Fasteignaleitin
Skráð 2. nóv. 2026

Fosshóll

Jörð/LóðNorðurland/Hvammstangi-531
210,253.2 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
Verð
119.900.000 kr.
Fermetraverð
570 kr./m2
Brunabótamat
181.490.000 kr.
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
213302229
Húsgerð
Jörð/Lóð
Inngangur
Sérinngangur

Eiríkur Svanur Sigfússon lgf. s. 862-3377 og Fasteignasalan Ás ehf kynna jörðina Fosshól í Húnaþingi Vestra. 
Hlunnindi/veiðiréttindi í Miðfjarðará í Miðfirði. Einnig fylgir með 376 ærgildi. 

Þessi jörð er tilvalin fyrir fjárbúskap,nautgriparækt og hestamennsku hvort sem það er tengt ferðaþjónustu og/eða hestaræktun.  T.d. geta hross verið úti allt árið í kring við venjulegt áferði.

Ræktað land er 20,9 hektarara og svo er jörðin í óskiptu landi sem er ca. 2.000 hektarar með jörðinni Kollafoss (er við hliðina á Fosshól) þ.e. ca. 1000 hektarar á hvora jörð.  Skógrækt er á jörðinni ca. 23 hektarar, samningur er við Norðurlandsskóga, sem tilvonandi kaupandi yfirtekur.  Nánari skilgreining á landinu, 20,9 ha land undir túnum, 151,7 ha gott beitarland (ríkt mólendi), 303,3 ha úthagar, heiðarlönd, 202,2 ha hálfgróið, rýrt mýlent land, 359,9 ha melar og flagmóar.

Heildarhúsnæði á jörðinni sem er í notkun er.

Íbúðarhúsnæði er alls 149,7 fm að stærð byggt í tvennu lagi, 97,4 fm árið 1963 og 52,3 fm 1991.  Húsið skiptist í forstofu, herbergisgang, sjónvarpshol, fjögur rúmgóð herberbergi með útg. út á verönd úr hjónaherginu, rúmgott baðherbergi með þvottaaðstöðu, stórt eldhús, stofa með útg. út á verönd, þvottahúsið er breytt í vinnuinngang í húsið.   Ýmsilegt er búið að endurnýja/yfirfara s.s. þakkant, hluta af þakjárni á húsinu, glugga og rafmagn að hluta.

Véla- og verkfærageymsla, byggt 1986, stærð 200 fm sem skiptist í ca. 60 fm bílskúr með gryfju, 20 fm geymslu, 120 fm vélageymsla (ath, malargólf).

Fjárhús, byggt 1982, stærð 445,5 fm, pláss fyrir ca. 440 fjár.

Flatgryfja/heyhlaða, byggt 1982, stærð 270 fm.

Fosshóll á hlut í Hólmavatni með örðum jörðum, vatn sem tilvalið að rækta upp silung.

50 fjár geta fylgt með svo og vélakostur sem til er á jörðinni.

Allar nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í síma 862-3377 / eirikur@as.is og Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is
 
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is








 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Ás fasteignasala

Myndir (13)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Brekkulækur Ferðaþjónusta
Brekkulækur Ferðaþjónusta
531 Hvammstangi
1.407,9 m2
Jörð/Lóð
301026
Fasteignamat 142.839.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Pálmalundur
Skoða eignina Pálmalundur
Pálmalundur
531 Hvammstangi
71,4 m2
Jörð/Lóð
211
559 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Skoða eignina Kílhraunsvegur 18 stutt f. Selfossi
Kílhraunsvegur 18 stutt f. Selfossi
804 Selfoss
Jörð/Lóð
14.900.000 kr.
Skoða eignina Kílhraunsvegur 18 stutt f. Selfossi
Kílhraunsvegur 18 stutt f. Selfossi
804 Selfoss
Jörð/Lóð
14.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin