Fasteignaleitin
Skráð 30. sept. 2026

Grundarhús 4

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
122 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
87.000.000 kr.
Fermetraverð
713.115 kr./m2
Fasteignamat
84.200.000 kr.
Brunabótamat
60.850.000 kr.
PK
Pétur Kristinsson
Lögmaður/löggiltur fasteignasali
Byggt 1990
Garður
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
2040699
Landnúmer
109711
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
steypa
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
203
Vatnslagnir
Gott
Raflagnir
Gott
Frárennslislagnir
Gott
Gluggar / Gler
Gott
Þak
í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
svalir
Lóð
16,24
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignasala Snæfellsness og Kristinn Magnús Pétursson lögmaður og löggiltur fasteigna- og skipasali kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 4-5 herbergja íbúð með sérinngangi við Grundarhús í Grafarvogi. Íbúðin er á tveimur hæðum en auk þess er risloft með góðu aðgengi sem hægt er að nýta sem fjórða svefnherbergið. Tvö sérmerkt bílastæði fylgja eigninni.
Staðsetning eignarinnar er góð en stutt er í alla helstu þjónustu.
Skráð stærð eignarinnar er 122 m2. Á neðri hæð skiptist eignin í forstofu, stofu og borðstofu, eldhús, þvottahús/geymslu og salerni auk þess sem gengið er út á svalir af neðri hæð. Á efri hæð eru þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Risloft mætti ýmist nýta sem aukaherbergi eða geymslu. Eigninni fylgir hlutdeild í sameign og sameiginlegri hjólageymslu.
Allar frekari upplýsingar veitir Kristinn Magnús Pétursson, lögmaður og löggiltur fasteigna- og skipasali í síma 897-9704 eða í netfang kmp@fasteignsnae.is.
Sérstök athygli er vakin á því að seljendur eru nátengdir fasteignasala. Í slíkum tilvikum skulu tengsl kynnt væntanlegum kauptilboðsgjöfum og undirrita þeir yfirlýsingu um vitneskju um tengslin í samræmi við 2. mgr. 14. gr. laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa.
 
Nánari lýsing eignar:

Neðri hæð:

Forstofa er með flísalagt gólf. Rúmgóður fataskápur fylgir.
Salerni með handlaug. Flísar á gólfi.
Þvottahús/geymsla er með flísar á gólfi. Gluggi sem snýr að bílastæði. Hefur verið nýtt bæði sem þvottahús og geymsla. Þvottasnúrur eru í þvottahúsinu. Gott hillupláss er í geymslunni.
Eldhús er með svartri innréttingu. Nýlegt harðparket á gólfi. Tengi er fyrir uppþvottavél. Fallegt útsýni er úr eldhúsi. Rými er fyrir borðkrók í eldhúsi. Nýlega var skipt um blöndunartæki í eldhúsi. Borðplata í eldhúsi er í lélegu ástandi.
Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar. Gengið er út á suðursvalir úr stofu. Nýlegt harðparket á gólfi. Undir stiga er lítil geymsla.
Svalir voru endurnýjaðar 2025. Rúmgóðar, klæddar með plexigleri.
 
 
Efri hæð:
Hol/miðrými er með nýlegt harðparket á gólfi. Stigi upp á risloft er í holi.
Hjónaherbergi með nýlegu harðparketi. Skipt var um glugga árið 2024. Rúmgóðir fataskápar fylgja.
Barnaherbegi 1 með nýlegu harðparketi á gólfi. Fataskápur fylgir. Skipt var um glugga árið 2024.
Barnaherbergi 2 með nýlegu harðparketi á gólfi. Fataskápur fylgir. Skipt um glugga árið 2024. Í herberginu er skrifborð sem getur fylgt með í kaupum.
Baðherbergi er flísalagt. Innréttingar, baðkar, sturta og salerni. Nýlega var skipt um blöndunartæki í sturtu. Sturtuhurðin er stíf.
 
Risloft:
Risloft er opið rými sem hefur verið nýtt sem geymsla og herbergi. Plastparket á gólfi.
 
Almennt um eignina:
Eignin er vel staðsett í Húsahverfi í Grafarvogi. Stutt er í verslanir og þjónustu.
Spöngin er í 4 mínútna akstursfjarlægð. Krónan Grafarholti er einnig í 4 mínútna akstursfjarlægð. Foldatorg er í 3 mínútna aksturfjarlægð. Þá er 6 mínútna akstur í verslunarmiðstöð á Bíldshöfða.
Grafarvogslaug er í 3-4 mínútna göngufjarlægð. Egilshöll er í 4 mínútna akstursfjarlægð.
Húsaskóli er í 1-2 mínútna göngufjarlægð og ekki þarf að fara yfir götu. Þá er stutt í leikskóla.
 
Húsgjöld íbúðar eru kr. 30.000,- á mánuði en þá er allur almennur rekstur innifalinn, hiti og rafmagn í sameign sem og húseigendatrygging.
 
Allar frekari upplýsingar veitir Kristinn Magnús Pétursson lögmaður og löggiltur fasteigna- og skipasali í síma 897-9704 eða kmp@fasteignsnae.is.
 
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala í samræmi við lög nr. 70/2015. Upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinber gögn, til seljanda sjálfs og aftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eign.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.     Stimpilgjald af kaupsamningi. Það reiknast sem 0,8% af skráðu fasteignamati (einstaklingar). Vegna fyrstu kaupa er stimpilgjald 0,4% af skráðu fasteignamati. Lögaðilar greiða 1,6% af skráðu fasteignamati. Sjá 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald.
2.     Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl.  Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3.     Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast til gjaldskrár viðkomandi lánveitanda.

Fasteignasalan innheimtir ekki umsýslugjald af kaupendum. 
 

Vefsíða Fasteignasölu Snæfellsness er fasteignsnae.is.
 
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/06/202366.350.000 kr.74.000.000 kr.122 m2606.557 kr.Já
22/10/201944.850.000 kr.51.200.000 kr.122 m2419.672 kr.Já
13/11/201425.400.000 kr.32.500.000 kr.122 m2266.393 kr.Já
31/01/200721.350.000 kr.24.000.000 kr.122 m2196.721 kr.Já
04/09/200619.570.000 kr.23.200.000 kr.122 m2190.163 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hulduborgir 13
Opið hús:03. okt. kl 14:01-14:31
Skoða eignina Hulduborgir 13
Hulduborgir 13
112 Reykjavík
134.9 m2
Fjölbýlishús
413
738 þ.kr./m2
99.500.000 kr.
Skoða eignina Skerjabraut 17
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Skerjabraut 17
Skerjabraut 17
245 Sandgerði
145 m2
Raðhús
413
537 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Austurkór 65
Skoða eignina Austurkór 65
Austurkór 65
203 Kópavogur
115.3 m2
Fjölbýlishús
412
780 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Bakkabakki 5
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Bakkabakki 5
Bakkabakki 5
740 Neskaupstaður
123.4 m2
Raðhús
312
542 þ.kr./m2
66.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin