Reisulegt tveggja hæða einbýlishús (222 fm) með innbyggðum rúmgóðum bílskúr og góðum svölum við Hnjúkasel 8 í Seljahverfi,109 Reykjavík.
Leikskólar og skóli í stuttu göngufæri. Húsið er að mestu upprunanlegt og þarfast endurnýjunnar og endurbóta. Auðvelt er að breyta skipulagi efri hæðar sem er með uppteknum loftum og léttum milliveggjum.
Skipulag hússins býður upp á að innrétta íbúð með sér inngangi á neðri hæð. Húsið er laust við kaupsamning.Eignin er samtals, 222 fm og skráð 7 herbergja hús sem skiptast í íbúð á 2 hæðum (149,7 fm), og stór bílskúr (72,3fm)
Nánari lýsing:Íbúðin er á tveimur hæðum og skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, 5 svefnherbergi, 1 baðherbergi, 1 gestasnyrtingu, 1 þvottahús innangengt í bílskúrinn og góða svalir. Loft efri hæðar eru öll upptekin. Burðarveggur er eftir endilögnu húsinu en aðrir veggir eru léttir og´því auðvelt að breyta skipulagi.
Bílskúrinn er rúmgóðum með 2 geymslum afþiljuðum í enda.
NEÐRI HÆÐ
Forstofa, Flísar á gólfi og góðir fataskápar.
Gangur, rúmgóður og þaðan er farið í önnur rými hússins og upp steyptan stiga upp á efri hæð.
Herbergi I, rúmgott og bjart með teppi á gólfi.
Snyrting, flísar á gólfi, hvít hreinlætistæki.
Herbergi II, (skráð sem geymsla á teikningu), flísar á gólfi.
Þvottahús, málað gólf, vaskur og útgangur út á verönd.
Bílskúr, rúmgóður með 2 geymslum/herbergjum í enda samtals 72 fm.
EFRI HÆÐStigi, steyptur stigi liggur úr gangi neðri hæðar upp á efri hæð, parket á þrepum.
Hol, parket á gólf
Stofa, parket á gólfi
Borðstofa, parket á gólfi útgangur út á stórar suðvestursvalir.
Eldhús, upprunanleg innrétting, eldavél með keramikhelluborði og eldri vifta.
Hjónaherbergi, rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Herbergi I, parket á gólfi og skápar
Herbegi II, parket á gólfi og skápar
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, hvít innrétting, baðkar með sturtu, upphengt salerni og gluggi.
Lóð, ræktuð lóð með trjágróðri er umhvefis húsið, verönd með skjólveggjum að baka til.
SamantektStórt sérbýli sem þarfnast endurbóta sem hentar vel stórri fjölskyldu á vinsælum og fjölskylduvænum stað í Seljahverfinu í Reykjavík. Virkilega skemmtilegt umhverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, tómstundastarf, verslun og alla helstu þjónustu í næsta nágrenni. Skemmtilegt stígakerfi liggur um hverfið og gerir umferð barna um hverfið örugga og auðvelda.
Nánari upplýsingar veitir: Snorri Snorrason fasteignasali í síma
895-21157 og í tölvupósti á netfanginu snorri@valholl.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati.
Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.