Fasteignaleitin
Skráð 3. sept. 2026

Grettisgata 80

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
78 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
896.154 kr./m2
Fasteignamat
66.050.000 kr.
Brunabótamat
42.520.000 kr.
Mynd af Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Byggt 1930
2. hæð
Geymsla 3.1m2
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2008280
Landnúmer
102467
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
ekki vitað
Raflagnir
ekki vitað
Frárennslislagnir
endurnýjaðar skólplagnir/fóðraðar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
búið að skipta um járn á þaki
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suður
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Gimli fasteignasala og Bárður H. Tryggvason kynna fallega og sjarmerandi þriggja herbergja íbúð á 2. hæð í þríbýlishúsi við Grettisgötu 80, 101 Reykjavík.
Eignin Grettisgata 80 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-8280. Matshluti 02-01, íbúð, birt stærð 78.0 fm, þar af er geymsla 3,1 fm. Nánar tiltekið mhl. merkt 02-0102.
Húsið er steypt þríbýlishús í hjarta Reykjavíkur. Aðeins er ein íbúð á hverri hæð.
Sameignin er mjög snyrtileg og nýlega búið að mála veggi og bóna linoleumdúk á gólfi.
Íbúðin er öll mikið endurnýjuð fyrir 2 árum. Ný eldhúsinnrétting frá Brúnás og öll tæki ný. Innbyggð uppþvottavél og helluborð með innbyggðum gufugleypi. Baðherbergið var einnig allt endurnýjað á sama tíma. Nýtt gólfefni er á öllum gólfum, vandað korkparket á herbergjum og alrými, flísar á baðherbergi og gangi. Philips HUE snjall-lýsing í öllum rýmum.
Þakjárn og þakrennur endurnýjað 2026. Nýjar ofnalagnir 2025. Skólp- og frárennslislagnir fóðraðar 2019. Gluggar á suðurhlið endurnýjaðir (óvíst hvaða ár).
Ofnalagnir og ofnar, sem og neysluvatnslagnir í íbúðinni voru endurnýjaðar 2023.
Frábær staðsetning í miðborginni, þar sem göngufæri er í alla verslun, þjónustu, veitingastaði, sundlaug og alla þá menningu sem miðbærinn hefur uppá að bjóða.
Sérhiti er í íbúðinni. 
NÁNARI LÝSING:
Hol/forstofa með nýjum flísum á gólfi. Opið þaðan í öll rými íbúðarinnar.
Tvö svefnherbergi, ágætlega rúmgóð. Fataskápar í báðum herbergjum.
Baðherbergið er flísalagt að mestu með sturtu og snyrtilegri innréttingu. Allt endurnýjað. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara á baði og því vel komið fyrir, eins og myndir sýna.
Eldhús, borðstofa og stofa eru í rúmgóðu og björtu alrými með gluggum til suðurs. Útgengi er á notalegar suðursvalir úr stofu.
Bakgarðurinn og svalirnar vísa í hásuður og út í notalegan bakgarðaklasa milli Grettisgötu og Njálsgötu. Kaldur geymsluskúr (3 m2) er í garðinum.
Niðurlag: Frábærlega staðsett, vel skipulögð, falleg og björt íbúð sem er nær öll endurnýjuð.
Nánari upplýsingar veitir: Bárður H. Tryggvason í síma 896-5221, tölvupóstur: bardur@gimli.is eða gimli@gimli.is


Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
13/04/202140.600.000 kr.42.000.000 kr.78 m2538.461 kr.
04/11/201421.300.000 kr.26.000.000 kr.78 m2333.333 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1938
3.1 m2
Fasteignanúmer
2008280
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
1.370.000 kr.

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bolholt 9
Bílastæði
Skoða eignina Bolholt 9
Bolholt 9
105 Reykjavík
92.3 m2
Fjölbýlishús
312
1073 þ.kr./m2
99.000.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 132
3D Sýn
Skoða eignina Laugavegur 132
Laugavegur 132
105 Reykjavík
80.7 m2
Fjölbýlishús
312
978 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Skoða eignina Ögurás 7 (208)
Efsta hæð
Hleðslustöð
Opið hús:09. sept. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Ögurás 7 (208)
Ögurás 7 (208)
210 Garðabær
98.8 m2
Fjölbýlishús
312
910 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Vefarastræti 11
Hleðslustöð
Opið hús:06. sept. kl 14:00-14:30
Skoða eignina Vefarastræti 11
Vefarastræti 11
270 Mosfellsbær
85.2 m2
Fjölbýlishús
312
867 þ.kr./m2
73.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin