishús
524
854 þ.kr./m2
195.000.000 kr.
Skoða eignina Ánanaust 3- Penthouse- Vesturvin 3
Efsta hæð
IMG_6193.JPG
Ánanaust 3- Penthouse- Vesturvin 3
101 Reykjavík
236,3 m2
Fjölbýlishús
332
Fasteignamat 188.000.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin